Gagnvirk útskýring
Hvernig lærir tauganet?
Í þessari grein kennir lítið tauganet sjálfu sér að spila myllu í vafranum þínum.
Myndin hér að ofan sýnir lítið tauganet í heild sinni. Þú getur fært bendilinn yfir hana til að sjá nánari upplýsingar.
Efst eru 18 inntök sem lýsa stöðunni á borðinu. Hvert inntak er 0 eða 1. Fyrir neðan eru tvö lög af taugungum (e. neuron), 64 í fyrsta laginu teiknaðir sem litlar flísar og 32 í seinna laginu teiknaðir sem hringir. Út kemur ein tala: stöðumatið. Það segir til um hversu góða netið telur stöðuna sem það er að skoða. Línurnar eru tengingar milli laga. Hverri tengingu fylgir tala sem kallast vigt og netið lærir með því að breyta vigtunum.
Stærstu gervigreindarlíkönin vinna eftir sömu lögmálum. Hver taugungur margfaldar inntök sín með innbyggðum vigtum, leggur útkomurnar saman og þjappar samtölunni á fast bil eða sveigir hana á annan hátt. Hvert lag matar það næsta þar til lokatalan kemur út. Þjálfun felst svo í því að hnika vigtunum örlítið í hvert sinn sem sú tala reynist röng.
Í slíkum netum eru milljarðar vigta, allt of margar til að nokkur hafi yfirsýn yfir þær. Í þessu neti eru 3.329 vigtir, svo hægt er að sýna hverja einustu. Dæmið sem við notum í þessari grein er mylla. Hún er svo einföld að við vitum alltaf hver besti leikurinn er og getum því prófað netið jafnóðum og það lærir.
Í upphafi eru vigtirnar valdar af handahófi og netið hefur aldrei séð viðureign. Þú getur spilað við það á borðinu hér til hægrineðst á skjánum með því að smella á reit. Borðið stýrir allri síðunni. Myndin af netinu hér að ofan og öll skrefin hér að neðan sýna stöðuna eins og hún er á þessu borði, svo hver leikur uppfærir þær allar. Tölurnar í auðu reitunum sýna hvernig netið metur hvern leik sem þú átt kost á og hringurinn merkir þann sem það myndi velja í þínum sporum eftir því sem það kann best hverju sinni. ✓ merkir svo raunverulega bestu leikina.
Þú vinnur líklega fyrstu viðureignina. Enn sem komið er kann netið bara eitt. Þegar vinningsleikur er í boði leikur það hann næstum alltaf því niðurstaðan er gefin þegar viðureign lýkur. Sigur gefur +1, sama hvað netinu fannst um leikinn. Þessi niðurstaða er það eina sem netið lærir svo af. Allt annað er ágiskun hjá óþjálfuðu neti. Það spilar þó ekki af handahófi. Upphafsvigtirnar gefa því uppáhaldsreiti og það velur þá í hvert sinn. Ef þú opnar síðuna aftur færðu annað net með aðra uppáhaldsreiti. Haltu svo áfram að spila á borðinu á meðan þú lest áfram.
Virknin
Skref 1: Það sem netið sér
Netið sér ekki × og ○, bara tölur. Níu þeirra segja í hvaða reitum sá sem lék síðast á merki og níu segja hvar mótherjinn á merki. 1 þýðir merki og 0 þýðir ekkert merki. Leiktu og sjáðu tölurnar breytast.
Netið sér borðið alltaf frá sjónarhóli þess sem lék síðast og því getur sama netið spilað bæði × og ○. Þetta er ekki knappasta leiðin til að lýsa borði. Hún er hins vegar sú læsilegasta og spilið er svo einfalt að við þurfum ekki að flækja framsetninguna til að spara pláss eða útreikninga.
Skref 2: Leikur valinn
Netið skilar einni tölu: stöðumatinu. Það segir hversu góð staða er fyrir þann sem var að leika og á að vera á bilinu −1 (öruggt tap) til +1 (öruggur sigur). Netið metur því ekki borðið eins og það er núna heldur stöðurnar sem næsti leikur gæti leitt til. Til að velja leik ímyndar það sér hvern mögulegan leik, metur stöðuna sem þá yrði uppi og velur þann sem fær hæsta stöðumatið. Tölurnar sem þú sérð á borðinu eru þetta stöðumat, grænar ef það er gott og appelsínugular ef það er slæmt. Reiturinn með hringnum er val netsins, leikurinn sem það myndi leika í þínum sporum.
Hjá óþjálfuðu neti er stöðumatið bara suð, nema á leikjum sem ljúka viðureigninni. Þar gefa reglurnar niðurstöðuna. Þrír í röð gefa +1, sama hvað netinu finnst. Þess vegna missir það sjaldan af sigri. Það getur samt gerst, því ekkert kemur í veg fyrir að stöðumat netsins sjálfs fari yfir +1. Allt annað þarf það að uppgötva, jafnvel að verjast þegar mótherjinn er við það að ná þremur í röð.
Skref 3: Stakur taugungur
Milli inntaksins og úttaksins eru tvö lög af taugungum. Fylgjum núna þeim leik sem netið myndi leika í þínum sporum í gegnum lögin. Bentu á annan auðan reit á borðinu eða smelltu á reit á litla borðinu í spjaldinu hér að neðan til að fylgja þeim leik í staðinn. Þú getur líka prófað stöðu þar sem eitthvað er í húfi:
Taugungur í fyrsta laginu hefur eina vigt fyrir hvert inntakanna 18. Hér að neðan eru vigtirnar teiknaðar sem tvö lítil borð, annað fyrir merki þess sem lék og hitt fyrir merki mótherjans. Græn vigt er jákvæð. Merki í þeim reit ýtir úttaki taugungsins upp. Appelsínugul vigt ýtir því niður. Reitur án merkis telst 0, svo aðeins vigtirnar undir merkjum skipta máli.
Taugungurinn leggur saman vigtirnar undir merkjunum og bætir við fastri tölu sem hann á sjálfur og kallast hliðrun (e. bias). Hún ræður því hversu auðvelt er að kveikja á taugungnum. Hliðranir byrja í 0 og bæta því engu við í óþjálfuðu neti. Þjálfunin stillir þær um leið og vigtirnar.
Að lokum þjappar taugungurinn samtölunni á bilið −1 til +1 eftir ferlinum á spjaldinu hér að ofan. Samtala nálægt 0 fer nánast óbreytt í gegn. Stór samtala, jákvæð eða neikvæð, flest út í átt að +1 eða −1. Því breyta fleiri vísbendingar í sömu átt sífellt minna.
En af hverju þessi þjöppun? Án hennar gæti hvert merki aðeins ýtt stöðumatinu upp eða niður um fasta stærð, sama hvar hin merkin eru. Í myllu ræðst vægi merkis þó af því hvað er í kringum það. Eitt merki mótherjans í horni er meinlaust. Bætist annað við í sömu línu og þriðji reiturinn er auður eru þau saman orðin ógn sem verður að verjast. Parið skiptir miklu meira máli en merkin tvö hvort um sig og einföld samtala getur ekki tjáð það. Fleiri lög hjálpa heldur ekki ein og sér. Samtala af samtölum er áfram ein stór samtala, sama hversu mörg lögin eru.
Með þjöppuninni virkar hver taugungur líkt og rofi. Undir ákveðinni samtölu helst hann nálægt −1 og yfir henni nálægt +1. Aðeins þar á milli breytist úttakið smám saman. Hliðrunin ræður hvar rofinn smellur og til þess er hún. Tökum taugung með jákvæðar vigtir á tveimur reitum. Án hliðrunar myndi eitt merki á öðrum hvorum reitnum duga til að kveikja á honum. Neikvæð hliðrun getur haldið aftur af honum þar til bæði eru komin. Þá svarar taugungurinn því hvort bæði séu á sínum stað, sem er spurning um samsetningu. Næsta lag leggur saman svona rofa og getur því brugðist við samsetningum mynstra en ekki bara stökum reitum. Þess vegna borgar sig að stafla lögum.
Litla flísin við hliðina á númeri taugungsins er þessi sami taugungur eins og hann birtist á myndinni af netinu, efst á síðunni og í skrefi 7. Þar eru sömu tvö vigtaborðin í smækkaðri mynd, með grænum ramma þegar úttakið er jákvætt og appelsínugulum þegar það er neikvætt. Með upphaflegu handahófsvigtunum eru flísarnar bara suð. Þjálfunin gefur þeim svo merkingu.
Skref 4: Seinna lagið
Taugungarnir 32 í seinna laginu vinna eins, nema hvað inntök þeirra eru úttökin 64 úr fyrsta laginu en ekki staðan á borðinu. Þeir setja því saman mynstur frekar en reiti. Taugungur í fyrsta lagi getur lært að koma auga á eitthvað einfalt, til dæmis ógn á einni tiltekinni línu þar sem mótherjinn á tvö merki og þriðji reiturinn er auður. Taugungur í öðru lagi getur svo sett nokkur slík mynstur saman í „ógn á einhverri línu“, „tvær ógnir í einu“ eða gaffal sem ekki er hægt að verjast. Mér tókst ekki að fá eitt lag til að læra svona hugmyndir (sjá Of grunnt í viðaukanum). Í reynd er þjálfað net sjaldan svona snyrtilegt. Hugmynd dreifist gjarnan á marga taugunga og flestir taugungar blanda saman nokkrum hugmyndum. Á myndinni eru taugungar seinna lagsins sýndir sem litlir hringir.
Skref 5: Samtalan
Stöðumatið er vegin samtala úttakanna 32 úr öðru lagi að viðbættri hliðrun. Samtalan er ekki þjöppuð. Líta má á hana sem atkvæðagreiðslu. Atkvæði hvers taugungs er úttak hans sinnum vigtin. Jákvætt atkvæði þýðir „gott fyrir þann sem lék“ og neikvætt „slæmt“. Samtalan er stöðumatið.
Skref 6: Stöðumat hvers leiks
Hér eru allir kostirnir í stöðunni teiknaðir hlið við hlið og netið hefur metið hvern þeirra. Smelltu á einhvern þeirra til að fylgja honum í gegnum skrefin hér að ofan.
Hjá óþjálfuðu neti ræður tilviljun valinu. Það hittir samt oft á góðan leik því í mörgum stöðum eru nokkrir leikir jafngóðir. Þegar aðeins einn leikur er góður, eins og þegar þarf að verjast, er tilviljun ef hann verður fyrir valinu.
Skref 7: Netið í heild sinni
Hér er svo allt saman komið: inntökin efst, flísarnar 64 í fyrsta lagi, hringirnir 32 í öðru lagi og stöðumatið. Línurnar eru vigtirnar milli laga. Jákvæðar vigtir eru grænar, neikvæðar appelsínugular og sterkari vigtir þykkari. Færðu bendilinn yfir einhvern hluta til að sjá tölurnar.
Þjálfunin
Hingað til hafa vigtirnar verið óbreyttar. Staða borðsins fer inn, stöðumat kemur út og með handahófsvigtum er stöðumatið suð. Í þjálfun breytast vigtirnar og um það fjallar framhaldið.
Skref 8: Lært af því að spila við sjálft sig
Netinu er aldrei sýnt hvaða leikir eru góðir. Það þjálfast með því að spila við sjálft sig og eina endurgjöfin er útkoma viðureignarinnar. Niðurstaðan er metin frá sjónarhóli þess sem átti síðasta leikinn og í myllu getur sá leikur aðeins endað með sigri eða jafntefli, +1 eða 0, eins og við sáum í skrefi 2. Tap er sami sigur séður frá hinni hliðinni, svo síðasta staða þess sem tapar er −1 virði. Galdurinn er að breyta þessari einu niðurstöðu í lærdóm um hvern leik í viðureigninni.
Lykilhugmyndin er að virði stöðu ráðist af besta mögulega leik mótherjans í kjölfarið. Segjum að eftir minn leik meti netið stöðuna +0,6 fyrir mig. Nú á mótherjinn leik og sá leikur hans sem netið metur hæst fær +0,9 fyrir hann. Staða mín var því í raun −0,9 virði fyrir mig og netið var of bjartsýnt. Þá er hverri vigt hnikað örlítið í þá átt sem hefði fært stöðumatið fyrir mig nær −0,9. Útreikningur á því í hvaða átt á að hnika hverri vigt kallast afturflutningur (e. backpropagation). Skekkjan er send aftur á bak í gegnum lögin og hver vigt á leiðinni fær sinn skerf af sökinni.
Aðeins síðasti leikurinn í viðureigninni er borinn saman við það hvernig viðureignin endaði í raun. Hver leikur þar á undan er borinn saman við álit netsins sjálfs einum leik síðar. Á þúsundum viðureigna færist lærdómurinn þannig smám saman frá lokum viðureignar aftur að upphafi hennar. Þetta kallast tímamismunarnám (e. temporal-difference learning, ég fann ekkert íslenskt orð yfir þetta og tek því gjarnan við betri tillögum!) Snemma á tíunda áratugnum notaði Gerald Tesauro aðferðina til að kenna forriti sem hét TD-Gammon að spila kotru (e. backgammon) nánast á við heimsmeistara.
Að lokum þarf netið forvitni, eða könnun (e. exploration) á fagmáli. Net sem léki alltaf uppáhaldsleikinn sinn myndi aðeins læra um leiki sem því líst þegar vel á. Í þjálfun leikur það því fyrstu leiki hverrar viðureignar af handahófi. Eftir það leikur það af handahófi í öðrum hverjum leik og svo sjaldnar þar til aðeins tíundi hver leikur er af handahófi. Litla borðið við hliðina á teljaranum hér að neðan sýnir síðustu viðureign þess við sjálft sig þar sem handahófsleikirnir eru daufir.
Þjálfunin fer fram bak við tjöldin, hundruð viðureigna á sekúndu. Borðið sýnir það sem netið hefur lært hingað til. Með nokkurra hundraða viðureigna millibili prófar dómari það. Hann athugar hversu mörgum viðureignum það myndi tapa gegn öllum hugsanlegum mótherjum og hversu oft það velur rangan leik. Nánar um það í skrefi 9. Þjálfaðu netið með hnappinum hér að neðan og byrjaðu á 500 viðureignum.
Línuritið sýnir hversu mörgum viðureignum netið myndi tapa gegn öllum hugsanlegum mótherjum. Spilaðu nú aftur við það eða .
Það eina sem netið fékk í vöggugjöf var að þekkja öruggan sigurleik þegar hann er í boði. Fyrst lærir það að verjast og eftir 2.000 viðureignir verst það nánast alltaf. Þjálfaðu það áfram upp í 2.000, 5.000 og 20.000 viðureignir og prófaðu það inn á milli. Reyndu á það í þröngri stöðu: . ✓ merkir bestu leikina. Á tilraunastofunni er tímalína sem sýnir hvernig stöðumat netsins á hverjum leik breyttist í þjálfuninni.
Skref 9: Dómarinn
Til að prófa netið þurfum við að vita hver réttu svörin eru og í myllu er alltaf hægt að vita það. Mylla er svo einföld að venjulegt forrit, sem lærir ekki neitt, getur rakið hvert einasta mögulegt framhald og fundið besta leikinn í hverri stöðu. Slík spil eru sögð leyst. Í myllu eru 255.168 mögulegar viðureignir og tölva getur farið yfir þær allar á sekúndubroti.
Með nokkurra hundraða viðureigna millibili er gert hlé á þjálfuninni fyrir próf í tveimur hlutum. Í fyrri hlutanum spilar netið við alla hugsanlega mótherja, bæði sem × og ○. Þetta eru um 550 til 950 ólíkar viðureignir eftir því hvernig það spilar. Tapi það engri þeirra er það ósigrandi. Í mínum keyrslum náði netið þessu fyrst eftir 5.000 til 15.000 viðureignir. Eftir það tapaði það samt af og til einni eða tveimur viðureignum á meðan það hélt áfram að stilla sig. Í kringum 20.000 viðureignir verður slíkt sjaldgæft.
Seinni hlutinn er strangari. Þar er farið yfir allar 4.520 stöðurnar sem geta komið upp í viðureign og þær taldar þar sem netið velur ekki besta leik. Jafnvel óþjálfað net velur rétt í um fjórum af hverjum fimm stöðum. Í helmingi allra staðna er sigur í boði í næsta leik og þá gefa reglurnar niðurstöðuna. Í mörgum hinna eru nokkrir leikir jafngóðir. Þar sem enginn sigur er í boði stendur netið sig ekki betur en ef það veldi af handahófi. Stöðurnar sem það klikkar á eru einmitt þær sem skipta máli, þar sem þarf að verjast, forðast gildru eða sigra. Að missa af þvinguðum sigri telst mistök jafnvel þótt viðureignin endi með jafntefli.
Hvernig getur ósigrandi net þá enn valið rangan leik? Seinni hlutinn prófar það nefnilega líka í stöðum sem það myndi aldrei lenda í sjálft. Allt frá fyrsta leik, sama hvað mótherjinn gerir, stýrir netið hverri viðureign inn í aðeins um 500 af stöðunum 4.520 og í þeim tapar það aldrei. Sé því hins vegar hent inn í miðja viðureign sem einhver annar hóf getur það enn farið út af sporinu. Þrautahnapparnir gera einmitt það og geta því komið því í opna skjöldu. Flest þessara mistaka eru meinlaus. Þá sættir netið sig við jafntefli þar sem sigur var í boði.
Síðasta línuritið sýnir hversu mikið vigtirnar eru enn að breytast. Þær sveiflast mikið í fyrstu og róast svo, bæði vegna þess að minna er eftir að leiðrétta og vegna þess að þjálfunin hnikar þeim sífellt minna í hvert sinn.
Samantekt
Þetta er aðferðin eins og hún leggur sig. Átján tölur lýsa borðinu. Taugungar vega þær, leggja saman og þjappa útkomunni. Seinna lagið setur saman það sem það fyrra fann. Út kemur ein tala og netið leikur þann leik sem fær besta stöðumatið. Síðan spilar netið við sjálft sig, viðureign eftir viðureign. Eftir hvern leik hnikar það vigtunum í átt að eigin stöðumati einum leik síðar og úrslit viðureignarinnar eru eina fasta viðmiðið. Ekkert í netinu veit hvað telst góður leikur að öðru leyti. Eftir 10.000 til 20.000 viðureignir getur ekkert unnið það, ef frá eru talin stöku mistök.
Gervigreindarlíkönin sem eru í fréttum eru smíðuð á sama hátt, en hundrað milljón sinnum stærri og þjálfuð að mestu á texta í stað leikja. Viðaukinn hér að neðan gengur lengra. Þar er tilraunastofa til að prófa sig áfram og útskýrt hvernig þetta net bregst, hvað ræður lögun nets og hvernig hugmyndirnar nýtast í mállíkönum.
Ég setti þetta saman til að skilja tauganet betur sjálfur, alveg frá grunni. Vonandi hjálpar það fleirum.
Viðauki: gengið lengra
Tilraunastofan
Allt á einum stað, ásamt stillingunum. Þegar stillingu er breytt hefst þjálfun nýs nets. Fyrri keyrslan helst á línuritunum sem brotalína. Horfa hægir á þjálfuninni svo þú getir fylgst með viðureignunum.
Þrjár misheppnaðar leiðir
Uppsetningin sem er þjálfuð hér að ofan var ekki sú fyrsta sem ég prófaði. Þessar þrjár fóru allar úrskeiðis á meðan greinin var í smíðum og hver þeirra segir eitthvað um tauganet almennt. Þú getur endurtekið þær allar á tilraunastofunni hér að ofan.
1. Of feimið
Með fáum handahófsleikjum skoðar netið aðeins leiki sem því líst þegar vel á. Það lærir aldrei að leikir sem það metur lágt gætu verið góðir og um helmingur allra staðna kemur aldrei upp. Það staðnar löngu áður en það nær fullum tökum á spilinu.
2. Of grunnt
Með eitt lag af taugungum í stað tveggja staðnar netið þegar um 3% leikja þess eru enn rangir og það heldur áfram að tapa nokkrum viðureignum. Til að ganga úr skugga um að vandinn væri lögun netsins en ekki þjálfunin sleppti ég viðureignunum við sjálft sig og kenndi því beint besta leikinn í hverri stöðu. Eitt lag gat samt ekki lært þá alla, sama hvaða stærð ég prófaði. Tvö lög lærðu þá á nokkrum mínútum. Þetta er sem sagt ekki bara spurning um stærð. Eitt lag með 170 taugungum, sem hefur jafnmargar vigtir og tveggja laga netið, tapaði enn 23 viðureignum eftir 20.000 viðureigna þjálfun. Eitt lag ræður illa við að setja saman mynstur. „Ógn á einhverri línu“ eða „tvær ógnir í einu“ eru samsetningar einfaldari mynstra og seinna lagið er einmitt til þess.
3. Gleymni
Þegar handahófsleikjum fækkar sér netið aðallega skynsamlegar viðureignir og gleymir smám saman skrýtnu stöðunum sem það lenti í snemma í þjálfuninni. Lausnin er að gefa netinu minni. Í þjálfun geymir það síðustu 50.000 stöður sem það hefur séð og rifjar upp fjórar þeirra af handahófi eftir hvern leik. DeepMind notaði sama bragð árið 2015 til að kenna einni og sömu nethönnuninni að spila tugi Atari-leikja. Án minnisins lærir þetta net hægar. Löngu eftir að það verður fyrst ósigrandi heldur það líka áfram að missa tökin og tapar þá mun fleiri viðureignum en með minni.
Hvaða dýpt og breidd er rétt?
Hvert lag af taugungum (stöðumatið neðst telst ekki með) setur saman það sem lagið á undan fann. Dýptin snýst því um hversu mörg þrep af samsetningum verkefnið þarf og breiddin um hversu mörgum mynstrum hvert þrep þarf að halda utan um. Í myllu eru þrepin um það bil þrjú. Fyrst koma stakir reitir, síðan línur og ógnir og loks samsetningar ógna á borð við gaffal. Mér tókst ekki að fá eitt lag til að ná þriðja þrepinu. Tvö ná því og ég á ekki von á að þriðja lagið myndi bæta miklu við hér.
Segja má að erfiðari verkefni tvinni saman flóknari hugmyndir. Í skák geta taflmenn gert árás, árásir mynda leikfléttur á borð við leppanir og gaffla og leikfléttur mynda áætlanir. Í tungumáli mynda orð orðasambönd, orðasambönd setningar og setningar röksemdafærslu. Þess vegna eru tugir laga í netum fyrir slík verkefni.
Fræðilega á eitt lag að geta hermt eftir hverju sem er ef það er nógu breitt en það gæti þurft fáránlega marga taugunga til að gera það sem nokkur lög gera með fáum. Eftir því sem ég kemst næst er í raun engin þekkt formúla fyrir réttri lögun tauganets fyrir tiltekið verkefni. Lögunin finnst með tilraunum, svipað og mistökin þrjú hér að ofan. Lögun er prófuð, árangurinn mældur og svo er lagað til. Stærra net er heldur ekki ókeypis. Hverja vigt sem bætist við þarf að læra af dæmum, svo of stórt net þarf miklu fleiri dæmi.
Það sem taugungarnir læra
Ef þú færir bendilinn yfir flísarnar á myndinni af þjálfuðu neti sýna sumar kannski mynstur sem hægt er að lesa úr. Í einni af mínum keyrslum snerust 15 af taugungunum 64 í fyrsta lagi aðallega um miðjuna, sem kalla má sterkasta reitinn í spilinu. Meira en helmingur raðaði sér að mestu eftir heilum röðum og dálkum. Aðrir blanda nokkrum mynstrum saman í eitthvað sem erfitt er að henda reiður á. Jafnvel þeir sem sýna skýrt mynstur gefa samt aðeins vísbendingu um hvað þeir gera í raun í samspili við hina 95. Þetta gefur hugmynd um hvers vegna svo erfitt er að skilja stór net innan frá.
Hver á miðjuna?Taugungur 6. Dregst niður þegar sá sem lék á miðjuna og ýtist upp þegar mótherjinn á hana.
RaðirTaugungur 25. Efsta og neðsta röð þess sem lék ýta honum upp og miðröðin niður. Með merki mótherjans er þetta öfugt.
Erfitt að nefnaTaugungur 35. Upp þegar sá sem lék á miðjuna og mótherjinn hliðarreitina, niður í flestu öðru. Þetta er mynstur en hvað greinir það?
Gömul hugmynd
Árið 1961 setti Donald Michie saman MENACE, mylluspilara úr 304 eldspýtustokkum. Einn stokkur var fyrir hverja stöðu sem upp getur komið, fullur af lituðum perlum, einn litur fyrir hvern mögulegan leik. Til að leika dró hann perlu af handahófi úr stokknum. Eftir sigur bætti hann við perlum í litunum sem leiknir voru og eftir tap fjarlægði hann þær. MENACE lærði að spila vel, alveg án tölvu.
MENACE lagði einfaldlega allt á minnið, enda átti hver staða sinn stokk. Í tauganetinu hér er ekkert hólf fyrir hverja stöðu. Hver vigt er sameiginleg mörgum stöðum, svo það sem netið lærir af einni breytir því hvernig það metur aðrar. Það þarf að finna almennar reglur og þess vegna má beita aðferðinni á stærri og flóknari vandamál. Engin tafla gæti rúmað allar 1044 stöðurnar í skák, hvað þá í Go þar sem þær eru miklu fleiri. Samt kenndi AlphaZero sjálfu sér hvort tveggja árið 2017 með sambærilegri nálgun: viðureignir við sjálft sig, net sem metur stöður og úrslit hverrar viðureignar sem eini kennarinn. AlphaZero notaði margfalt stærra net og leitaði að auki í mögulegum leikjum.
Frá myllu til mállíkana
Grunnþættirnir hér eru þeir sömu og í gervigreindarlíkönunum sem þú notar daglega. Munurinn liggur í stærðinni og því hvaðan lærdómurinn kemur.
- Inntök. Hér eru þau 18, hvert 0 eða 1. Mállíkan breytir hverjum orðhluta í lista með nokkur þúsund tölum, svo fyrirspurn upp á nokkrar setningar verður að hundruðum þúsunda talna.
- Taugungar og lög. Sama margföldun og samlagning, með sveigju í líkingu við þjöppunina, í tugum laga hverju ofan á öðru. Ein viðbót, sem kallast athygli (e. attention), gerir hverju orði kleift að taka mið af hinum orðunum.
- Úttak. Þetta net metur hvern auðan reit og velur þann besta. Mállíkan gefur hverjum mögulegum næsta orðhluta tölu og velur einn af þeim bestu.
- Nám. Sami afturflutningur. Lærdómurinn kemur fyrst af því að spá fyrir um næsta orð í gríðarlegu magni texta og síðan, líkt og hér, af endurgjöf á heil svör.
- Vigtir. 3.329 hér, hundruð milljarða þar. Það er ein ástæða þess að enginn getur lesið flísarnar þeirra.
Ítarefni
- Grant Sanderson, Neural networks (3Blue1Brown). Myndræna kynningin sem hjálpaði mér mest.
- Richard Sutton og Andrew Barto, Reinforcement Learning: An Introduction, 2. útgáfa, 2018. Helsta kennslubókin um styrkingarnám, ókeypis á netinu. Tímamismunarnám er í 6. kafla.
- Gerald Tesauro, Temporal difference learning and TD-Gammon, Communications of the ACM, 1995.
- Donald Michie, Experiments on the mechanization of game-learning, The Computer Journal, 1963. MENACE, spilarinn úr eldspýtustokkunum.
- Volodymyr Mnih o.fl., Human-level control through deep reinforcement learning, Nature, 2015. Atari-netið og minni þess.
- David Silver o.fl., Mastering chess and shogi by self-play with a general reinforcement learning algorithm, 2017. AlphaZero.