CLD160513__DSC2211-1024x576Við erum heppin í forsetakosningunum í þetta sinn. Við höfum úr nokkrum góðum kostum að velja – og það er ekki sjálfgefið. Við skulum að fagna því sérstaklega að gott fólk gefi kost á sér til opinberra starfa fyrir okkur.

Þrátt fyrir það var ég ekki í vafa um mitt val frá þeirri stundu sem ljóst var að Andri Snær Magnason myndi gefa kost á sér til embættisins. Ástæðurnar fyrir því eru einfaldar: Andri Snær hefur skýra, skemmtilega og jákvæða framtíðarsýnArchived. Framtíðarsýn sem ég deili með honum.

Ég veit að Andri er áhugamaður um margt, en í framboði sínu til forseta hefur hann lagt áherslu á þrjú málefni öðrum fremur:

Andri Snær vill nota forsetaembættið til að vekja athygli á þessum málum og hefja upp umræðuna um þau. Hann hefur auðvitað þegar sýnt og sannað að hann getur hrifið fólk með sér og haft mikil áhrif, enda hefur hann einstaka hæfileika í því að tengja saman fólk, tengja saman hugmyndir og miðla málefnum með áhrifamiklum hætti. Í forsetaembættinu mun rödd hans heyrast enn víðar og betur en áður. Til þess ættum við að veita Andra brautargengi.

Andri sprettur úr fjölbreyttum jarðvegi. Bjó ungur í útlöndum og kynntist líklega meiri fjölbreytni þar en flest okkar íslensku heimalninganna; kynntist náið íslenskri sveit þar sem innprentuð er virðingin fyrir lífinu, landinu og náttúrúnni, en líka vinnusemi, nýtni og hugkvæmni; og hefur svo starfað með skapandi fólki sem skilur hvernig með hugvitinu einu saman er ekki aðeins hægt að skapa mikil verðmæti, heldur hreinlega framtíðina sjálfa. Þessi blanda hugnast mér vel og ég hef trú á því að hún gefi manni heilbrigða sýn á heiminn, hvert hann stefnir og hvernig hægt er að hafa áhrif á hann.

Andri Snær er frambjóðandinn sem stendur fyrir allar þær breytingar sem ég – og margir fleiri – vilja sjá á íslenskri umræðu, íslensku samfélagi og íslenskum áherslum.

Verum ekki hrædd við að kjósa breytingarnar þegar þær bjóðast: Virkjum Andra Snæ Magnason!