Tagged: Þriðjudagstæknin
-
Þriðjudagstæknin: Leitarvélaauglýsingar
Síðustu misseri hafa allmargir haft samband við mig til að forvitnast um leitarvélaauglýsingar, hvað það sé, hvernig þær virki og hvort þær séu fýsilegur auglýsingakostur. Ég geri mig á engan hátt út sem ráðgjafi um þessi mál, en veit þó ýmislegt um þau af eigin raun, bæði sem auglýsandi og sem a...
-
Þriðjudagstæknin: Rock Star – afþreying framtíðarinnar
Hvort sem fólki finnst Rock Star: Supernova það besta sem sjónvarpið hefur alið síðan Prúðuleikararnir voru og hétu eða uppblásin og oflofuð karíókíkeppni, leyfi ég mér að fullyrða að hér er um tímamótasjónvarpsefni að ræða. Þá er ég ekki að tala um þættina sjálfa eða efnistök þeirra, heldur hver...
-
Þriðjudagstæknin: Skoðun
Einu sinni á ári fer ég með bílinn minn í skoðun. Þetta er lögbundið eftirlit sem tryggja á öryggi mitt og annarra í umferðinni. Ef ég trassa það að fara með bílinn í skoðun er númerið klippt af honum og hörð refsing sem liggur við því að aka honum um göturnar. Það er sjálfsagt mál […]
-
Þriðjudagstæknin: Kaup og sala þekkingariðnaðarmanna
Efni Þriðjudagstækninnar í dag eru samningar þekkingarfyrirtækja við starfsmenn og af hverju þeir eru ekki meira eins og samningar íþróttamanna “Það verðmætasta sem þekkingarfyrirtæki eiga eru starfsmennirnir.” Þessu heyrir maður oft fleygt og þetta er auðvitað í flestum tilfellum dagsatt. En hve...
-
Þriðjudagstæknin: Kína
Efni þriðjudagstækninnar í dag (já, á fimmtudegi) er innkoma netrisanna Google, Yahoo! og Microsoft á Kínverska netmarkaðinn. Í Kína búa nærri 400 milljónir manna sem búa við svipuð kjör (efnahagslega) og Evrópubúar. Meðaltölur eru ósköp villandi því svo er heill milljarður kínverja í viðbót sem ...
-
Efni Þriðjudagstækninnar í dag eru auglýsingar og annað efni sem “pöpullinn” býr til og er í auknum mæli að ryðja sér til rúms sem áhrifavaldur í ýmiskonar efnisframleiðslu. Pæliði til dæmis í því að þessi auglýsing frá Sony var búin til af 18 ára gömlum “amatör”, en er núna í sýningum í Bandarík...
-
Þriðjudagstæknin: Enn um erótík og efnisveitur
Ákvað að taka þetta sama efni fyrir í Þriðjudagstækninni í dag. Pistillinn er hér: Erótík og efnisveitur Þriðjudagstæknin er vikulegt spjall um tölvur og tækni á NFS á þriðjudögum kl 11:10
-
Þriðjudagstæknin: Hver á að borga hverjum hvað?
Efni þriðjudagstækninnar í dag er hver borgar hverjum hvað á Netinu og fyrir hvað. Uppbygging Internetsins kostar sitt, hverjum er réttlátt að senda reikninginn? Lengri texti væntanlegur hér seinna, en grunnspurningin er þessi: Hvort eru það Google, BBC og aðrar efnisveitur sem gera þjónustu síma...
-
Þriðjudagstæknin: Með marga bolta á lofti
Efni Þriðjudagstækninnar í dag er “multitasking”. Þ.e. hvernig við og ekki síst krakkarnir tökumst á við ótal hluti í einu – og hvort við ráðum í raun og veru við það. Þegar ég var lítill heyrði ég um mann sem gat talað í símann, skrifað bréf og hlustað á útvarpsfréttirnar, allt í einu. Þetta þót...
-
Þriðjudagstæknin: Rafhlöður, rafmagnsnotkun og þráðlaust rafmagn
Efni Þriðjudagstækninnar í dag er rafmagnsnotkun og rafhlöður í tölvur og önnur raftæki og draumurinn um þráðlaust rafmagn. Eitt helsta vandamál stórra vélabúa* nú orðið er rafmagnsnotkun – og ef til vill ekki að undra. Að sögn eru t.d. um 200.000 tölvur í vélabúum Google í Kaliforníu. Hver um si...
-
Þriðjudagstæknin: Símakurteisi
Efni þriðjudagstækninnar í dag er farsíminn og hvernig á því stendur að þegar síminn hringir þarf allt annað að víkja. Hérna einu sinni voru símtöl fágæt. Það að fá símtal, var jafnvel merkilegara en að fá símskeyti eða sendibréf. Þetta var viðburður og var tekið alvarlega – þeim mun alvarlegar s...
-
Þriðjudagstæknin: Gamlar skruddur
Efni Þriðjudagstækninnar í dag eru gamlar tölvubækur og skemmtilegar tilvitnanir úr þeim Nokkur undanfarin ár hef ég verið að sanka að mér gömlum íslenskum tölvubókum. Þetta átti nú ekki að verða alvarleg söfnun en hefur þó ágerst. Það var merkilega mikið skrifað um tölvur strax fyrir 20-30 árum ...
-
Þriðjudagstæknin: Ekki þennan tón…
Efni Þriðjudagstækninnar í dag eru samskipti á textaformi og hvernig okkur hættir við að lesa rangt í “tón” samskiptanna. Nú orðið fer umtalsverður hluti samskipta margra okkar fram á textaformi, annað hvort í tölvupósti eða í skilaboðaforritum á borð við MSN Messenger. Í þess háttar samskiptum v...
-
Þriðjudagstæknin: Sniglapósturinn lifir
Efni Þriðjudagstækninnar í dag er framtíð póstþjónustu – ekki tölvupóstþjónustu heldur hins – sniglapóstsins Það þótti voða fyndið svona í árdaga Netsins að vísa til bréfasendinga sem “sniglapósts” eða “snail mail”. Svoleiðis póstur var gamaldags, tók langan tíma, kostaði – með öðrum orðum tilhey...
-
Þriðjudagstæknin: Spáð í framtíðina
Efni Þriðjudagstækninnar að þessu sinni eru framtíðarspár, gagnsemi þeirra og tilgangur. Í tækniheiminum er umtalsverður fjöldi fólks sem vinnur við það að spá fyrir um framtíðina. Þetta eru ráðgjafar stjórnvalda, stórfyrirtækja og stofnanna sem ætlað er að spá í spilin svo hægt sé að móta stefnu...
-
Þriðjudagstæknin: Svæðaskipt internet
Efni Þriðjudagstækninnar í dag eru tilraunir manna til að binda þjónustuþætti og dreifingu á efni á netinu við svæði og landamæri með misjöfnum árangri. Vissir þú að Internetið er ekki alls staðar eins? Ýmsar efnisveitur, þjónustur og vefir laga sig að því hvar notandinn er staddur í heiminum, ým...
-
Þriðjdagstæknin: CES sýningin
Efni Þriðjudagstækninnar í dag er CES raftækjasýningin í Las Vegas Á hverju ári flykkjast tækjanördar í stórum hópum til Las Vegas í byrjun janúar til að vera viðstaddir CES (Consumer Electronics Show) raftækjasýninguna. Þarna keppast framleiðendur við að sýna það nýjasta í raftækjum fyrir neyten...
-
Þriðjudagstæknin: Tæknispá – átta hlutir sem gerast árið 2006
Í Þriðjudagstækninni í dag ætlum við að kíkja í kristalskúluna og velta fyrir okkur hvað árið 2006 muni hafa í för með sér í tölvu- og tæknigeiranum. “Það er erfitt að spá, einkum um framtíðina” er haft eftir danska eðlisfræðingnum Niels Bohr. Engu að síður keppast menn um hver áramót við að reyn...
-
Þriðjudagstæknin: Flottustu jólagjafirnar
Efni Þriðjudagstækninnar í dag verður í anda jólanna. Ekki að við ætlum að gefa neitt, heldur ætlum við að kíkja á heitustu græjurnar sem komu upp úr jólapökkunum þetta árið. Jólin í ár voru mikil græjujól. Það sem hefur líklega staðið uppúr voru flatskjáirnir sem margir versluðu sér fyrir jólin,...
-
Þriðjudagstæknin: Er Internetið að hrynja?
Efni Þriðjudagstækninnar í dag eru endalok Internetsins. Grein í nýjasta hefti tækniblaðsins Technology Review hefur vakið nokkra athygli í tækniheiminum síðustu daga. Greinin fjallar um galla og takmarkanir Internetsins sem viðmælendur rekja til skorts á skipulagningu og hönnun við uppbyggingu n...
-
Þriðjudagstæknin: Samskipti við tölvur
Efni Þriðjudagstækninnar í dag eru boðleiðirnar sem við notum til að koma vitinu fyrir tölvurnar okkar – og þær fyrir okkur. Samskipti okkar við tölvur eru í rauninni afar frumstæð. Við notum mús og lyklaborð til að skipa tölvunni fyrir og hún birtir okkur skilaboð á skjá. Einhver myndi vilja bæt...