Ég hef flogið ófáar flugferðir um ævina — einhver hundruð ef allt er talið — en ég viðurkenni að mér finnst enn gaman að fljúga. Reyni yfirleitt að fá gluggasæti og get starað langtímum út um gluggann ef eitthvað er að sjá. Það gefur manni svo mörg og holl sjónarhorn:
Til dæmis upplifir maður hvað maðurinn er lítill og heimurinn stór. Hvað veröldin er falleg, líka það manngerða. Hverskonar forréttindapési maður er að lifa á þeim tímum og í þeim heimshluta þar sem ferðalög milli heimshorna eru hluti tilverunnar. Og hvað tæknin er undursamleg.
Og hvergi fær maður betri hugmyndir en í flugvélum.