hjalli.com - Hjálmar Gíslason » Hjalmar Gislason

Af gjaldeyrishöftum, dægurþrasi og sandkassapólitík
Árni Páll Árnason hefur verið að birta yfirvegaðar og skynsamlegar greinar um skaðsemi og leiðir til afnáms gjaldeyrishaftanna undanfarna daga. (Sjá: 1, 2, 3). Þetta er mikilvægasta mál íslensks samtíma. Miklu mikilvægara en flestir gera sér grein fyrir, enda getum við meðalfólkið enn keypt okkar bíla, farið í okkar frí erlendis einu sinni ári og keypt flest alla innflutta vöru. Það mun hins vegar breytast smám saman eins og Árni Páll bendir réttilega á í síðustu greininni.

Það sem er ekki síður hrollvekjandi er að meðan hinir þrír hlutar fjórfrelsisins eru enn óskertir, þá er hætt við að fleira og fleira ungt fólk átti sig á því að möguleikar þeirra eru takmarkaðari en jafnaldra þeirra í nágrannalöndunum. Innan hafta eru ekki sömu möguleikar til að nýta sér tækifæri á markaði, ekki sömu möguleikar til nýsköpunar og ekki sömu möguleikar til fjármögnunar eins og utan þeirra. Og þá gerist eitt af tvennu: Framtakssamasta fólkið flytur af landi brott eða stjórnmálamenn fara að fá hugmyndir um að setja höft á fleira en bara gjaldeyrinn.

“Ókosturinn” við þetta mikilvæga mál er að áhrifin felast í hægfara hnignun frekar en skyndilegu áfalli. Og þá er auðveldara að tala um hundinn Lúkas eða annað dægurþras sem upp kemur í “dellu dagsins”. Málum sem allir hafa skoðun á í 24 tíma en engu skila til framtíðar. Fjölmiðlarnir nærast á slíkum málum, enda ódýrt efni í framleiðslu með mikinn lestur og hægt að endurtaka sama leikinn dag eftir dag. Þeir hafa hins vegar engan hvata til að gera stórum málum skil á hlutlausan hátt með allri þeirri vinnu, rannsóknum og vandvirkni sem til þarf.

Það þarf að vinna hratt að lausnum á gjaldeyrismálunum og þar þarf að snúa við öllum steinum. Upptaka Evru með inngöngu í ESB er eins og Árni Páll og fleiri hafa bent á líklega viðnámsminnsta leiðin, en alls ekki án fórna og þess vegna umdeild – svo mjög að hún gæti verið ófær. Auk þess þarf að skoða fyrir alvöru hvort möguleiki sé á því að taka upp Kanadadollar með aðkomu Kanadamanna (eða Norska krónu með aðkomu Norðmanna). Loks þarf að stilla upp sviðsmyndum af því hvernig hægt væri að blása lífi í krónuna eina ferðina enn og hvaða peningamálastefnu ætti þá að nota til að stýra henni.

Að halda – og halda fram – að aðeins ein leið sé fær og skella sjálfkrafa skollaeyrum við öllum hugmyndum um annað er barnaskapur. Möguleikarnir eru fjölmargir. Viðfangsefnið er að finna þann sem hefur fæsta galla.

Það þarf að fá bestu hagfræðinga og peningamálamenn samtímans til að vega og meta þessa kosti í opnu ferli þar sem jafnframt er lögð áhersla á að útskýra stöðuna, leiðirnar og kosti og galla hverrar um sig á einfaldan og skiljanlegan hátt fyrir almenningi. Jafnframt þarf að tryggja að öllum spurningum og ábendingum sem upp koma sé svarað skýrt og skilmerkilega og þær metnar inn í leiðirnar eftir því sem við á áður en ákvörðun er tekin.

Allt þetta væri gerlegt ef ekki væri fyrir það að svona ferli þyrfti að vera þverpólitískt þar sem þingmennirnir – fulltrúar okkar á Alþingi – þyrftu að átta sig á því að þeir eru SAMAN í liði, að þeirra hlutverk er að vinna SAMAN að SAMEIGINLEGUM hagsmunum allra landsmanna og í SÁTT um ferlið þó tekist sé á um leiðirnar. Slíkt er nær ómögulegt að sjá fyrir sér og verður reyndar erfiðara og erfiðara eftir því sem Alþingi sekkur dýpra í forarpytti skotgrafanna.

Það er þess vegna ekki hægt að takast á við þennan vanda frekar en svo margan annan vegna þess að sandkassaleikur pólitíkurinnar stendur í veginum. Þar liggur hið raunverulega úrlausnarefni, en engin lausn í sjónmáli.

DataMarket í Bandaríkjunum
DataMarket er að setja upp skrifstofu í Bandaríkjunum. Nánar tiltekið í Cambridge í Massachusetts, sem fyrir leikmann virkar í raun sem hverfi í Boston.

Mig langar að segja frá þessu hér af tveimur ástæðum:

Fyrirbyggja misskilning: Undanfarin ár hefur verið talsvert verið fjallað um fyrirtæki sem séu að “flýja land”. Áður en einhver sér sig knúinn til að túlka okkar tilfæringar með þessum hætti og breiða út eigin misskilning, er rétt að skrásetja hið rétta í málinu.

Að miðla af eigin reynslu: Það eru allnokkur önnur fyrirtæki að fást við svipuð viðfangsefni og við um þessar mundir. Ef okkar hugsanagangur og reynsla getur nýst þeim (eða öðrum) er það auðvitað hið besta mál.

Komum fyrst einu á hreint: DataMarket er ekki að flytja úr landi. Við erum að opna skrifstofu hvaðan alþjóðlegt sölu og markaðsstarf fyrirtækisins mun fara fram. Vöruþróunin og tæknivinnan mun áfram eiga sér stað á Íslandi og vaxa þar og eflast eftir því sem frekari árangur næst í sölunni. Við höfum byggt upp framúrskarandi þróunarteymi sem ég fullyrði að í eru nokkrir af bestu hugbúnaðarmönnum landsins. Ég hef ekki komið auga á neina ástæðu til annars en að þessi starfsemi verði áfram á Íslandi í fyrirsjáanlegri framtíð og að jafnvel þó við sæjum fram á margfaldan vöxt myndi kjarnaþróunin alltaf fara fram hér. Þetta er reyndar að ég held stærsti styrkleiki íslenskra sprotafyrirtækja í gegnum tíðina: Getan, hugmyndirnar og fólkið til að framleiða framleiða framúrskarandi tæknilausnir.

Vara er ekki það sama og tækni

Ein af stærri uppgötvunum mínum síðustu misseri, er að vara er ekki það sama og tækni. Sama tæknin getur verið margar mismunandi vörur, allt eftir því hverjum hún er ætluð, hvernig hún er kynnt, verðlögð, seld og innpökkuð. Fyrir hugbúnaðarfyrirtæki eru þetta auðvitað frábærar fréttir: Það getur verið að þú getir búið til margar vörur úr tækninni sem þú hefur þróað, án þess að skrfia svo mikið sem eina línu af kóða til viðbótar. Málið er samt að þú þarft ekkert margar vörur. Bara eina vel heppnaða.

Vel heppnuð vara mætir þörfum er vel skilgreinds markhóps og er seld, verðlögð og þjónustuð með hætti sem sýnir skilning á þeim þörfum.

Mjög mörg tæknifyrirtæki feila á þessu og falla í þá gryfju að lýsa kostum tækninnar frekar en því hvernig lausnin mætir þörfum viðskiptavinarins. Þetta getur orðið til þess að jafnvel hinn fullkomni kaupandi áttar sig ekki á því að tæknin þín er einmitt lausnin sem hann eða hún er að leita að, vegna þess að þú taldir upp fídusa og spekka í stað þess að lýsa því hvernig þú munt gera lífið léttara eða betra fyrir þennan tiltekna viðskiptavinahóp.

DataMarket er síst saklaust af þessu, en erum þó á batavegi hvað þetta snertir.

Selur þetta sig ekki sjálft?

Auk vörunálgunarinnar sem rakin er hér að ofan glíma tæknifyrirtæki – og undir þann hatt falla flest þau íslensku sprotafyrirtæki sem ég hef fylgst hvað mest með – við áskoranir í sölu- og markaðsmálum. Fyrsta áskorunin er einfaldlega að átta sig á því hvað þessi liður er mikilvægur og hvað það þarf að byrja snemma að sinna honum.

Hugsunin er oft eitthvað á þessa leið: Lausnin er svo góð að hún bara hlýtur að selja sig sjálf! Sölumenn kosta mikinn pening og skilja ekki út á hvað þetta gengur! Klárum bara lausnina og viðskiptavinirnir munu flykkjast að. Það er kannski rétt samt að einhver hafi þetta á sinni könnu, svona samhliða því að reka fyrirtækið, eða skrifa notendaleiðbeiningarnar með kerfinu.

Ekkert er fjær sanni. Ekkert selur sig sjálft! Meira að segja á dögum vefsins og greiðslulausna á netinu fer nánast öll sala fram með einhvers konar afbrigðum af áratuga- eða aldagömlum söluaðferðum. Að hitta fólk, átta sig á þörfum þess eða löngunum og sannfæra það um ágæti þinnar vöru til að mæta þeim. “Jæja, en hvað með t.d. Google?”, gæti einhver spurt. “Þar fer fólk bara inn á sjálfsafgreiðsluvef, setur inn kreditkortaupplýsingarnar sínar og borgar fyrir auglýsingar án þess að sala eða markaðssetning komi þar nokkuð nærri, ekki satt?”

Einmitt: Ekki satt! Á öllum helstu mörkuðum rekur Google stór úthringiver sem hringja í hugsanlega viðskiptavini, ekki ósvipað símtölunum sem við fáum um kvöldmatarleitið frá trygginga- eða fjarskiptafélögunum. Að auki fer stór hluti sölu Google fram í gegnum gamaldags sölumennsku til lykilviðskiptavina með “wining and dining” og sjálfsagt stangveiði og golfferðum líka, rétt eins og í “gamla heiminum”.

Og ef Google þarf á þessu að halda, þurfum við litlu sprotafyrirtækin það svo sannarlega líka!

Félagi minn orðaði þetta ágætlega um daginn þegar hann sagði íslensk fyrirtæki oft haga sér eins og prinsessan í kastalaturni ævintýranna. Ofsalega vel til höfð bíður hún við gluggann eftir að prinsinn eini birtist á hvíta hestinum. Sú bið vill oft verða nokkuð löng og prinsinn kannski ekki alveg sá bjargvættur sem vonast var eftir – ef einhver þá mætir.

Eftir því sem ég les og læri meira um sölumennsku, öðlast ég meiri virðingu fyrir hæfileikanum sem góðir sölumenn hafa og aðferðunum sem þeir beita. Þetta er ekki eins tilviljanakenndur ferill eins og við nördarnir viljum oft halda, og góður sölumaður er ekki steríótýpíski bílasalinn sem er góður að pranga óþarfa inn á fólk. Góðir söluferlar eru markvissir og snyrtilega “forritaðir”, og góðir sölumenn með góða vöru selja þannig að kaupandinn þarf aldrei að efast um að hann sé að gera góð kaup, hvorki á meðan á söluferlinu stendur, né eftir að varan hefur verið afhent. Góð sala er þannig að báðir aðilar “vinna” þegar hún klárast.

Verkefnið okkar hjá DataMarket núna er að byggja upp jafnsterkt söluteymi og þróunarteymi. Það er ekki hlaupið að því. Og það verður heldur ekki gert á Íslandi fyrir ýmissa hluta sakir.

Af hverju í útlöndum?

Stutta svarið er: Af því að þar er markaðurinn. Aðeins ríflega 0,004% mannkyns býr á Íslandi og þar með hugsanlega ekki mikið hærra hlutfall af mögulegum viðskiptavinum. Eftir því sem varan er sérhæfðari, því færri eru hugsanlegir viðskiptavinir hér.

Staðreyndin er svo sú að þrátt fyrir undur netsins, Skype, síma og fjarfunda, þá jafnast ekkert á við það að hitta fólk á fundi til að ná athygli þess, hlusta eftir þörfum, sjá viðbrögð við demói, sannfærast um að fólk sé traustsins vert og sýna að maður sé það sjálfur. Mín reynsla hefur verið nokkurn veginn svona: Það er hægt að kynna sig og kanna hugsanlegan áhuga með tölvupósti og símtölum. Það er hægt að fylgja samkomulagi eftir og innleiða lausnir með tölvupósti og símtölum og það er jafnvel hægt að ganga frá samningum í gegnum símtöl og tölvupóst. En lykilstundir í samningaferlinu, þegar traust myndast milli aðila og kaupandinn verður í raun ákveðinn í að kaupa nást ekki nema fólk hafi hittst augliti til auglitis.

Og þá er kostur að hafa stóran markað innan seilingar og geta mætt á þessar lykilstundir með lágmarksfyrirhöfn.

Af hverju í Bandaríkjunum?

Þegar við tókum ákvörðun um að tími væri til kominn að setja upp söluskrifstofu erlendis, fórum við í gegnum sölupípuna okkar (lista hugsanlegra viðskiptavina sem við vorum í samskiptum við) og sáum fljótt að þar voru tvö svæði sem stóðu uppúr: London og austurströnd Bandaríkjanna. Tiltölulega stutt yfirlega leiddi svo í ljós að tækifærin umfram þau sem þegar lágu fyrir voru umtalsvert fleiri og stærri í Bandaríkjunum.

Þarna spilar líka inn í aðgangurinn að fjármagni til frekari vaxtar. Við höfum byggt einhver tengsl við líklega eina 30 fjárfestingasjóði. Af þeim eru meira en 20 bandarískir. Reynsla okkar af samskiptum við þá hefur almennt verið góð, en viðbrögð þeirra má súmmera upp sirka svona: Ef þú ert með flottasta fyrirtæki í heimi, gæti það líklega verið í frumskógum Kongó og þeir myndu samt fjárfesta. Ef þú ert eitt af fyrirtækjunum 100 sem þeir eru volgir fyrir, leita þeir að hverri ástæðu sem gefst til að fjárfesta ekki. Ísland er auðveldlega ein þeirra.

Einn þeirra gekk m.a.s. svo langt að segja að loknum fundi: “So, are you moving over here? Good, b’cause you know, nobody takes you seriously coming out of Iceland!” Með því held ég að hann hafi ekkert verið að meina Ísland sérstaklega og efast um að hann hafi vitað mikið um bankahrun, gjaldeyrishöft eða takmarkaða erlenda fjárfestingu – við vorum ekki komnir þangað í samtalinu. Ég held að hann hafi átt við: “Nobody takes you seriously coming out of country-with-a-funny-name-I-don’t-know-anything-about-and-couldn’t-point-out-on-a-map!”

Í augum svona fjárfesta skiptir staðsetning máli. Bæði til að þeir geti fylgst með fjárfestingunni sinni og vegna þess að þeir eru löngu búnir að átta sig á öllu sem sagt er hér að framan.

Af hverju Boston?

Við vorum eiginlega búin að ákveða að New York væri málið, enda eru fjármála- og fjölmiðlafyrirtæki (2 af þrem skilgreindum markhópum) mörg hver með höfuðstöðvar þar. Á tveim vikum í nóvember síðastliðnum, náðum við hins vegar sölu til tveggja markaðsrannsóknafyrirtækja (þriðji markhópurinn) í Boston – og þá tók ákvörðunin sig eiginlega sjálf. Fara þangað, láta innleiðingarnar fyrir þá ganga vel upp og vinna okkur þaðan. Rannsóknargeirinn i Boston er mjög sterkur, en virðist að sama skapi þéttofinn, þannig að þar þekkja allir alla. Það er þegar farið að skila sér í nýjum tengslum og frekari tækifærum. Sem dæmi um það, kynnti annar af þeim viðskiptavinum sem við höfum þegar landað okkur fyrir hinum. Og allmargar kynningar til viðbótar síðan komnar í gegnum þessa tvo aðila. Þegar maður getur að auki farið að stunda fundi og mannfagnaði í geiranum verða þeir hlutir fljótir að gerast.

Og hvernig verður þetta þá?

Ég er s.s. að flytja til Boston með fjölskylduna. Ég verð sölumaður númer 1 til að byrja með, en er að leita að samstarfsmanni þar sem fyrst til að vinna mér við hlið. Líklega Bandaríkjamanni með sölureynslu og helst þekkingu á geiranum, sem getur unnið með mér í að landa fleiri samningum á svæðinu. Markmiðið er að með haustinu verði svo ráðið í stöðu sölustjóra, sem geti leitt uppbyggingu sölu- og markaðsmála næstu árin, en til þess að ná réttum aðila í það starf þurfum við að sýna að sölumálin séu á góðu skriði og afla okkur aðeins meiri reynslu af söluferlinum og markhópunum.

Þá tekur við næsta starf hjá mér, því að þegar maður rekur sprotafyrirtæki skiptir maður í raun um vinnu á 6 mánaða fresti, þó fyrirtækið og titillinn sé sá sami.

Heilsusamlegt upplýsingaæði
Ég lauk nýlega við lestur bókarinnar The Information Diet eftir Clay Johnson.

Útgangspunktur bókarinnar er nokkuð snjall. Þar er upplýsingavali okkar og -neyslu – fréttalestri, bókalestri, tölvupósti, samfélagsmiðlum, sjónvarpi og neyslu á öðrum fjölmiðlum – líkt saman við fæðuval okkar og -neyslu. Þar eru að auki færð fyrir því sterk rök að upplýsingaæði okkar flestra sé engu skárra en mataræðið – og þar steðji að engu síðri vandi en offituvandinn. Á meðan venjur okkar í mataræði gera okkur feit gera venjur okkar við upplýsingainntöku okkur fáfróð og þröngsýn. Höfundurinn vill meina að þetta sé að miklu leyti ástæðan fyrir því hversu hörð stjórnmálaátökin eru, hversu óvandaður fréttaflutningur er og hversu vanþroskuð umræða um þjóðfélagsmál sé orðin.

Já, þetta á greinilega við víðar en á Íslandi!

Höfundur líkir slúðurfréttum og öðru óvönduðu léttmeti (“- MYNDIR!”) við skyndibita og sælgæti. Margir eiga erfitt með að standast þessháttar efni og það stendur hollari upplýsingaupptöku fyrir þrifum.

Samfélagsmiðlar og tölvupóstur fá líka sinn sess, en þáttur þeirra er mun flóknari og fellur í raun undir bæði hollustu og ómeti að mati höfundar.

Eftir að hafa útskýrt þessa sýn sína á upplýsingaöldina leggur höfundur af stað til að vopna okkur aðferðafræði, tólum og tækjum til að stunda heilbrigt upplýsingaæði.

Fyrst eru taldir til þeir hæfileikar sem nútímamaðurinn þarf að hafa til að takast á við upplýsingaflæði samtímans:

Upplýsingaleit: Að vita hvar á að leita góðra upplýsinga og hvernig.

Síun: Að þekkja góðar upplýsingar frá slæmum og hvað einkennir hvorn flokk um sig.

Framreiðsla: Að geta komið hugsunum sínum frá sér á skiljanlegan hátt, ekki síst til að ná utan um þær sjálfur.

Samþætting: Að geta fellt nýfengnar upplýsingar að hugmyndum sínum um heiminn og breytt þeim – já, jafnvel skipt um skoðun!

Því næst er farið í gegnum eins konar tímastjórnun við upplýsingainntöku. Hvernig komum við í veg fyrir að skyndibitinn eða Facebook “sjúgi okkur til sín” og við komum engri annarri neyslu að, eða vinnu frá okkur (mörg vinnum við jú ekki við annað en að sanka að okkur upplýsingum og koma þeim síðan frá okkur á einhvern hátt til annarra). Þarna er að finna nokkrar sniðugar hugmyndir sem hægt er að tileinka sér, en höfundur tekur þó skýrt fram að þetta sé aðeins tiltekin aðferðafræði sem hann hafi komið sér upp og hafi reynst honum vel.

Síðasti hlutinn í sjálfum “mataræðis”-hluta bókarinnar fjallar svo um heilsusamlegt “upplýsingafæði” og þetta var sá hluti bókarinnar sem mér fannst áhugaverðastur. Hér eru þau nokkrir hlutir sem hollt upplýsingafæði samanstendur af að hans mati:

Ábyrg neysla: Taktu stjórn á upplýsinganeyslunni. Ekki horfa á sjónvarpsdagskrá, horfðu á það sem þú virkilega vilt horfa á: þætti eða bíómyndir á DVD eða í stafrænum þjónustum. Lestu efni sem mælt hefur verið með við þig af fólki sem þú virðir og treystir, ekki það sem er matreitt ofan í þig af dagskrár- eða ritstjórum annarra miðla. Þetta á líka við um tölvupóstinn. Skráðu þig af póstlistum og fástu við þann póst sem virkilega þarfnast athygli, en ekki láta hann taka athyglina frá mikilvægari verkum. Skilgreindu líka tiltekna tíma dagsins í neyslu ákveðinnar gerðar upplýsinga. Klukkutími í bóklestur fyrir svefninn. Tölvupóstur þrisvar á dag, o.s.frv. Með öðrum orðum: Fastir matmálstímar og ekkert snakk á milli mála!

Annar þáttur í þessu og ekki síður mikilvægur: Forðastu mikið unnar upplýsingar rétt eins og mikið unninn mat. Leitastu við að sækja upplýsingar beint til upprunans. Því fleiri skref sem frásögnin eða fréttin hefur verið umskrifuð og umrituð, því meiri upplýsingar hafa tapast og jafnvel rangfærslur eða misskilningur slæðst inn í. Erlendar fréttir í íslenskum miðlum eru oft skýrt dæmi um þetta, sem og fréttir í almennum fjölmiðlum af vísindum. Reynum að rekja okkur til upprunans og lesa frumheimildina frekar en túlkun eða endurtúlkun annarra á henni. Og tökum öðru með fyrirvara.

Upplýsingar úr næsta nágrenni: Leitastu við að neyta upplýsinga um þitt næsta umhverfi í meira mæli en það sem kemur lengra að. Þetta er ekki bara hugsað landfræðilega heldur líka í efnistökum (þitt sérsvið, áhugamál eða annað). Af hverju? Jú, vegna þess að það er líklegara að þær upplýsingar skipti þig máli, geti haft áhrif á þitt daglega líf og að þú getir á einhvern hátt brugðist við eða gert eitthvað í málunum. Það er líka auðveldara að þekkja bullið eftir því sem maður þekkir viðfangsefnið betur. Hver kannast ekki við að hafa þekkt til í einhverju máli sem hefur orðið fréttamatur og séð að þar er einhverju ábótavant eða farið lauslega með staðreyndir? Það er gott að muna að allar fréttir eru þessu sama marki brenndar. Við bara vitum það ekki af því að við þekkjum ekki til þeirra. Annað efni er svo nauðsynlegt í bland, en ætti að vera stillt í hóf og því tekið með ákveðnum fyrirvara.

Lágt auglýsingainnihald: Forðastu auglýsingar. Þær eru hannaðar til að ná athygli þinni og trufla þig við það sem þú ert að gera. Þar að auki eru þær hannaðar til að vera gildishlaðnar, en ekki til hlutlausrar upplýsingamiðlunar. Það eru ýmsar leiðir til að draga úr áreiti auglýsinga bæði á vefnum og í öðrum miðlum. Kynntu þér þær og tileinkaðu þér.

Fjölbreytni og jafnvægi: Leitastu við að neyta fjölbreyttra upplýsinga og mismunandi sjónarmiða. Leitastu sérstaklega við að lesa skoðanir þeirra sem eru ósammála þér og reyna að sjá þeirra flöt á málinu og það frekar en að lesa skrif þeirra sem eru sammála þér. Slíkt efni gerir ekki annað en að fylla þig af, ef til vill, óverðskuldaðri sannfæringu um að þú hafir þegar rétt fyrir þér. Það er betra að brýna skoðanir sínar með rökum þeirra sem eru ósammála þér. Hver veit, kannski ert þú ekki handhafi hins heilaga sannleika eftir allt saman – og sértu það, ertu þá betur í stakk búin(n) til að svara mótrökunum.

Leitastu sömuleiðis við að kynna þér í bland gæðaumfjöllun um hluti sem þú hefur aldrei kynnst áður og fá þannig nýtt efni inn í hugmyndaheim þinn. TED – einhver?

Ég verð að segja að ég er óskaplega hrifinn af þessum pælingum og margt í þessu hljómar eins og frábær tækni til að takast á við óþægilega kunnugleg stef úr íslenskum fjölmiðla- og umræðuheimi.

Þetta er sterkasti hluti bókarinnar, en ég mæli engu að síður eindregið henni allri. Mikið af góðum pælingum og hugmyndum að því hvernig við getum bætt upplýsingaæði okkar og lyft umræðunni á hærra plan. Ekki veitir af!

Af iðnaðarsalti
Ég fór í smá skoðunarleiðangur um internetið til að forvitnast um þetta iðnaðarsalt sem var í fréttunum í gær. Umræðan er að venju yfirborðskennd og lítið um nákvæmar upplýsingar í umfjöllun fjölmiðla. Hér er það sem ég komst að.

Á gömlu afriti af vefsíðu Ölgerðarinnar fann ég vöruna. Hana er ekki lengur að finna í vörulistanum á vef fyrirtækisins. Með smá fikti fann ég samt stóra og fína mynd af pakkningunum, enn á vefsvæði Ölgerðarinnar (afrit af myndinni hér ef hún skyldi hverfa).

Á pakkningunum stendur stórum stöfum “Industrial salt” og “For industrial use only”. Með góðum vilja má etv. skilja það þannig að matvælaiðnaður falli þar undir … og þó!

Innihaldslýsingin er líka vel sjáanleg þarna:

99,9% Natríumklóríð (NaCl) = hreint salt

E535 = Sodium ferrocyanide eða Natríumferrósýaníð upp á íslensku

E536 = Potassium ferrocyanide eða Kalíumferrósýaníð upp á íslensku

E536 virðist álitið nánast skaðlaust, en um E535 segir á Wikipedia “Despite the presence of the cyanide ligands, sodium ferrocyanide is not especially toxic (acceptable daily intake 0–0.025 mg/(kg body weight)) because the cyanides are tightly bound to the metal.” Frumheimildin þarna er þetta skjal frá WHO.

Bæði þessi efni er hins vega líka að finna í lýsingum á hefðbundnu matarsalti, enda koma þessi efni í veg fyrir að saltið kekkist.

Það virðist því ólíklegt að alvarleg hætta sé á ferðum eða einhver hafi orðið fyrir skaða af neyslu þessa iðnaðarsalts. Hins vegar falla efni til iðnaðarframleiðslu ekki undir jafn strangt eftirlit og matvara og því hefðu önnur snefilefni eða mengun verið líklegari til að komast í dreifingu með þessum hætti.

Eftir stendur því að það er alvarlegt að fyrirtækið leyfi sér að selja þessa vöru til matvælaframleiðslu á svig við lög og reglur og eins að eftirlitsstofnunin láti það óátalið.

Það er hins vegar engin ástæða til að fara á límingunum yfir því að einhver hafi orðið fyrir heilsutjóni af þessum sökum, nema fram komi nýjar og óvæntar upplýsingar.

Leikmannsrannsókn lokið

Uppfært 14. janúar kl 21:24: Herti aðeins á orðalagi varðandi “For industrial use only”. Það er erfitt að spyrja sig ekki spurninga um það hvort efnið sé raunverulega ætlað til neyslu með þessa merkingu þarna. Áréttaði líka í niðurlaginu að ekki sé ástæða til að fara á límingunum af ótta við að einhver hafi orðið fyrir heilsutjóni. Eftir sem áður er full ástæða til að taka þetta alvarlega, fara vandlega yfir starfsemi fyrirtækisins og eftirlitsaðilanna, spyrja erfiðra spurninga og grípa til aðgerða eins og tilefni reynist til.

Vaðlaheiðargöng – gögn, arðsemi og útreikningar
Ég hef aðeins verið að velta þessari Vaðlaheiðargangaframkvæmd fyrir mér. Eins og oft vill verða skiptast háværustu raddirnar í tvo hópa á sitthvorum enda litrófsins: Annars vegar þá sem finna framkvæmdinni allt til foráttu og hins vegar þá sem vilja keyra verkið í gegn nánast án frekari umræðu eða umhugsunar.

Ég settist þess vegna aðeins yfir málið í morgun og fann til eftirfarandi gögn sem sýna samanburð á umferð um Víkurskarð (sem Vaðlaheiðargöng munu að mestu leysa af hólmi) og Hvalfjarðargöng á árunum 2000-2009:

Meðalfjöldi ferða yfir allt tímabilið er 1.014 bílar á dag um Víkurskarð, en 4.459 um Hvalfjarðargöng og hefur á báðum stöðum vaxið nokkuð jafnt og þétt ár frá ári. Þannig var meðalumferð á dag árið 2000:

Víkurskarð: 834 ferðir

Hvalfjarðargöng: 3.241 ferð

…en árið 2009:

Víkurskarð: 1.253 ferðir

Hvalfjarðargöng: 5.413

Þetta samsvarar því að umferð um Víkurskarð hafi að jafnaði vaxið um ca. 4,2% á ári, en um 5,3% á ári í Hvalfjarðargöngunum.

Ég birti þessi gögn á Facebook og þar sköpuðust í framhaldinu býsna fjörugar og fróðlegar umræður um málið.

Tryggvi Þór Herbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins blandaði sér meðal annars í þessar umræður með fróðlegu innleggi og bauðst til að senda mér þá arðsemisútreikninga sem hann hefði notað til að mynda sér skoðun á málinu í upphafi árs 2012, en Tryggvi hefur lýst sig fylgjandi framkvæmdinni.

Ég fékk leyfi Tryggva til að birta þessa útreikninga hans. Hér eru hans forsendur og niðurstöður (smellið á myndina til að skoða útreikningana sjálfa):

Ég hafði nokkrar athugasemdir við forsendur útreikninganna, sem ég sendi Tryggva um hæl:

Þú reiknar með að öll umferð fari um göngin. Er ekki rétt að miða við 90%?

Engir vextir á framkvæmdatíma?

Rekstrarkostnaður Hvalfjarðarganga er 250 m.kr. á ári. Þú reiknar með 40 m.kr. á ári við Vaðlaheiðargöng. Hvernig rökstyðurðu þennan mun?

Þú reiknar með að meðalveggjald notanda sé 1255 krónur (með vsk). Það er verulega mikið hærra (meira en 2x) en t.d. í Hvalfjarðargöngum. Er það raunhæft?

Er tímasparnaðurinn ekki 11 mínútur (16 km á 90km hraða)?

1,5% vöxtur á umferð kann að vera hóflegt miðað við reynslu síðustu 10 ára (sjá að ofan). Má alveg hækka það aðeins. T.d. 2%

Tryggvi benti mér réttilega á að samanlagður tímasparnaður miðast við fjölda farþega í bíl og óhætt að reikna með að það séu fleiri en einn í bílnum. 40 m.kr. rekstrarkostnaðurinn er kominn frá Vaðlaheiðargöngum ehf og skýrður með ólíkri tækni, en hann er svo mikill að þar finnst mér skorta frekari rökstuðning. Almennt hefur verið talað um að veggjald verði 1000 krónur og það hlýtur að miðast við að sú upphæð sé með VSK – ekki án. 50 m.kr. sparnaður við vetrarþjónustu hljómar nokkuð hár, en ég geri ekki athugasemdir við það fyrr en að betur athuguðu máli.

Að teknu tilliti til þessara forsendubreytinga líta uppfærðar niðurstöður svona út. Blálituðu reitirnir merkja mínar breytingar. Að vísu er enn ekki gert ráð fyrir vöxtum á framkvæmdatíma (aftur má smella á myndina til að sjá útreikningana):

Niðurstaðan er vissulega töluvert ólík eftir þessar breytingar.

Ef þið hafið aðrar forsendur eða skoðanir á því hvernig eigi að gera þetta, getið þið svo bara sótt Excel-skrána og leikið ykkur með ykkar eigin forsendur og etv. hjálpar það ykkur við að mynda ykkur upplýsta skoðun á því hvert þessi framkvæmd eigi rétt á sér eða ekki. Mér finnst þetta a.m.k. hjálpleg æfing meðan opinber gögn málsins liggja ekki fyrir.

Burtséð frá ykkar niðurstöðum og skoðunum hvers og eins á Tryggvi Þór á hrós skilið fyrir bæði vinnubrögðin og þátttöku í opnum umræðum um málið. Meira svona!

Uppfært 17. nóv, 2011 kl 11:22: Hér að neðan hafa komið fram athugasemdir við útreikningana í módeli Tryggva og hann tekið undir þær. Eins bendir Tryggvi á að virðisaukaskattur af veggjaldinu sé 7%, ekki 25,5%. Ég hef því uppfært skjölin og myndirnar til samræmis við það, enda tilgangur þessarar tilraunar að nálgast rétt módel sem hver og einn geti skoðað sínar forsendur með.

Uppfært 17. nóv, 2011 kl 11:48: Setti inn þriðju útgáfu af forsendum þar sem flestar tölur eru teknar verulega niður með varfærni að leiðarljósi. Það gæti litið einhvern veginn svona út:

Hlutaskrá einkahlutafélags – dæmi
Samkvæmt lögum um íslensk einkahlutafélög skal félagið sjálft halda hlutaskrá (stundum kölluð hluthafaskrá eða hluthafalisti). Kveðið er á um þetta í 19. grein laganna, en hún hljóðar svo:

19. gr. Þegar einkahlutafélag hefur verið stofnað skal stjórn þess þegar í stað gera hlutaskrá. Heimilt er að hafa skrána í tryggu lausblaða- eða spjaldaformi eða tölvuskrá hana.

Í hlutaskrá skulu hlutir skráðir í númeraröð og skal fyrir sérhvern hlut greint frá nafni eiganda, kennitölu og heimilisfangi.

Gefa má út hlutaskírteini í einkahlutafélögum.

Verði eigendaskipti að hlut og ákvæði 14. og 15. gr. eru þeim ekki til fyrirstöðu skal nafn hins nýja hluthafa fært í hlutaskrána þegar hann eða löglegur umboðsmaður hans tilkynnir eigendaskiptin og sannar rétt sinn. Enn fremur skal geta eigendaskipta- og skráningardags. Sá sem eignast hefur hlut getur ekki beitt réttindum sínum sem hluthafi nema nafn hans hafi verið skráð í hlutaskrá eða hann hafi tilkynnt og fært sönnur á eign sína á hlutnum.

Ef þess er krafist af hluthafa eða veðhafa skal félagið gefa út staðfestingu um færslu í hlutaskrána.

Hlutaskrá skal ætíð geymd á skrifstofu félags og eiga allir hluthafar og stjórnvöld aðgang að henni og mega kynna sér efni hennar.

Þetta er auðvitað meingallað fyrirkomulag sem býður upp á bæði mistök og margskonar sniðgöngu á lögum, t.d. í tengslum við skatta og takmarkanir á eignarhaldi. Eðlilegast væri að að Fyrirtækjaskrá héldi utan um hlutaskrá allra félaga, rétt eins og hún heldur utan um samþykktir þeirra, stjórnarsetu, prókúru og endurskoðendur. En það er alveg efni í sérstaka umfjöllun.

Ástæðan fyrir þessari færslu er sú að ég veit að fjölmörg einkahlutafélög halda ekki utan um þessi mál í samræmi við það sem kveðið er á um í lögunum – og þar sem ég er tiltölulega nýbúinn að fara í gegnum það með bæði lögfræðingum og endurskoðendum að koma þessu á form sem uppfyllir lögin í einu og öllu fannst mér um að gera að deila afrakstrinum af þeirri vinnu með öðrum sem vilja hafa þessi mál í réttum farvegi.

Excel-skráin hér að neðan sýnir ímyndaða atburðarás við stofnun, fjármögnun og eigendaskipti á hlutum í einkahlutafélagi. Þetta þarf svo að uppfæra þetta í hvert sinn sem breyting á sér stað í hluthafahópnum og tryggja að skjalið sé aðgengilegt hluthöfum og yfirvöldum þegar þess er óskað.

Úfylling skjalsins á að skýra sig nokkurnvegin sjálf, sérstaklega með hliðsjón af lögunum. Skráin er á bæði ensku og íslensku til að geta nýst ef erlendir aðilar eru (eða eru líklegir til að verða) í hluthafahópnum. Fyrir rammíslensk félög má að sjálfsögðu sleppa enskunni.

Smellið á myndina til að sækja skjalið:

share_registry.xls

Njótið!

Besta ræða Steve Jobs
Steve Jobs er fallinn frá. Hann er öllum frumkvöðlum fyrirmynd og við erum mörg sem lítum upp til hans. Í minningu kappans ákvað ég að færa í íslenska þýðingu bestu ræðu Steve Jobs, og reyndar eina bestu ræðu sögunnar að mínu mati.

Ræðan var flutt við úskrift nemenda úr Stanford-háskóla þann 12. júní árið 2005 og á  erindi við alla, ekki bara tölvufólk og sprotaflón, heldur alla sem velta fyrir sér lífinu og tilverunni:

Það er mér heiður að vera með ykkur í dag þegar þið brautskráist frá einum besta háskóla heims. Í sannleika sagt er þetta það næsta sem ég hef komist slíkri útskrift. Mig langar að segja ykkur þrjár sögur úr lífi mínu. Það er allt og sumt. Engin stórræði. Bara þrjár sögur.

Fyrsta sagan fjallar um það að mynda tengingar.

Ég hætti í námi við Reed-háskóla eftir 6 mánaða skólagöngu, en var viðloðandi skólann í aðra 18 mánuði áður en ég sagði að fullu skilið við skólann. En af hverju hætti ég þá?

Sagan hefst áður en ég fæddist. Líffræðileg móðir mín var ungur og ógiftur háskólanemi og ákvað að gefa mig til ættleiðingar. Hún hafði sterka skoðun á því að fólkið sem ættleiddi mig ætti að vera háskólagengið fólk. Það hafði því verið gengið frá því að ég yrði ættleiddur af lögfræðingi og konunni hans. Nema hvað,  þegar ég skaust í heiminn ákváðu þau á síðustu stundu að þau vildu heldur stelpu. Foreldrar mínir, sem voru á biðlista, fengu því símtal um miðja nótt: “Óvænt erum við hér með nýfæddan strák; viljið þið taka hann?” Þau svöruðu: “Að sjálfsögðu.” Líffræðileg móðir mín komst síðar að því að mamma hafði aldrei útskrifast úr háskóla og pabbi hafði aldrei lokið menntaskólanámi. Hún neitaði því að skrifa undir endanlegu ættleiðingarskjölin. Það var ekki fyrr enn nokkrum mánuðum síðar þegar foreldrar mínir lofuðu að ég myndi fara í háskólanám að hún féllst á að ganga frá pappírunum.

Og 17 árum síðar fór ég í háskóla. Í barnaskap mínum valdi ég skóla sem var næstum eins dýr og Stanford. Þetta þýddi að allur sparnaður verkafólksins, foreldra minna, fór í skólagjöldin mín. Að sex mánuðum liðnum sá ég ekki að námið væri þess virði. Ég hafði enga hugmynd um hvað ég vildi gera í lífinu og enga hugmynd um hvernig háskólinn myndi hjálpa mér að svara þeirri spurningu. Og hér var ég að eyða öllum þeim sparnaði sem foreldrar mínir höfðu safnað á lífsleiðinni. Þannig að ég ákvað að segja mig frá náminu og treysti því að þetta myndi allt reddast einhvern veginn. Þessi ákvörðun hræddi mig mjög, en þegar ég lít til baka sé ég að þetta var einhver besta ákvörðun sem ég hef nokkurntíman tekið. Um leið og ég hætti í formlega náminu þurfti ég ekki lengur að sækja kúrsa sem ég hafði engan áhuga á og gat laumast inn í kúrsa sem virtust áhugaverðir.

Þetta var ekki eintóm gleði og hamingja. Ég var ekki með herbergi á heimavist þannig að ég svaf á gólfinu í herbergjum vina minna. Ég safnaði flöskum sem ég seldi fyrir 5 sent til að kaupa mat og á hverjum sunnudegi gekk ég 7 mílur þvert yfir bæinn til að fá eina almennilega máltíð í Hare Krishna-hofinu. Mér fannst þetta frábært. Og margt af því sem ég rakst með því að elta forvitni mína og brjóstvit reyndist mér ómetanlegt síðar. Ég skal gefa ykkur eitt dæmi:

Reed-háskóli bauð á þessum tíma upp á nám í skrautritun. Hugsanlega besta slíka nám sem boðið var upp á í landinu. Á háskólasvæðinu var hvert einasta plakat, hver einasta merking á hverri einustu skúffu, fallega skrautrituð. Þar sem ég hafði hætt í formlegu námi og þurfti ekki að stunda hefðbundin fög, ákvað ég að læra skrautritun. Ég lærði muninn á steinskrift og þverendaletri, um breytilegt bil á milli stafa eftir samstæðum þeirra og hvað það er sem gerir framúrskarandi letur framúrskarandi. Þetta var fallegt, sagnfræðilegt og hafði listrænan blæ þeirrar gerðar sem vísindin ná ekki að fanga, og þetta heillaði mig.

Ekkert af þessu hafði minnstu möguleika til að nýtast mér seinna á ævinni. En tíu árum síðar, þegar við vorum að hanna fyrstu Macintosh tölvuna, rifjaðist þetta allt upp fyrir mér. Og við útfærðum þetta allt sem hluta af Makkanum. Hún var fyrsta tölvan með fallegu letri. Ef ég hefði ekki sótt akkúrat þennan áfanga í háskóla hefði Makkinn aldrei boðið upp á mismunandi leturgerðir eða hlutfallslegt stafabil. Og þar sem Windows apaði bara upp það sem Makkinn gerði, hefði sennilega engin einkatölva boðið upp á slíkt. Ef ég hefði ekki hætt í námi hefði ég aldrei sótt þennan áfanga í skrautritun og einkatölvur byðu ef til vill ekki upp á fallegt letur. Auðvitað var ómögulegt að átta sig á þessari tengingu þegar ég var í háskólanum, en það var mjög auðvelt þegar litið var til baka 10 árum síðar.

Ég endurtek, það er ómögulegt að sjá tengingar fyrirfram; þú getur einungis áttað þig á þeim þegar þú lítur til baka. Þú verður því að treysta því að hlutirnir tengist einhvern veginn seinna á lífsleiðinni. Þú þarft að treysta einhverju – tilfinningunni í maganum, örlögunum, lífinu, karma, einhverju. Þessi nálgun hefur aldrei svikið mig og hún hefur mótað líf mitt.

Önnur sagan fjallar um ástríðu og missi

Ég var heppinn – ég fann mína ástríðu snemma í lífinu. Við Woz stofnuðum Apple í bílskúr foreldra minna þegar ég var tvítugur. Við unnum hörðum höndum, og á 10 árum óx Apple úr því að vera við tveir í bílskúr í tveggja milljarða dollara fyrirtæki með 4.000 starfsmenn. Við hleyptum af stokkunum okkar bestu vöru – Macintosh tölvunni – ári áður og ég var rétt nýorðinn þrítugur. Og þá var mér sagt upp. Hvernig getur manni verið sagt upp störfum hjá fyrirtæki sem maður stofnar sjálfur? Tjah, samhliða vexti Apple réðum við til starfa mann sem ég taldi ákaflega hæfileikaríkan til að reka fyrirtækið með mér, og það gekk vel fyrsta árið eða svo. Þá tók framtíðarsýn okkar ólíka stefnu sem leiddi á endanum til ósættis. Stjórn fyrirtækisins tók afstöðu með honum. Þannig að þrítugur var ég settur af. Og það með mjög áberandi hætti. Allt það sem ég hafði beint kröftunum að því að byggja upp sem fullorðinn maður var farið, og það nísti inn að beini.

Ég vissi hreint ekki hvað ég átti að gera í nokkra mánuði. Mér fannst ég hafa brugðist fyrri kynslóð frumkvöðla – að ég hefði misst kyndilinn sem mér var færður. Ég fór á fund David Packard og Bob Noyce og reyndi að biðja þá afsökunar á að hafa mistekist svona hrapalega. Ég var opinberlega misheppnaður og ég hugsaði jafnvel um að flýja úr dalnum. En ég tók smám saman að átta mig á einu – ég hafði enn ástríðu fyrir því sem ég var að fást við. Atburðarásin hjá Apple hafði ekki breytt því neitt. Mér hafði verið hafnað, en ég var enn ástfanginn. Og ég ákvað að byrja upp á nýtt.

Ég áttaði mig ekki á því þá, en það kom í ljós að brottreksturinn frá Apple var það besta sem hefði getað hent mig. Í stað byrðanna sem fylgdu góðum árangri kom léttirinn af því að vera byrjandi á ný, ekki jafn viss í minni sök og áður. Þetta frelsi leiddi til einhvers frjóasta tímabils lífs míns.

Á næstu fimm árum stofnaði ég fyrirtæki sem hét NeXT, annað sem heitir Pixar og varð ástfanginn af ótrúlegri konu sem varð síðar eiginkona mín. Pixar framleiddi heimsins fyrstu tölvugerðu teiknimynd, Toy Story, og er í dag öflugasti teiknimyndaframleiðandi veraldar. Merkileg atburðarás varð til þess að Apple keypti NeXT, ég fór aftur til Apple og tæknin sem við þróuðum hjá NeXT er hjartað í endurreisn Apple. Og við Laurene eigum saman yndislega fjölskyldu.

Ég er nokkuð sannfærður um að ekkert af þessu hefði gerst ef ég hefði ekki verið rekinn frá Apple. Þetta var ekki bragðgott meðal, en það virðist vera að sjúklingurinn hafi þurft á því að halda. Stundum slær lífið mann í höfuðið með múrsteini. Ekki missa trúna. Ég er sannfærður um að það eina sem hélt mér gangandi var ástríðan fyrir því sem ég fékkst við. Maður verður að finna þessa ástríðu. Þetta gildir jafnt um lífið sem lífsförunautana. Vinnan er stór hluti af lífinu og eina leiðin til að vera virkilega ánægður er finnast maður vera að vinna framúrskarandi vinnu. Og leiðin til að vinna framúrskarandi vinnu er að hafa ástríðu fyrir því sem maður er að gera. Ef þú hefur ekki fundið hana ennþá, haltu áfram að leita. Ekki sætta þig við minna. Eins og með önnur hjartans mál, veistu þegar það rétta er fundið. Og, eins og öll góð sambönd, batnar það bara með árunum. Haldu áfram að leita þar til þú hefur fundið þína ástríðu. Ekki sætta þig við minna.

Þriðja sagan er um dauðann.

Þegar ég var 17 ára, las ég tilvitnun sem var eitthvað á þessa leið: “Ef þú verð hverjum degi eins og hann væri þinn síðasti, muntu á endanum hafa rétt fyrir þér.” Þetta hafði áhrif á mig, og síðan þá, síðustu 33 ár, hef ég litið í spegilinn á hverjum morgni og spurt sjálfan mig: “Ef dagurinn í dag væri síðasti dagur lífs míns, myndi mig langa að gera það sem ég er að fara að gera í dag?” Og í hvert skipti sem svarið hefur verið “Nei” of marga daga í röð, veit ég að ég þarf að breyta einhverju.

Hafandi í huga að innan skamms muni ég deyja er mikilvægasta tækið sem ég hef fundið til að hjálpa mér við að taka stóru ákvarðanirnar á lífsleiðinni. Vegna þess að næstum allt – allar væntingar, allt stolt, allur ótti við niðurlæginguna sem felst í mistökum – allt þetta bliknar í samanburði við dauðann og eftir stendur það sem raunverulega skiptir máli. Hafandi í huga að innan skamms muni maður deyja er besta aðferðin sem ég kann til að forðast þá hugsanavillu að maður hafi einhverju að tapa. Þú ert þegar nakinn. Það er ástæðulaust að fylgja ekki draumum sínum eftir.

Fyrir um það bil ári síðan var ég greindur með krabbamein. Ég fór í rannsókn klukkan hálf átta um morguninn og hún sýndi svo ekki var um að villast æxli í brisinu. Ég vissi ekki einu sinni hvað bris var. Læknarnir sögðu mér að þetta væri nær örugglega ólæknandi mein og að ég mætti búast við því að eiga þrjá til sex mánuði ólifaða. Læknirinn ráðlagði mér að fara heim og koma mínum málum í farveg, sem þýðir á læknamáli að maður eigi að búa sig undir dauðann. Það þýðir að reyna að segja börnunum þínum á nokkrum mánuðum allt það sem þú hélst að þú hefðir næstu 10 ár til að segja þeim. Það þýðir að ganga þannig um hnútana að fráfall þitt sé eins fyrirhafnarlítið og mögulegt er fyrir fjölskylduna. Það þýðir að kveðja fólkið sitt.

Þennan dag lifði ég við þessa greiningu. Um kvöldið fór ég í magaspeglun, þar sem þeir tróðu slöngu niður hálsinn á mér, í gegnum magann, alla leið niður í garnirnar, stungu nál í brisið og náðu nokkrum frumum úr æxlinu. Ég var í lyfjamóki, en eiginkona mín, sem var með mér á staðnum sagði að þegar læknarnir skoðuðu frumurnar í smásjá fóru þeir að gráta þar sem í ljós kom að þetta var mjög sjaldgæf gerð krabbameins í brisi sem unnt er að lækna með skurðaðgerð. Ég fór í þessa skurðaðgerð og nú er allt í góðu lagi.

Þetta er það næsta sem ég hef komist því að standa frammi fyrir dauðanum, og ég vona að þetta sé það næsta sem ég kemst því í nokkra áratugi til viðbótar. Eftir þessa upplifun get ég þó sagt ykkur af heldur meiri sannfæringu en þegar dauðinn var fyrir mér aðeins gagnlegt, en fjarlægt hugtak:

Engan langar til að deyja. Jafnvel fólk sem vill fara til himna vill ekki deyja til að komast þangað. Og samt er dauðinn það sem bíður okkar allra. Enginn hefur nokkru sinni sloppið við hann. Og þannig á það líka að vera, vegna þess að Dauðinn er líklega besta uppfinning Lífsins. Hann er það sem drífur áfram þróun Lífsins. Hann grisjar úr það gamla og býr til rými fyrir það nýja. Núna eruð þið það nýja, en einn daginn eftir ekki svo ýkja langan tíma, verðið þið smám saman það gamla og verðið grisjuð úr. Þið fyrirgefið dramatíkina, en svona er þetta.

Þið hafið takmarkaðan tíma. Ekki sóa honum í að lifa lífi einhvers annars. Ekki festast í viðjum einhverra kredda – að lifa lífinu með hliðsjón af því sem öðru fólki finnst. Ekki láta háværar skoðanir annarra yfirgnæfa ykkar innri rödd. Og mikilvægast af öllu, hafið kjark til að fylgja því sem hjartað og brjóstvitið segir ykkur. Einhvern veginn vita þau hvað þið raunverulega viljið. Allt annað er aukaatriði.

Þegar ég var ungur var gefið út magnað rit sem nefndist The Whole Earth Catalog. Þetta var ein af biblíum minnar kynslóðar. Upphafsmaðurinn var náungi hér í nágrenninu, í Menlo Park, að nafni Stewart Brand. Ljóðræn nálgun hans gaf ritinu líf. Þetta var í lok 7. áratugarins, fyrir tíma einkatölva og umbrotsforrita. Ritið var því allt unnið með ritvélum, skærum og Polaroid myndavélum. Þetta var eins konar Google í pappírsformi, 35 árum áður en Google kom til sögunnar: unnið af hugsjón og stútfullt af frábærum upplýsingum, viðhorfum og hugmyndum.

Stewart og hans fólk gáfu út nokkur tölublöð af The Whole Earth Catalog. Þegar það hafði runnið sitt skeið á enda gáfu þeir út sérstakt lokatölublað. Þetta var um miðjan 8. áratuginn og ég var á ykkar aldri. Á baksíðu síðasta tölublaðsins var ljósmynd af sveitavegi snemma morguns, sveitavegi eins og þeim sem maður gæti farið um á puttaferðalagi ef maður væri í ævintýrahug. Undir myndinni stóð: “Verið hungruð. Verið flón.” (“Stay hungry. Stay foolish.”) Þetta voru þeirra lokaorð þegar þau kvöddu. Verið hungruð. Verið flón. Og þetta er það sem ég hef alltaf óskað sjálfum mér. Og núna, þegar þið útskrifist, óska ég ykkur þess sama.

Verið hungruð. Verið flón.

Takk fyrir kærlega.

Hér má svo horfa á ræðuna í flutningi Jobs:

Og hér má svo nálgast upprunalega enska textann.

Tekjuskattur meðal-Jóns: Sundurliðaður reikningur
Nú er að hefjast árleg umræða um fjárlög næsta árs. Þá koma fram ýmsar mis-gáfulegar hugmyndir um tekjuöflun og niðurskurð, en flest eigum við svolítið erfitt með að átta okkur á öllum þessum tölum. 600 milljarðar króna eru ekki upphæð sem við tengjum auðveldlega við.

Í morgunútvarpinu á Rás2 í morgun gerði ég tilraun til að koma fjármálum ríkisins í persónulegara samhengi og stærðir sem fólk á auðveldara með að skilja og ræða þar með á skynsamlegum nótum.

Hugmyndin er einföld. Að setja tekjuskattinn okkar og sundurliðun hans fram eins og reikning fyrir hverri annari þjónustu sem við erum vön að kaupa:

Smellið á myndina til að sjá allan reikninginn

Viðtakandi þessa reiknings er “meðal”-Jón. Hann hefur 438 þúsund krónur í heildarlaun á mánuði (þetta er skv. skýrslu Hagstofunnar um laun á almennum vinnumarkaði 2010). Jón býr í Reykjavík og borgaði því 13,03% í útsvar. Alls greiðir Jón þá rétt rúmlega 1.500 þúsund í tekjuskatt (að útsvari meðtöldu).

Þessu deilum við svo hlutfallslega niður í sömu hlutföllum og ríkisútgjöldin deilast niður skv. nýútkomnum Ríkisreikningi 2010 og þannig fáum við upphæðina á einstökum liðum á reikningnum hans Jóns.

Það er rétt að taka fram að (skv. upplýsingum í sama Ríkisreikningi, sjá bls. 10) telur tekjuskattur einstaklinga aðeins tæp 20% af heildartekjum ríkisins og við borgum því meira fyrir þessa þjónustu í gegnum aðra skatta og gjöld s.s. virðisaukaskatt, fjármagnstekjuskatt, tekjuskatt fyrirtækja, tryggingagjald o.s.frv. Allt fer þetta þó í sömu hítina (og úr henni) og því ekki ósanngjarnt að segja að svona skiptist sú upphæð sem við vorum rukkuð um á álagningarseðlinum fyrir nokkrum dögum síðan.

Það er rétt að taka fram að þetta er auðvitað mest til gamans gert og ber því ekki að taka of alvarlega. Öll gagnrýni og pælingar eru þó auðvitað velkomin.

Bensínverð: Samsetning
Viðbót 6. febrúar, 2012: Þessum gögnum er nu viðhaldið mánaðarlega á DataMarket.

Uppfært 4. ágúst, 2011: Bætti við mynd af hlutfallslegri þróun.

Bensínverð var umræðuefni í vikulegu spjalli mínu í Morgunútvarpinu í morgun. Meðal þess sem var til umræðu var samsetning á verði á lítra af bensíni.

Myndin hér að neðan sýnir samsetningu á bensínverði og þróun hennar frá því í ágúst 2007 til ágúst 2011:

Í stuttu máli fær Ríkið í sinn hlut 115,48 kr af lítranum (virðisaukaskattur, almennt og sérstakt bensíngjald og kolefnisgjald). Þetta nemur u.þ.b. 47,5% af heildarverðinu. Líklegt innkaupaverð (reiknað útfrá heildsöluverði á blýlausu bensíni í Bandaríkjunum) er 92,45 kr eða u.þ.b. 38,1% og álagning olíufélagsins, flutningar o.fl. 34,57 kr eða um 14,2%.

Hlutfallslega skiptingu og þróun á henni má annars sjá á þessari mynd:

Fyrir þá sem hafa áhuga á að kafa í útreikningana og leita í upprunalegar heimildir má nálgast gögnin á bakvið myndina í þessu Excel-skjali. Gagnrýni er velkomin!

Sjá einnig umræðu á Facebook-síðu DataMarket.

E.S. Í spjallinu í morgunútvarpinu fór ég því miður með lítillega rangar tölur sem gerðu það að verkum að hlutur ríkisins var sagður hærri en raunin er og hlutur olíufélaganna (flutningar, tryggingar, álagning) minni. Biðst velvirðingar á því. Kennir manni að liggja ekki yfir útreikningum langt fram á nótt! Annað sem sagt var stendur óhaggað.

Menntunarstig Íslendinga – erum við best eða verst í heimi?
Ég sá á Facebook í dag að margir voru að vitna í aðsenda grein í Fréttablaðinu sem í stuttu máli gengur út á það að menntunarstig Íslendinga sé með því versta sem gerist.

Lykilsetning í greininni er eftirfarandi:

Um helmingur Íslendinga lýkur þannig engu framhaldsnámi eftir grunnskólanám og af þeim sem hætta í framhaldsskólanámi gera það flestir eftir aðeins eitt til tvö ár. Helmingur Íslendinga mun því ekki stunda neitt frekara skólanám eftir u.þ.b. 16-17 ára aldur sem er allt annað og verra hlutfall en í helstu löndum okkar heimsálfu.

Það ber svo mikið á milli fullyrðinga á borð við “menntaðasta þjóð í heimi” og “nánast það lakasta sem þekkist á Vesturlöndum” að mig renndi í grun að kannski væri raunveruleikinn ekki svart-/hvítur, heldur meira svona grár (eins og oft vill verða). Ég ákvað að kafa aðeins í þetta.

Sitjandi á einum stærsta gagnabanka opinberrar tölfræði sem til er, eru heimatökin hæg fyrir mig. Hér eru því nokkrir listar sem ég gat grafið upp í fljótu bragði og allir segja eitthvað um menntun á Íslandi í samanburði við aðarar þjóðir:

Þátttaka í námi við lok skyldunámsaldurs (91,4%, 20. sæti í Evrópu)

Þátttaka í námi 2 árum eftir að skyldunámi lýkur (75,3%, 26. sæti í Evrópu)

Hlutfall fólks á aldrinum 15-24 ára sem er í námi (65,8%, 8. sæti í Evrópu)

Hlutfall fólks á aldrinum 20-29 ára sem útskrifast úr háskóla af efri námsstigum (háskólanám, starfsgreinanám og sambærilegt) ár hvert (7,99%, 10. sæti í Evrópu)

Hlutfall landsmanna sem stunda nám eða starfsþjálfun (34,8%, 3. sæti í Evrópu)

Fljótt á litið styður þetta hvorugan pólinn. Og það er reyndar venjan þegar svona fullyrðingum er slengt fram. Við erum bara “eitthvað svona meðal” í þessu, eins og reyndar í flestu öðru.

Að sjálfsögðu eigum við að gera sem best í að efla menntun, en þarna dregur greinarhöfundur fram einn af ótal mælikvörðum á menntunarstig og alhæfir útfrá honum.

Eigum við ekki að hætta að halda því fram að við séum alltaf annað hvort best eða verst í heimi í öllu og draga svo upp valda mælikvarða máli okkar til stuðnings?