Borgir eru fyrir fólk og fólk er alls konar.

Sum okkar vilja borgarstemmingu með þéttri byggð og alla helstu þjónustu í göngufæri. Önnur vilja búa í úthverfi í góðu næði, með eigin garð og nóg pláss. Sumum hentar eitt á einu æviskeiði en annað á öðru.

Í þéttri byggð þarf að vera hægt að sinna öllum daglegum málum án þess að eiga bíl. Þar þarf góðar almenningssamgöngur. Í úthverfum þarf að vera hægt að sækja flesta þjónustu, en þá oft á bíl. Þar þarf öflugan snjómokstur og næg bílastæði við hvert hús.

Það verða aldrei góðar almenningssamgöngur innan úthverfa og það verður aldrei þægilegt að snúast á bíl í miðborg. Annað er ekki betra en hitt, en búseta er val og valinu fylgja kostir og gallar.

Þéttar almenningssamgöngur með áherslu á miðborg og meginstofnæðar koma öllum til góða. Þær auka frelsi þeirra sem kjósa að búa í eða sækja miðborgina, fækka bílum á þéttsetnum götunum og greiða þar með leið borgarbúa allra meira en nokkur mislæg gatnamót.

Góður snjómokstur og viðhald gatnakerfisins koma líka öllum til góða. Það eykur lífsgæði þeirra sem kjósa að búa í úthverfum og greiðir leiðina fyrir okkur öll.

Samfélag þar sem hvert og eitt okkar fær að vera og gera það sem við viljum er gott samfélag.

Það er ekki hægt að gera allt í einu, en það er hægt að gera hvort tveggja yfir tíma. Þess vegna þarf bæði að þétta byggð og byggja upp góðar almenningssamgöngur OG halda uppi öflugri þjónustu við úthverfin og helstu samgönguæðar. Uppbygging og þjónusta í jafnvægi frekar en að berjast fyrir öðru og á móti hinu.

Ég er stoltur af því að vera á lista Viðreisnar þar sem forystufólkið skilur að góð borg er borg sem býður upp á val.