Feeds:
Posts
Comments

Archive for the ‘Næsta Ísland’ Category

Ég lauk nýlega við lestur bókarinnar The Information Diet eftir Clay Johnson. Útgangspunktur bókarinnar er nokkuð snjall. Þar er upplýsingavali okkar og -neyslu – fréttalestri, bókalestri, tölvupósti, samfélagsmiðlum, sjónvarpi og neyslu á öðrum fjölmiðlum – líkt saman við fæðuval okkar og -neyslu. Þar eru að auki færð fyrir því sterk rök að upplýsingaæði okkar flestra [...]

Read Full Post »

Ég hef aðeins verið að velta þessari Vaðlaheiðargangaframkvæmd fyrir mér. Eins og oft vill verða skiptast háværustu raddirnar í tvo hópa á sitthvorum enda litrófsins: Annars vegar þá sem finna framkvæmdinni allt til foráttu og hins vegar þá sem vilja keyra verkið í gegn nánast án frekari umræðu eða umhugsunar. Ég settist þess vegna aðeins [...]

Read Full Post »

Samkvæmt lögum um íslensk einkahlutafélög skal félagið sjálft halda hlutaskrá (stundum kölluð hluthafaskrá eða hluthafalisti). Kveðið er á um þetta í 19. grein laganna, en hún hljóðar svo: 19. gr. Þegar einkahlutafélag hefur verið stofnað skal stjórn þess þegar í stað gera hlutaskrá. Heimilt er að hafa skrána í tryggu lausblaða- eða spjaldaformi eða tölvuskrá [...]

Read Full Post »

Í dag var haldinn á Grand Hótel viðburðurinn “Reynslusögur íslenskra frumkvöðla” á Grand hótel. Viðburðurinn var haldinn á vegum Frumkvöðlar.is, frábæru framtaki á vegum hans Hauks hjá Búngaló. Ég var meðal þeirra sem var fenginn til að deila minni reynslu af sprotapoti þarna. Hér má sjá glærurnar úr fyrirlestrinum mínum “9 hlutir sem enginn sagði [...]

Read Full Post »

Í gær hringdi í mig fréttamaður frá Stöð 2. Hann hafði haft af því ávæning að DataMarket og fleiri sprotafyrirtæki væru “á leið úr landi”. Ég útskýrði fyrir honum að hvað okkur varðaði væri fyrirtækið einfaldlega komið á þann stað í lífinu að nú þyrfti að leggja áherslu á að ná erlendum viðskiptavinum og jafnvel [...]

Read Full Post »

Eftir því sem líður frá bankahruninu er að koma betur og betur í ljós hversu stálheppin við höfum verið með margt í þessari atburðarás. Það merkilega er samt að fæst af þessu voru ákvarðanir sem teknar voru af stjórnvöldum á hverjum tíma. Þetta voru heldur ekki tillögur stjórnarandstöðu eða fólksins í landinu. Þetta voru satt [...]

Read Full Post »

Það kann að virðast fráleitt þegar horft er á venjulegan fréttatíma, en við lifum á tímum mestu velmegunar, öryggis og friðar sem mannkynið hefur nokkurntíman upplifað. Fólk lifir lengur, minna hlutfall mannkyns líður skort og minni líkur eru á að vera myrtur af náunganum eða drepinn í stríði en nokkru sinni fyrr. Okkar helstu vandamál [...]

Read Full Post »

“Crash course” örfyrirlestrarnir fóru eins og eldur um sinu á netinu í fyrra. Þar tekur hagfræðispekúlantinn Chris Martenson fyrir grundvallaratriði í efnahagskerfi heimsins, hvenig það er uppbyggt og hvers vegna hann telur að við stöndum frammi fyrir stórum breytingum á næstu 20 árum. Fyrirlestraröðina og nánari upplýsingar um Chris má finna á: ChrisMartenson.com Chris er [...]

Read Full Post »

Ég hef gaman af samsæriskenningum og þessa dagana er enginn skortur á þeim. Allt eftir því hvernig hugur manna hallast virðist til dæmis hægt að kenna Davíð Oddssyni, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, Evrópusambandinu eða nú síðast Magma Enegry um nær allt sem aflaga fer á Íslandi. Ýmislegt hefur jú dunið yfir okkur og margt af því er gríðarlega [...]

Read Full Post »

Í vikunni opnuðum við hjá DataMarket almennan aðgang að gagnatorginu okkar. Ég ætla að skrifa meira um það á persónulegu nótunum fljótlega, en læt nægja í bili afrit af tilkynningunni sem við sendum áskrifendum að fréttabréfinu okkar í gær (þið getið gerst áskrifendur hér). Kæri áhugamaður um DataMarket, Miðvikudagurinn 12. maí var stór dagur fyrir [...]

Read Full Post »

Older Posts »

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.