Frændur okkar í Noregi settu nýjustu útgáfuna af Opera Mini farsímavafranum á markað í vikunni. Ég prófaði gripinn og verð að segja að ég er mjög hrifinn.

Meira að segja “jólatréssíður” eins og forsíða mbl.is koma bara mjög vel út á litla skjánum á Walkman símanum mínum. Það er líka mjög góður RSS lesari í Opera Mini, þannig að nú kemur maður til með að tékka á helstu bloggurunum í þessum dauðu 5 mínútum sem gefast hér og þar.

Vafrinn er hraður og snjall í því hvernig hann brýtur niður síður sem venjulega eru hannaðar fyrir miklu stærri skjái en farsímaskjáina. Einfaldleikinn er í fyrirrúmi og meira að segja uppsetningarferlið var einfalt og skiljanlegt, sem er í fyrsta sinn sem ég treysti mér til að segja það um nokkurt farsímaforrit

🙂

Maður á sjálfsagt eftir að reka sig á einhverja galla á næstu dögum, en fyrstu kynni eru ákaflega jákvæð.

Ef þið viljið prófa, þá smellið þið ykkur bara á operamini.com, sláið inn símanúmerið ykkar og fylgið leiðbeiningunum. Þetta ætti að virka á nær öllum nýrri símum (keyptum á síðustu 18-24 mánuðum).

Stærsta vandamálið í þessu er að verðskrárnar fyrir GPRS notkun bjóða ekki beinlínis upp á “casual” notkun á vefnum í farsíma.