Fyrr í kvöld var sett í loftið gagnvirk fréttaskýring um Icesave skudbindingarnar á mbl.is. Þetta er reiknivél þar sem lesa má skýringar við helstu álitaefni og óvissuþætti í samningnum og sjá hvaða áhrif breyttar forsendur hafa á skuldbindinguna sem ríkið tekst á hendur með samningnum, endurheimtur eigna og greiðsludreifinguna svo eitthvað sé nefnt.
Reiknirinn er samstarfsverkefni DataMarket (sem ég rek ásamt litlum hópi snillinga) og mbl.is. Smellið á myndina til að skoða reikninn:
Ég er ekki síður stoltur af þeim skýringum sem settar eru fram með forsendunum, en sjálfum reikninum. Sérstaklega held ég að okkur hafi tekist að koma ágreiningnum um forgang krafna í skiljanlegan búning með þessari kynningu sem birt er í skýringum við þann lið reiknisins:
Ég vona að reiknirinn reynist hjálplegur við að skilja þetta stóra og flókna mál og mynda sér skoðun á því. Gagnrýni er að sjálfsögðu velkomin.
Sæll Hjalli.
Nei, gagnrýni færðu ekki nema að þetta er hvort tveggja glæsilegt, bæði reiknirinn og útskýringar á mismunandi niðurstöðum leiða til að innheimta kröfur.
kveðja, Sveinn Ólafsson
Blússandi snilld.
Eina sem ég hefði etv viljað sjá væri sliderar fyrir tölur og prósentur frekar en innsláttur.
Eitthvað svona http://www.filamentgroup.com/lab/update_jquery_ui_16_slider_from_a_select_element/
Væri líklega til þess að fólk leiki sér frekar með tölurnar án þess að þurfa að grípa í lyklaborðið.
Sorrý, var bara að sjá takkana. Spoke too soon