Factfulness eftir Hans Rosling: Leiðarvísir að rökréttri hugsun um heiminn

Í flestri umræðu heyrast hæst þær raddir sem eru á sitthvorum öfgunum. Þar liggja oft ríkustu hagsmunirnir, heitasta sannfæringin og sterkustu tilfinningarnar. Þegar svo er gefst lítið rými fyrir yfirvegaða umræðu þar sem dregin eru fram þau gögn sem máli skipta, ólík sjónarhorn vegin og metin og niðurstaða eða málamiðlun byggð á bestu fyrirliggjandi þekkingu, vísindalegri nálgun og vandaðri rökleiðslu.

Þess vegna er bók læknisins og gagnatöframannsins heitins Hans Rosling – Factfulness – svo kærkomin. Með snörpum og skemmtilegum skrifum sýnir hann okkur lesendum annars vegar fram á það hversu skökk og úrelt heimsmynd okkar er að mörgu leyti og gefur hins vegar ráð um það hvernig best sé að nálgast flókin úrlausnarefni, hvernig hægt er að vara sig á rangfærslum og forðast rangar ályktanir þegar tilfinningarnar, áróðurinn eða vanþekkingin verða rökunum yfirsterkari.

Sérsvið Roslings var lýðheilsa og dæmin í bókinni eru flest á sviði heilbrigðis og lýðfræði, en hann kemur víða við: náttúruvernd, stjórnsýsla, stjórnkerfi, fjölmiðlun, fyrirtækjarekstur, fjármálakerfið og fleira. Umfram allt á aðferðafræðin sem Rosling kennir með þessum dæmum í bókinni við á nánast öllum sviðum.

Inn í þetta blandast svo sögur frá ævintýralegum starfsferli Roslings, fyrst sem ungur læknir á vettvangi í mörgum fátækari ríkjum heims, síðar sem kennari í Svíþjóð og loks sem hálfgerð “gagnastjarna” sem ferðaðist um heiminn, flutti erindi og umgekkst margt af áhrifamesta fólkinu í heiminum. Frásagnirnar eru auðmjúkar og afhjúpandi. Margar hverjar stórskemmtilegar, en aðrar grafalvarlegar. Ég viðurkenni að mér vöknaði um augun að minnsta kosti í tvígang við lestur bókarinnar – annars vegar af mjög sorglegum afleiðingum af ákvarðanatöku sem Rosling átti þátt í og í hitt skiptið af hetjulegri framgöngu í hættulegum kringumstæðum í smáþorpi í Lýðveldinu Kongó (þá Zaire). Vísbending: Hetjan þar var ekki okkar maður Hans.

Rosling verður seint kenndur við ákveðna pólitíska hugmyndafræði. Raunar eru ein sterkustu skilaboð bókarinnar þau að heimurinn er svo margslunginn að svarið felst aldrei í einni stefnu sem leysi allt: Hann dásamar frjálsan markað, en bendir á að hann þýði ekki að það þurfi ekki reglur og sterk stjórnvöld. Hann talar fyrir jöfnuði og jafnrétti á mörgum sviðum, en bendir líka á að það þýði ekki að lausnin sé að stjórnvöld taki og dreifi gæðunum jafnt á alla.

Ég held að enginn lesandi leggi þessa bók frá sér án þess að hugmyndum hans eða hennar um heiminn hafi verið storkað, jafnvel á svolítið óþægilegan hátt – og í því felst styrkur bókarinnar. Með manngæsku, raunsæi og rökhyggju í fyrirrúmi gefur Rosling lesendum ástæðu til að anda aðeins léttar yfir fréttum símiðlanna en brýnir þá á sama tíma til að hjálpa til við að takast á við þau vandamál sem raunverulega þarfnast lausnar til að framtíðin haldi áfram á þeirri braut sem síðastliðnar aldir hafa verið: Framfarir sem hafa heilt yfir bætt lífsgæði manna alls staðar í heiminum stórkostlega. Og hann gefur okkur fulla ástæðu til að trúa því að svo geti orðið, ef við höldum ekki af braut vísinda, raka og yfirvegunar.

– – –

Hans Rosling lést úr krabbameini snemma árs 2017. Hann hafði þá tileinkað síðasta ár ævi sinnar því að rita þessa bók. Sonur hans Ola og tengdadóttir Anna sem höfðu unnið með honum lengi undir hatti Gapminder samtakanna sem Rosling stofnaði luku við verkið og halda vinnu Rosling áfram. Það er mikill missir af Rosling: Vísindi, ákvarðanataka byggð á þekkingu og gögnum og rökhyggja þurfa að eiga sinn “Attenborough” og Rosling er sennilega sá sem hefur komist næst því.

One comment

  1. Sæll Hjálmar. Geturðu hjálpað mér Hjálmar?

    Birgir Jóa heiti ég og er kallaður BiJo (‘Bídjó’). Mig langar að eignast miklu meiri peninga í win-win fyrirkomulagi umhverfið (náttúra, dýr og annað fólk). Ég er hreinn og beinn sveitastrákur og hef alltaf verið og á það skilið að eiga mikið af peningum. Ég myndi hjálpa sjálfum mér með eigin húsnæði og einhverja hluti. þróa og byggja frekar upp fyrirtækið mitt “Iceland by Guide/https://www.icelandbyguide.com ” heilsu-outdoor-adventure startup sem aðstoðar fólk við að byggja upp eigin heilsu og líf. Byggja upp heilsu-uppskrifta-öpp og community í kringum það. Stórkostlegt væri að eiga þátt í að við íslendingar ættum og byggðum miklu fleiri gróðurhús og ræktuðum miklu meira af eigin mat sem væri hægt að byggja skóla í kringum og þróa og styrkja heilsu-matarmenningu á Íslandi, bæði fyrir okkur sem lifum núna og þá sem eru nýfæddir og ókomnir. Og með því renna betri stoðum undir uppbyggingu og eflingu heilsutúrisma á Íslandi.

    Viðskipta-módel/Business Model Ég hef stundum hugsað … “vá ef ég ætti 8.000 kr eða áttaþúsund krónur í einhverju sem væri selt miljón sinnum eru átta miljarðar. Og 8.000 kr x 1.000.000 sinnum virðist ekkert vera svo stórt og er minn draumur. Dettur þér í hug að benda mér á eitthvað til að taka næsta skrefið í þessu? Til dæmis að þróa belief-able business plan fyrir mig fyrir hugmynd sem ég á átta þúsund krónur í – og raunverulegt væri að geta selt það amk miljón sinnum.

    Og ef þér kemur ekkert til eða hefur ekki áhuga á að svara þessum pósti. Ekkert mál séð frá mér. Ég er jafnmikið að skrifa þennan póst “upphátt” fyrir mig … þótt ég sé að senda hann á þig.

    Með sálarvinarkveðju og gangi þér vel Hjálmar, BiJo.

Leave a comment