Á sunnudaginn var fékk ég tækifæri til þess að kynna hugmyndir okkar DataMarket fólks um gögn og gegnsæi í Silfri Egils.

Viðbrögðin hafa verið stórgóð og gaman að þetta virðist hafa fallið í góðan jarðveg. Upptöku af innlegginu má finna hér að neðan.

Því miður tapast talsvert við það minnka vídeóið svona niður, en frásögnin vegur það upp að einhverju leiti.

Gögnin sem fram komu í kynningunni verða öll fáanleg á Gagnatorgi um íslenskan efnahag, þegar við hleypum honum af stokkunum. Á vef DataMarket má skrá sig til að fá tilkynningu þegar gagnatorgið lítur dagsins ljós.

Loks má geta þess að Háskóli Íslands hefur boðið mér að flytja erindi af svipuðum toga næstkomandi mánudag. Þá gefst tími til að fara heldur dýpra í málin og vonandi líka fyrir einhverjar spurningar og svör.

Fyrirlesturinn verður öllum opinn og hefst kl. 12:30, mánudaginn 9. mars í stofu 102 á Háskólatorgi. Nánari upplýsingarArchived.