Mynd: Danny Nicholson

Mynd: Danny Nicholson

Samt elska menn krónuna. Hvað er þetta? Eitthvað tilbrigði við Stokkhólmsheilkennið?

Og svo þetta sé nú ekki bara kvart og kvein án þess að leggja til lausnir, er best að ég vitni af hógværð í 2 árum yngri sjálfan mig:

*Þetta er mikilvægasta mál íslensks samtíma. Miklu mikilvægara en flestir gera sér grein fyrir,

[…]

Að halda – og halda fram – að aðeins ein leið sé fær og skella sjálfkrafa skollaeyrum við öllum hugmyndum um annað er barnaskapur. Möguleikarnir eru fjölmargir. Viðfangsefnið er að finna þann sem hefur fæsta galla.

Það þarf að fá bestu hagfræðinga og peningamálamenn samtímans til að vega og meta þessa kosti í opnu ferli þar sem jafnframt er lögð áhersla á að útskýra stöðuna, leiðirnar og kosti og galla hverrar um sig á einfaldan og skiljanlegan hátt fyrir almenningi. Jafnframt þarf að tryggja að öllum spurningum og ábendingum sem upp koma sé svarað skýrt og skilmerkilega og þær metnar inn í leiðirnar eftir því sem við á áður en ákvörðun er tekin.*

Af gjaldeyrishöftum, dægurþrasi og sandkassapólitík, 12. apríl 2012

* Krónan er hér í merkingunni íslenska krónan með því peningastjórnunakerfi sem komið var á laggirnar 2001 og hefur ekki verið breytt í neinum grundvallaratriðum að öðru leyti en að bæta við gjaldeyrishöftum.