Hæpmaskína Apple fór á fullt um helgina og í dag kynntu þeir nokkrar nýjungar.
Sjálfur var ég nokkurnveginn viss um að þeir ætluðu að kynna iPod-farsímann sem er klárlega í undirbúningi. Það má meðal annars má lesa úr splunkunýju einkaleyfi sem þeir fengu í fyrir helgina.
Ég varð því fyrir hálfgerðum vonbrigðum með fyrstu fréttir af atburðinum. Nýjar útgáfur af helstu iPod-línunum, kvikmyndir í iTunes búðina (að vísu “bara” Disney og tengd stúdíó til að byrja með, s.s. Pixar, Miramax og Touchstone) sem var nokkuð fyrirsjáanlegt og svo set-top box sem kveikti að vísu í mér. Græjan gengur undir nafninu iTV og er má lýsa sem sjónvarpsviðmóti á iTunes búðina og þá auðvitað með áherslu á myndirnar frekar en tónlistina. Jafnframt munu þeir bjóða upp á eitthvað af live efni, og gerðu þar mest úr beinum útsendingum frá öllum NFL leikjum í vetur. iTV mun verða formlega kynnt á Macworld
í janúar næstkomandi.
En stóru tíðindin fyrir okkur voru í smáa letrinu. iTunes kvikmyndaverslunin verður ALÞJÓÐLEG á næsta ári. Þetta þýðir það að við – hérna í litlu Evrópu – sem svo oft er litið framhjá, munum geta keypt Disney-myndir á iTunes á næsta ári. Ég held svei mér þá að Steve Jobs hafi fengið upp í háls af réttindamafíunni og ákveðið að breyta heiminum einu sinni enn.
Jobs hefur fyrnasterka stöðu í Disney fyrirtækinu (stjórnarmaður þar og sterkur hluthafi) og hefur vafalaust notað þá stöðu til að “liðka fyrir” samningi milli Disney og iTunes um dreifingu á heimsvísu, án allrar region-vitleysu og sérsamninga við RIAA, STEF og hvað þau heita nú öll þessi rétthafabatterí í hverju landi. Þetta á án efa eftir að skila sér ríkulega til Disney, en á sama tíma skera á nokkra liði í virðiskeðjunni sem munu auðvitað – að venju – berjast hart á móti þessuari þróun. Fordæmið mun hins vegar ryðja brautina fyrir önnur kvikmyndastúdíó og svo jafnvel tónlistarútgefendur líka inn í sama módel, bæði á iTunes og annarsstaðar.
Kominn tími til að einhver gerði eitthvað í þessu, enda er núverandi staða á birtingar- og dreifingarrétti fullkomlega úrelt. Áfram Jobs!