Hjálmar Gíslason

Ég er óseðjandi áhugamaður um gögn, tölvur, tækni og nýsköpun. Ég byrjaði að forrita átta ára gamall og seldi fyrsta hugbúnaðar­leyfið þegar ég var fjórtán. Á síðustu þrem áratugum hef ég stofnað fimm hugbúnaðar­fyrirtæki, nú síðast GRID þar sem ég starfa sem framkvæmdastjóri.

Tímalínan

2018-2026

GRID

GRID starfar á mótum gervigreindar og töflureikna. Töflureiknatækni okkar er í notkun hjá nokkrum af fremstu gervigreindarfyrirtækjum á þessu sviði.

2014-2018

Qlik

Starfaði sem framkvæmdastjóri vöruþróunar hjá viðskiptagreindarfyrirtækinu Qlik í Boston eftir kaup þeirra á DataMarket.

2008-2014

DataMarket

Stofnaði DataMarket með það að markmiði að gera talnagögn heimsins skiljanlegari og aðgengilegari. Flutti til Boston til að byggja upp sölu- og markaðsstarf okkar 2012. DataMarket var keypt af Qlik árið 2014.

2006-2008

Já / Síminn

Starfaði sem tæknistjóri Já og við viðskiptaþróun hjá Símanum eftir kaup Já-Upplýsingaveitna á Spurl. Leitartækni Spurl var grunnur að leitinni á Já.is.

2004-2006

Spurl

Smíðaði Spurl, eina fyrstu miðlægu bókamerkjaþjónustuna (social bookmarking). Spurl dró að sér yfir 200þús notendur á örfáum mánuðum, og leiddi af sér þróun á öflugri leitartækni.

2000-2004

Maskina

Stofnaði Maskina sem cann að farsímalausnum í árdaga nettengdra síma. Fyrirtækið sameinaðist norsku farsímafyrirtæki - Viva Nordic - og Maskina varð í kjölfarið að Vyke.

1999-2000

Gagarín

Vann við margvíslega vef- og margmiðlunarforritun eftir sameiningu Lon&Don og Gagarín undir merkjum þess síðarnefnda.

1996-1999

Lon&Don

Stofnaði Lon&Don, ásamt þremur félögum úr menntaskóla. Við bjuggum meðal annars til geysivinsæla íslenska orða- og krossgátuleiki. Lon&Don sameinaðist margmiðlunarfyrirtækinu Gagarín árið 1999.

Annað

Ég skrifa reglulega um tölvur og tækni á ýmsum vettvangi. Mikið af þeim skrifum má finna hér á vefnum. Hef verið reglulegur gestur í íslenskum fjölmiðlum, sérstaklega um málefni tækni og nýsköpunar og sit í stjórnum Miðeindar, Aranja, Isnic, Tækniþróunarsjóðs og í háskólaráði Háskólans í Reykjavík.

Myndir og lýsingar

Smelltu á mynd til að sækja í fullri upplausn.

Einlínu kynning

Hjálmar er miðaldra kall í nýsköpun. Hann hefur stofnað fimm hugbúnaðarfyrirtæki, nú síðast GRID. Hjálmar er óseðjandi áhugamaður um tölvur, tækni, fjölmiðla, lífið og tilveruna.

Stutt

Hjálmar Gíslason er stofnandi og framkvæmdastjóri GRID. Hann starfaði áður sem framkvæmdastjóri vörustjórnunar hjá Qlik, eftir kaup Qlik á fyrirtækinu DataMarket sem hann stofnaði 2008. Hjálmar er gagnanörd og frumkvöðull af lífi og sál, en GRID er fimmta hugbúnaðarfyrirtækið sem hann stofnar.