Nýsköpun í Silfri Egils

Ég fékk tækifæri til að koma að nokkrum orðum um nýsköpun og uppbyggingu fjölbreytts atvinnulífs í Silfri Egils í dag.

Hér að neðan er upptaka af spjallinu.

P.S. Ég vona að RÚV sjái í gegnum fingur sér með að það er klárlega brot á höfundarrétti að setja efni frá þeim á YouTube. Það er bara ekki alveg nógu aðgengilegt að vísa á efni á þeirra eigin vef: Upptökur af Silfri dagsins á vef RÚV.

Tagged , ,

17 thoughts on “Nýsköpun í Silfri Egils

  1. Þú stóðst þig glæsilega.

  2. Tómasha says:

    Bara alltof stutt! Við þurfum að heyra meira um nýsköpun og þau skilaboð sem þú varst með í dag. Þetta eru ákaflega mikilvægt skilaboð þessa dagana.

  3. Finnur says:

    Flott. Held samt að einhyrningahorn séu málið…

  4. Þetta var reyndar mjög gott hjá þér :)

    d.

  5. Stefán says:

    innihald / tíma = nýtt met !

  6. hjalli says:

    Allir: Takk

    Stefán: Já, ég flutti svo að segja sama boðskap á hálftíma á föstudaginn var og fannst það m.a.s. of stutt :)

  7. Spurning um að texta þetta og setja inn með enskum fyrirsögnum, ekki slæmt að hafa svona revolutionary speach á youtube fyrir erlenda gesti og áhugafólk.
    4 mínútur af frábæru efni, þetta er eins og lyfturæða ( http://tinyurl.com/2q4hxu ) Íslands fyrir erlenda fjárfesta.

  8. Geir says:

    “Tölvusérfræðingur” er ágætur titill við svona tækifæri. “Tölvukall” hefur ekki jafn mikið gravitas.

  9. hjalli says:

    Bárður: Ég verð bara að taka þetta á ensku við tækifæri :)

    Geir: Ég fékk minnstu að ráða um titilinn. Sennilega ágætt, hefði líklega valið “nörd” ef ég hefði fengið að ráða.

  10. Stígur says:

    Heyr heyr, nú ertu í essinu þínu :)

    Það kemur eitthvað flott út úr þessu öllu saman, er viss um það.

    Kv. stígur

  11. Kristín Hildur says:

    Flott viðtal.
    Alveg sammála þessu með innihald/tími= nýtt met !!

    Egill verður að gefa þér betri tíma í þættinu aftur fljótlega svo hægt sé að fara í saumana á þessu, t.d. nefna hvaða aðgerðir sé hægt að gera osfrv.

    Áfram með kraftinn!!!

  12. Elvar Geir says:

    Frábært Hjalli. Ég var hættur að kunna að vera jákvæður. Þetta var spark í rassinn. Takk!

  13. Ólöf frænka says:

    Frábært Hjálmar!
    Þetta er rétti andinn og sanni andinn í þessu krepputali öllu.
    Vonandi kemurðu bara fljótlega aftur í Silfrið og færð að tjá þig enn frekar.
    Knús

  14. Hulda says:

    Frábært og nauðsynlegt innlegg í umræðuna!
    Hvernig væri nú ef ríkið legði af eins og tvö ráðuneyti og stofnaði fyrir peninginn markaðs og auglýsingasetur fyrir sprotafyrirtæki. Það er hægt að ráða allt besta fólkið úr bönkunum og bjóða ókeypis markaðsgreiningar og auglýsingahönnun.
    Íslendingar eiga heimsmet í ráðherrafjölda (á höfðatölu) og ættu að lifa fækkunina af.

  15. Sveinn T says:

    Flott viðtal Hjalli. Varðandi on-demand aðgengi að RUV þá er það afleitt á http://www.ruv.is en nokkuð gott á Sjónvarpi Símans :) – þeir ættu náttúrulega að nýta sér YouTube sjálfir í stað þess að hada úti þessum vef.

    Ef ekki hefði verið “implied” ríkisábyrgð á bönkunum (sem síðan var fallið frá) hefðu þeir ekki vaxið svona ört og sogað mest allt (fjármagn, vinnuafl etc.) til sín. Lærdómurinn er kannski sá að þar sem ríkið kemur að með niðurgreiðslu, ábyrgð etc. verður þróun ekki í takt við aðstæður. Því sé best að halda sig fjarri kæfandi faðmlagi ríkisins.

  16. [...] Helgasonar að nokkrir bloggarar eru að bera til baka þá fullyrðingu Kjartans Pierre, sem ég hafði óbeint eftir í Silfri Egils um daginn að hlutfall CCP í útflutningi sé svipað og [...]

  17. [...] Ég hef verið að vinna í tveimur verkefnum sem þetta hefur bein áhrif á. Nýja fyrirtækið mitt – DataMarket – mun reyndar ekki þurfa að sækja sér erlent fjármagn fyrr en líður á næsta ár, en ég óttast mjög skaðsemi þessa hringlandaháttar þá ef ekki verður búið að gerbreyta hér stjórn og skipulagi. Ég mun þurfa að íhuga mjög alvarlega að setja það upp sem erlent félag – og mig sem langar ekkert meira en að hjálpa til við að moka. [...]

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.