Tölvuheimur hætti að koma út á pappírsformi um áramótin. Ég er búinn að skrifa í blaðið meira og minna í næstum 10 ár og held mig þrátt fyrir allt við sama heygarðshornið, en vefútgáfa blaðsins⚠ var að líta dagsins ljós núna fyrir helgi og verður að mér skilst uppfærð daglega.

Fyrsti pistillinn minn⚠ birtist þar í morgun. Hann fjallar um það hvernig gögnin sem við notum eru í sífellt meiri óreiðu, en þrátt fyrir það hefur aldrei verið einfaldara að finna þau. Pistlarnir mínir verða þarna annan hvern mánudag.

Ég var svo líka í Íslandi í dag áðan – ásamt Stefáni Hrafni félaga mínum – að fjalla um skynsamlega notkun unglinga á Netinu (á mínútu 32:30 ca.) og hvernig foreldrar geta fylgst með því sem þau eru að gera – auðvitað með þeirra samþykki. Tilefnið var áhrifamikil umfjöllun í fréttaskýringaþættinum Kompási á NFS í gærkvöldi, en þar lögðu Kompásmenn gildrur fyrir nokkra barnaníðinga á Netinu.