Writing
-
Framtíðin er betri en við höldum
Heimurinn er betri en við höldum. Fréttirnar sýna frávikið frá hinu hversdagslega, en heildarmyndin er saga ótrúlegra framfara.
-
Tæknispá 2026: Gervigreind og netöryggi
Þriðja árið í röð er það gervigreindin sem tekur mest pláss í tæknispá ársins. Gervigreind er að breyta heiminum meira og hraðar en nokkur tækninýjung hefur gert áratugum saman. En vendingar í alþjóðamálum setja líka sitt mark á spána.
-
Tæknispá 2025: Gervigreind, geimurinn og sannleikurinn sjálfur
Tækni er ekki bara hluti af lífi okkar – hún er samofin manninum sem tegund. Þessi einfalda staðreynd gleymist oft. Allt sem færir okkur mat, hlýju, skjól, ferðamáta, afþreyingu og hefur með öðrum hætti mótað daglegt líf okkar – frá einföldum steinverkfærum og ritmáli til snjallsíma og gervigrein...
-
Tæknispá 2024: Gervigreindin mun breyta heiminum jafnmikið og tilkoma snjallsímans
Síðan 2006 hef ég gert mér að leik um áramót að skoða strauma og stefnur í tækniheiminum og spá fyrir um það sem er líklegt til að standa upp úr á komandi ári. Árangurinn hefur oft verið ágætur, en líka stundum alveg úti á túni. Hér skrifar til dæmis maðurinn sem spáði því árið 2014 […]
-
Tæknispá 2023: Tími gervigreindar er kominn og samfélagsmiðlar verða persónulegri
Ég hef haft það fyrir sið um áramót að velta fyrir mér hvað komandi ár gæti haft í för með sér í heimi tækninnar. Ég hef reyndar minna gert af því að skoða árangurinn, önnur geta dundað sér við það með því að fletta upp fyrri spám. Hér koma hins vegar vangaveltur þessa árs, en þar […]
-
Minning um Margréti Kristínu Sigurðardóttur
Ég er ekki viss um að henni hafi litist sérstaklega vel á slánalega drenginn í leðurjakkanum sem kom með dóttur hennar á skrifstofuna á Rauðarárstígnum fyrir rúmum aldarfjórðungi. Erindið var heldur ekki reisnarlegt: Bíllinn bensínlaus við Hlemm og gott ef ekki við auralaus líka og því leituðum v...
-
Einföld regla
Heimurinn væri betri ef við gætum öll farið eftir henni: Ef þú ert í aðstöðu þar sem aðrir þurfa að bera traust til þín, aldrei hugsa kynferðislega til þeirra.
-
Tæknispá 2022: Breyttir vinnustaðir, bálkakeðjuæðið og hlutverk Íslands í orkuskiptum
Sem óseðjandi áhugamaður um tölvur og tækni hef ég gaman af að reyna að átta mig á mótandi straumum í tækniheiminum á hverjum tíma og ímynda mér svo hvert þeir straumar eru líklegir til að leiða heiminn í framhaldinu. Í íslensku samhengi eru þrír slíkir straumar mér efst í huga í ár: 1....
-
Tæknispá 2021: Þrír sterkir straumar
Um áramót hef ég oft gert mér að leik að horfa til komandi árs og reynt að spá í hvað það kunni að bera með sér á vettvangi tækninnar. Í fyrra horfði ég reyndar lengra og velti fyrir mér hvað komandi áratugur kynni að bera með sér. Sjáum hvernig það fer. Í þetta sinn ætla ég hins […]
-
Eftir Covid: Leiðarljós við uppbyggingu
Ég ætla ekki að fagna sigri eða setjast í spámannssæti um það hvenær eða hvernig þessum faraldri sem nú gengur yfir lýkur, en einn daginn gerist það og þegar vísindamennirnir og heilbrigðisstarfsmennirnir hafa lokið sínu starfi við að bjarga lífi og limum, þurfum við hin að takast á við uppbyggin...
-
Tæknispá 2020: Komandi áratugur
Um árabil hef ég gert mér það að leik um áramót að spá fyrir um það sem væri líklegt til að vera efst á baugi í tæknimálum á komandi ári. Það hefur gengið misjafnlega. Ég spáði því til dæmis að árið 2008 myndi Nova leggja af slagorðið „Stærsti skemmtistaður í heimi”. 12 árum seinna er þe...
-
Minning um Ragnar S. Halldórsson
Tengdafaðir minn, Ragnar S. Halldórsson, er látinn. Ragnar var mikill maður, í öllum skilningi þeirra orða. Þegar ég kynntist honum hafði hann að mestu lokið sínum starfsferli sem var langur og merkilegur. Ég held að það sé óhætt að segja að Ragnar hafi verið meðal þeirra manna sem fluttu nútíman...
-
Tæknispá 2019
Mér telst til að þetta sé í 10. skipti (á 14 árum) sem ég skrifa tæknispá og reyni að rýna í hluti sem munu vera ofarlega á baugi í tækniheiminum á komandi ári. Í spánni í fyrra tók ég meðal annars sterkar til orða en flestir og spáði miklu verðfalli á Bitcoin. Annað var kannski ekki alveg...
-
Framtíð tölvutækninnar
Þegar framtíð tölvutækninnar er rædd er vinsælt að mála dökkum litum. Segja að tölvurnar muni taka völdin, að tölvurnar muni taka störfin, að samskipti í gegnum tölvu muni útrýma mannlegum samskiptum og að þeir sem ráði yfir gögnum um okkur muni geta stjórnað skoðunum okkar, orðum og gjörðum. Ég ...
-
Hann
HANN er sko engin kelling. HANN man gömlu góðu dagana. HANN ver skoðanir sínar af hörku. HANN efast um sérfræðinga. HANN trúir ekki á loftslagsbreytingar af mannavöldum. HANN veit að nauðgun er oft bara stelpa með móral. HANN vill harða löggæslu. HANN er sjálfstæður maður í sjálfstæðu landi. HANN...
-
Factfulness eftir Hans Rosling: Leiðarvísir að rökréttri hugsun um heiminn
Í flestri umræðu heyrast hæst þær raddir sem eru á sitthvorum öfgunum. Þar liggja oft ríkustu hagsmunirnir, heitasta sannfæringin og sterkustu tilfinningarnar. Þegar svo er gefst lítið rými fyrir yfirvegaða umræðu þar sem dregin eru fram þau gögn sem máli skipta, ólík sjónarhorn vegin og metin og...
-
Horft niður um glerþakið
Ég hætti nýverið í vinnunni. Við taka nokkrir mánuðir af umhugsun, hvíld og ferðalögum sem er alveg tímabært eftir 10 ára hlaup með DataMarket og svo Qlik eftir að fyrirtækin runnu saman. Í haust fer ég svo örugglega aftur að gera það sem ég kann best: Að setja af stað eitthvað nýtt. Hvað það nák...
-
Tæknispá ársins 2018
Það eru núna 12 ár síðan ég gerði það fyrst að gamni mínu að setja í upphafi árs fram spá yfir hluti sem ættu eftir að verða ofarlega á baugi á komandi ári. Þó þetta sé samkvæmisleikur öðru fremur, er engu að síður áhugavert að skoða eldri spár (2006, 2008, 2009, 2010, 2014, 2015, 2016, 2...
-
Stjórnmálaflokkarnir og ég (2017)
Hvað ég kaus. Hvað ég kaus ekki – og af hverju. Ég kaus utan kjörfundar í síðustu viku. Að venju hugsaði ég mig nokkuð vandlega um, en á endanum gat ég raðað öllum flokkunum 10 upp í röð sem ég var sáttur við. Sú röð fylgir hér fyrir neðan ásamt útskýringu með hverjum kosti í […]
-
Ég er ekki bjartsýnismaður
Margir sem þekkja mig segja mig bjartsýnismann. Það er sennilega vegna þess að ég sé flesta hluti í jákvæðu ljósi, hef almennt þá trú að fólki gangi gott til með gerðum sínum og sé tækifæri frekar en ógnir í flestum kringumstæðum. Ekki svo að skilja að ég láti ekki í mér heyra þegar mér finnst […]
-
Borgaðu fyrir fjölmiðla – núna!
Öflugir fjölmiðlar eru samfélaginu nauðsynlegir og sjaldan frekar en einmitt nú. Ég ætla svo sem ekki að rekja í löngu máli hvers vegna, enda hafa margir gert það nýlega betur en ég nokkurn tímann gæti. Sjá til dæmis hér og hér. Ég ætla hins vegar að skora á ykkur að taka ykkur til og borga […]
-
Tæknispá 2017
Rithöfundurinn William Gibson sagði eitt sinn að framtíðin væri komin, henni væri bara ekki jafnt dreift. Við fyrstu sýn virðist þetta auðvitað fáránlegt, en hvað tækniþróun varðar er þetta dagsatt: Það sem er þegar orðið hversdagslegt sums staðar í heiminum er enn ár eða áratugi frá því að raung...
-
Virkjum Andra Snæ!
Við erum heppin í forsetakosningunum í þetta sinn. Við höfum úr nokkrum góðum kostum að velja – og það er ekki sjálfgefið. Við skulum að fagna því sérstaklega að gott fólk gefi kost á sér til opinberra starfa fyrir okkur. Þrátt fyrir það var ég ekki í vafa um mitt val frá þeirri stundu sem […]
-
Þrjú leyndarmál: Útskriftarræða við ML
Skólameistari, Bubba, fyrrverandi nemendur, aðrir gestir, en umfram allt auðvitað þið – kæru stúdentar, Ég man vel hvað mér leiddist þetta gamla fólk sem var að koma hérna upp og halda leiðindaræður á útskriftardaginn okkar. Það var þetta gamla lið, og svo einhver formlegheit sem stóðu í vegi fyr...
-
Tæknispá 2016
Ég hef stundum (2006, 2008, 2009, 2010, 2014, 2015) gert það að gamni mínu í upphafi árs að spá fyrir um hluti sem muni einkenna komandi ár í tæknigeiranum, þá sérstaklega frá íslensku sjónarhorni. Þetta hefur gengið upp og ofan og dæmi hver fyrir sig, en ég er að minnsta kosti ekki enn af baki […]
-
Saga af 725 krónum
Árið 1981 voru 725 krónur dágóð upphæð. Með snöggri leit á timarit.is má sjá að fyrir um það bil þá upphæð mátti m.a. fá vel með farinn Silver Cross barnavagn, leigja herbergi á stúdentagörðum í heilan mánuð og kaupa veiðileyfi í Elliðavatni í heilt sumar – en það þótti reyndar okur. Á hefðbundna...
-
Loksins skil ég íslenska pólitík
Ég rakst á frábæra grein á Vox sem ber titilinn “Tech nerds are smart. But they can’t seem to get their heads around politics“. Ég tek titilinn augljóslega til mín 🙂 Greinin er löng, kemur víða við, en opnaði virkilega augu mín fyrir nýjum vinklum á þá órökréttu loðmullu sem pólitík samtímans er ...
-
Forréttindi
Hversu réttlát og víðsýn sem við teljum okkur vera, þá er nær ómögulegt að koma auga á þau forréttindi okkar sem við ölumst upp við að séu sjálfsögð.
-
5 einföld skref til að láta góða hluti gerast
Í gegnum tíðina hef ég fylgst með og tekið þátt í fjölmörgum áhugaverðum verkefnum. Sum þeirra hafa heppnast vel og önnur síður – eins og gengur. Byggt á þessari reynslu, er ég sannfærður um að uppskriftin að því að láta góða hluti gerast – óháð viðfangsefni – sé eftirfarandi: Vinna með hópi af s...
-
Ísland: Allir í pólitík, en enginn að stjórna
Nú er ég búinn að fylgjast með íslenskri pólitík frá útlöndum í bráðum 3 ár. Kemur í ljós að það er bráðhollt og gefur nýtt sjónarhorn á hlutina. Með hverjum mánuðinum sem líður verð ég bæði reiðari og leiðari. Ísland er að mörgu leyti einstakt og frábært, en á engu að síður við nokkur mjög […]
-
Tæknispá 2015
Ég hef stundum dundað mér við að skoða sérstaklega ríkjandi strauma og stefnur í tæknimálum og gera “tæknispá” fyrir komandi ár með áherslu á Ísland. Þetta er auðvitað til gamans gert meira en nokkuð annað, en skerpir hugsanir manns og hugmyndir sem síðan getur nýst í leik og starfi í framhaldinu...
-
Verið hrædd … annars!
Hræðsla er sterk tilfinning. Hún hefur þróast með okkur af góðri ástæðu. Þegar kemur að því að bregðast við hugsanlegum hættum lifðu þeir forfeður okkar af sem hlupu oftar en ekki í skjól – líka þegar óttinn var ástæðulaus. Óttinn ýtir líka á okkur að bregðast hratt við og þá á þann veg sem fyrst...
-
5 ástæður fyrir því að ég fjárfesti í Kjarnanum
Eins fram hefur komið í fréttum tók lítill hópur höndum saman nýlega og lagði Kjarnanum til aukið hlutafé. Ég var ákveðin driffjöður í því ferli og er sérstaklega stoltur af því að geta lagt mín lóð á þessar vogarskálar. Það er greinilegt að Kjarninn á sér dyggan aðdáendahóp, sem hefur kannski ko...
-
Qlik kaupir DataMarket
Þær eru stórar og skemmtilegar fréttirnar sem við gátum loksins deilt opinberlega núna í kvöld. Viðskiptagreindarfyrirtækið Qlik sendi eftir lokun markaða í Bandaríkjunum frá sér tilkynningu þess efnis að það hafi keypt allt hlutafé í DataMarket ehf. DataMarket er því hér með í raun orðið “Qlik á...
-
Að fljúga
Ég viðurkenni að mér finnst enn gaman að fljúga. Reyni yfirleitt að fá gluggasæti og get starað langtímum út um gluggann ef eitthvað er að sjá.
-
(Fá)brotið þjóðfélag
Við þekkjum öll söguna um uppgang Íslands á 20. öldinni. Fátækasta ríki Evrópu varð eitt þeirra allra ríkustu. Það má örugglega rekja þennan uppgang til margvíslegra þátta, jafnt innri sem ytri, jafnt ráðgerðum sem tilviljanakenndum. En það sem einkennir þennan tíma öðru fremur er samt aukin fjöl...
-
Della dagsins
Ég hef lengi verið heillaður af “dellu dagsins” – málinu sem “allir” á Íslandi hafa sterka skoðun á í örfáa daga og hverfa svo úr umræðunni, oftast án þess að hún hafi skilað neinu. Um jólin ákvað ég að gera mér að leik í nokkrar vikur að skrá niður helstu dellurnar sem dúkka upp. Myndin […]
-
Krónuheilkennið
Það var krónan* sem olli fáránlegu innstreymi fjármagns á bóluárunum (nú “snjóhengjan”) Það var krónan sem gerði íslensku bönkunum kleift að vaxa langt umfram svipaða banka annars staðar í heiminum Það var vegna krónunnar sem sá vöxtur olli kerfisáhættu meðal 300þús manns sem ekki höfðu sér neitt...
-
Tæknispá 2014
Þessi spá mín um þróun komandi árs í heimi tækninnar birtist í hátíðarútgáfu Kjarnans fyrir nokkrum dögum. Hér eru 6 hlutir sem ég spái því að muni gerast, eða við munum að minnsta kosti sjá stór skref í átt að á árinu 2014. “Tölvan er dauð”, hefði Nietzsche kannski sagt. Það er nú kannski ekki […]
-
Lítil fyrirtæki, lykill stórra framfara – þrjár ástæður
Setningarerindi sem ég flutti á Smáþingi nú í dag: Komiði sæl… Það er mér sannur heiður að fá að setja þetta Smáþing, enda er efnið brýnt og mér sérstaklega hugleikið. Einhverra hluta vegna er það þannig að við Íslendingar virðumst hrífast af stórum lausnum; einhverju einu stóru sem á að breyta ö...
-
Íslenskt nýsköpunarumhverfi, gjaldeyrishöft og þróunarstarf
Til að sprotafyrirtæki vaxi úr grasi og verði alvöru fyrirtæki þurfa ótal ótrúlega ólíklegir hlutir að ganga upp: Teymið, markaðsþörfin, vöruþróunin, fjármögnunin, markaðssetningin, salan, vöxturinn og loks uppskeran – nokkurnveginn í þessari röð. Íslendingar, rétt eins og aðrir, fá þá grillu í h...
-
Þankatilraun um RÚV
Þankatilraun: Hvernig stofnun væri “Ríkisútvarpið”, ef það væri stofnað í dag? Gefum okkur að RÚV hefði einhverra hluta vegna ekki verið stofnað á sínum tíma, en menn kæmu sér saman um að Ríkið þyrfti að sinna eftirfarandi hlutverkum: Að miðla upplýsingum til landsmanna á neyðartímum (öryggishlut...
-
Af einhverju öðru (en áli)
Við Hrunið 2008 losnaði býsna margt úr læðingi. Margt af því er vel þekkt og sumt hreint ekki til sóma, en eitt af því sem ekki hefur farið hátt er nýsköpunin sem spratt af stað eftir ákaflega mögur ár á þeim vettvangi í skugga bankabólu og ofþenslu þar sem fólk gat gengið að “öruggum” og […]
-
Ef Voltaire hefði verið uppi á Íslandi um þessar mundir…
…hæfist umsögn um hans þekktasta verk ef til vill svona: Sagan um Myrk-Víði er sögð í þrjátíu köflum og ber hver kafli lýsandi yfirskrift. Á undan fyrsta kafla segir til að mynda: „Hér segir frá því, hvernig Myrk-Víðir var uppfóstraður í fögrum kastala, og hvernig sannfærður um að sá væri kot.“ S...
-
Af netsíum, klámi og vondum hugmyndum
Fyrir nokkrum vikum kynnti innanríkisráðherra á ríkisstjórnarfundi aðgerðir er lúta að klámi. Í kjölfarið hefur skapast mikil umræða. Þar hafa margir orðið til þess að benda á þá stórkostlegu galla og hættur sem í þessum hugmyndum felast, þó svo þeir séu hratt og örugglega stimplaðir í “hagsmunag...
-
Íslenskar rafbækur – bókaútgefendur í tómu rugli
Ófáir Facebook-notendur í mínum kunningjahópi hafa lýst vandræðum við lestur á rafbókum sem þeir hafa keypt eða fengið að gjöf um jólin. Hér er frásögn eins þeirra: Ég hef átt lesbretti í meira en ár og bæði sótt mér fríar íslenskar rafbækur og keypt bækur á epub-formi hér í Svíþjóð án vandamála....
-
Af gjaldeyrishöftum, dægurþrasi og sandkassapólitík
Árni Páll Árnason hefur verið að birta yfirvegaðar og skynsamlegar greinar um skaðsemi og leiðir til afnáms gjaldeyrishaftanna undanfarna daga. (Sjá: 1, 2, 3). Þetta er mikilvægasta mál íslensks samtíma. Miklu mikilvægara en flestir gera sér grein fyrir, enda getum við meðalfólkið enn keypt okkar...
-
DataMarket í Bandaríkjunum
DataMarket er að setja upp skrifstofu í Bandaríkjunum. Nánar tiltekið í Cambridge í Massachusetts, sem fyrir leikmann virkar í raun sem hverfi í Boston. Mig langar að segja frá þessu hér af tveimur ástæðum: Fyrirbyggja misskilning: Undanfarin ár hefur verið talsvert verið fjallað um fyrirtæki sem...
-
Heilsusamlegt upplýsingaæði
Ég lauk nýlega við lestur bókarinnar The Information Diet eftir Clay Johnson. Útgangspunktur bókarinnar er nokkuð snjall. Þar er upplýsingavali okkar og -neyslu – fréttalestri, bókalestri, tölvupósti, samfélagsmiðlum, sjónvarpi og neyslu á öðrum fjölmiðlum – líkt saman við fæðuval okkar og -neysl...
-
Af iðnaðarsalti
Ég fór í smá skoðunarleiðangur um internetið til að forvitnast um þetta iðnaðarsalt sem var í fréttunum í gær. Umræðan er að venju yfirborðskennd og lítið um nákvæmar upplýsingar í umfjöllun fjölmiðla. Hér er það sem ég komst að. Á gömlu afriti af vefsíðu Ölgerðarinnar fann ég vöruna. Hana er ekk...
-
Vaðlaheiðargöng – gögn, arðsemi og útreikningar
Ég hef aðeins verið að velta þessari Vaðlaheiðargangaframkvæmd fyrir mér. Eins og oft vill verða skiptast háværustu raddirnar í tvo hópa á sitthvorum enda litrófsins: Annars vegar þá sem finna framkvæmdinni allt til foráttu og hins vegar þá sem vilja keyra verkið í gegn nánast án frekari umræðu e...
-
Hlutaskrá einkahlutafélags – dæmi
Samkvæmt lögum um íslensk einkahlutafélög skal félagið sjálft halda hlutaskrá (stundum kölluð hluthafaskrá eða hluthafalisti). Kveðið er á um þetta í 19. grein laganna, en hún hljóðar svo: 19. gr. Þegar einkahlutafélag hefur verið stofnað skal stjórn þess þegar í stað gera hlutaskrá. Heimilt er a...
-
Besta ræða Steve Jobs
Steve Jobs er fallinn frá. Hann er öllum frumkvöðlum fyrirmynd og við erum mörg sem lítum upp til hans. Í minningu kappans ákvað ég að færa í íslenska þýðingu bestu ræðu Steve Jobs, og reyndar eina bestu ræðu sögunnar að mínu mati. Ræðan var flutt við úskrift nemenda úr Stanford-háskóla þann 12. ...
-
Tekjuskattur meðal-Jóns: Sundurliðaður reikningur
Nú er að hefjast árleg umræða um fjárlög næsta árs. Þá koma fram ýmsar mis-gáfulegar hugmyndir um tekjuöflun og niðurskurð, en flest eigum við svolítið erfitt með að átta okkur á öllum þessum tölum. 600 milljarðar króna eru ekki upphæð sem við tengjum auðveldlega við. Í morgunútvarpinu á Rás2 í m...
-
Bensínverð: Samsetning
Viðbót 6. febrúar, 2012: Þessum gögnum er nu viðhaldið mánaðarlega á DataMarket. Uppfært 4. ágúst, 2011: Bætti við mynd af hlutfallslegri þróun. Bensínverð var umræðuefni í vikulegu spjalli mínu í Morgunútvarpinu í morgun. Meðal þess sem var til umræðu var samsetning á verði á lítra af bensíni. M...
-
Menntunarstig Íslendinga – erum við best eða verst í heimi?
Ég sá á Facebook í dag að margir voru að vitna í aðsenda grein í Fréttablaðinu sem í stuttu máli gengur út á það að menntunarstig Íslendinga sé með því versta sem gerist. Lykilsetning í greininni er eftirfarandi: Um helmingur Íslendinga lýkur þannig engu framhaldsnámi eftir grunnskólanám og af þe...
-
Borgar sig að spila í Lottóinu?
Oftast ekki, en þegar fyrsti vinningur er margfaldur geta þó skapast þær aðstæður að það sé hreinlega fín hagnaðarvon í því að taka þátt í Lottóinu. Meðfygljandi Excel-skrá svarar því þessari einföldu spurningu. Settu einfaldlega inn upplýsingar um það í hvað fyrsti vinningur stefnir, hvað hann v...
-
Reynslusögur íslenskra frumkvöðla
Í dag var haldinn á Grand Hótel viðburðurinn “Reynslusögur íslenskra frumkvöðla” á Grand hótel. Viðburðurinn var haldinn á vegum Frumkvöðlar.is, frábæru framtaki á vegum hans Hauks hjá Búngaló. Ég var meðal þeirra sem var fenginn til að deila minni reynslu af sprotapoti þarna. Hér má sjá glærurna...
-
Sprotafyrirtæki á leið úr landi?
Í gær hringdi í mig fréttamaður frá Stöð 2. Hann hafði haft af því ávæning að DataMarket og fleiri sprotafyrirtæki væru “á leið úr landi”. Ég útskýrði fyrir honum að hvað okkur varðaði væri fyrirtækið einfaldlega komið á þann stað í lífinu að nú þyrfti að leggja áherslu á að ná erlendum viðskipta...
-
Vandi að spá, líka um fortíðina
Viðskiptaráð hélt Viðskiptaþing í gær. Eitt af því sem kynnt var samhliða þinginu voru fyrstu skref í átt að svokallaðri Efnahagsstofu atvinnulífsins. Starfsemi þessarar stofu er enn í mótun, en hugmyndin er að koma upp starfsemi sem muni fylgjast með og ef til vill taka þátt í spágerð og greinin...
-
Nörd ársins!
Ég varð þess heiðurs aðnjótandi síðastliðinn föstudag að hljóta nafnbótina Nörd ársins 2010. Ég hef lengi beðið eftir því að einhver efndi til keppni sem ég ætti möguleika á að vinna og full ástæða til að þakka Skýrr fyrir að gera það. Reyndar grunar mig að réttnefni titilsins væri “Athyglissjúka...
-
Grísast gegnum bankahrun
Eftir því sem líður frá bankahruninu er að koma betur og betur í ljós hversu stálheppin við höfum verið með margt í þessari atburðarás. Það merkilega er samt að fæst af þessu voru ákvarðanir sem teknar voru af stjórnvöldum á hverjum tíma. Þetta voru heldur ekki tillögur stjórnarandstöðu eða fólks...
-
Orka – lykill alls
Þetta er fyrsta færslan í röð hugleiðinga um orku- og auðlindamál sem ég er að grúska í um þessar mundir. – – Án orku gerist ekkert. Öll heimsins auðævi myndu ekki skila neinu ef ekki væri hægt að knýja eitthvað, færa eitthvað úr stað, byggja eitthvað, fara eitthvert. Með öðrum orðum: framkvæma e...
-
Orka og auðlindir
Þegar efnahagshrunið reið yfir heiminn haustið 2008 fékk ég stóraukinn áhuga á hagfræði, pólitík og efnahagsmálum. Ég sökkti mér á kaf í allskyns efni um þessi mál til að reyna að skilja betur það sem var að gerast. Allmargar bloggfærslur urðu til sem hliðarafurðir af því grúski mínu, þar á meðal...
-
Úrslit kosninganna: Röð allra frambjóðenda
Uppfært 1. des 2011 kl. 00:47: Mikil umræða hefur sprottið um þennan lista á Facebook-færslu minni. Útdrátt úr þeirri umræðu má finna í athugasemdakerfinu hér að neðan, m.a. fyrir þá sem velta fyrir sér hvað dálkurinn “atkvæði” í töflunni stendur nákvæmlega fyrir. Félagi minn, Sigurgeir Jónsson, ...
-
Allt er æðislegt en enginn er ánægður!
Það kann að virðast fráleitt þegar horft er á venjulegan fréttatíma, en við lifum á tímum mestu velmegunar, öryggis og friðar sem mannkynið hefur nokkurntíman upplifað. Fólk lifir lengur, minna hlutfall mannkyns líður skort og minni líkur eru á að vera myrtur af náunganum eða drepinn í stríði en ...
-
Chris Martenson með fyrirlestur á Íslandi
“Crash course” örfyrirlestrarnir fóru eins og eldur um sinu á netinu í fyrra. Þar tekur hagfræðispekúlantinn Chris Martenson fyrir grundvallaratriði í efnahagskerfi heimsins, hvenig það er uppbyggt og hvers vegna hann telur að við stöndum frammi fyrir stórum breytingum á næstu 20 árum. Fyrirlestr...
-
Samsæri – eða eitthvað miklu flóknara?
Ég hef gaman af samsæriskenningum og þessa dagana er enginn skortur á þeim. Allt eftir því hvernig hugur manna hallast virðist til dæmis hægt að kenna Davíð Oddssyni, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, Evrópusambandinu eða nú síðast Magma Enegry um nær allt sem aflaga fer á Íslandi. Ýmislegt hefur jú duni...
-
Hvað er DataMarket?
Hér er myndband sem sýnir brot úr kynningunni okkar við opnun gagnatorgs DataMarket þann 12. maí síðastliðinn. Þetta brot ætti að svara býsna vel spurningunni “Hvað er DataMarket?” og sýnir jafnframt nokkur áhugaverð dæmi um notkunina.
-
Gagnatorg DataMarket komið í loftið!
Í vikunni opnuðum við hjá DataMarket almennan aðgang að gagnatorginu okkar. Ég ætla að skrifa meira um það á persónulegu nótunum fljótlega, en læt nægja í bili afrit af tilkynningunni sem við sendum áskrifendum að fréttabréfinu okkar í gær (þið getið gerst áskrifendur hér). Kæri áhugamaður um Dat...
-
Upphaf eldgossins á Facebook
Mér fannst ástæða til að bjarga þessum þræði áður en hann félli í gleymsku Facebook-fortíðar. Það var býsna áhugaverð upplifun að fylgjast beinlínis með upphafi gossins í hópi nörda úr ýmsum áttum á Facebook og Twitter…
-
Ég skil ekki atvinnuleysi
Ég ætla að hætta mér út í ansi eldfimt umræðuefni. Eftirfarandi verður að lesast með þeim fyrirvara að ég hef aldrei misst vinnuna og þekki því ekki atvinnuleysi á eigin skinni (ég hef reyndar unnið hjá sjálfum mér næstum allan starfsferilinn). Þess vegna vil ég gjarnan fá viðbrögð á neðangreint ...
-
Samþjöppun eigna og galin útlán – það var vandinn
Vanda íslensks efnahagslífs má rekja til tveggja þátta: samþjöppun eignarhalds; og galinnar útlánastefnu bankanna Hin margvíslegu efnahagslegu vandamál sem við glímum við eru öll afleiðing af eða tilbrigði við þessi tvö stef. Vandann er sem sagt ekki að rekja til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Fjármá...
-
Orðið.is: Lóð á vogarskálar Opinna Gagna
Í hádeginu í dag voru úrslitin í verðlaunasamkeppninni “Þú átt orðið” kynnt. Það voru fyrirtækið Já og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum sem stóðu fyrir þessari keppni. Forsaga keppninnar Forsagan er í stuttu máli sú að forritunarteymi Já og forveri þess – fyrirtækið Spurl – sem Já keyp...
-
Tæknispá 2010
Ég hef nokkrum sinnum áður ráðist í það um áramót að skrifa smá hugleiðingar um það sem komandi ár gæti borið með sér í tæknigeiranum á Íslandi. Spáin fyrir nýliðið ár heppnaðist býsna vel, þannig að nú er kominn tími til að rýna aftur í telauf og garnir og spá fyrir um næstu misserin. Sprotaheim...
-
Af rökræðum og skattareiknum
Ég er landleysingi í pólitík. Hef mjög mikinn áhuga á pólitískri umræðu og sterkar skoðanir á mörgum málum, en gæti aldrei fellt mig við það að elta einhverjar flokkslínur í flestum málum. Ég hallast reyndar að því að flokkshollusta sé að mörgu leyti þægindi sem fólk sækir í til að þurfa ekki að ...
-
Nýja Kauphöll takk
Undanfarna daga hafa verið ræddar í fjölmiðlum hugmyndir um að skrá í Kauphöllina fyrirtæki sem bankarnir hafa tekið yfir og koma þeim þannig í almenningseigu. Í grunninn held ég að þetta sé góð hugmynd. Að mörgu leiti betri en beint söluferli í umsjón bankanna sjálfra og án alls efa betra en það...
-
Fimm staðreyndir um skattkerfið – reiknilíkan
Við hjá DataMarket vorum að uppfæra reiknilíkan sem við gerðum í fyrra til að lýsa staðgreiðsluskattakerfinu á Íslandi. Líkanið tekur núna mið af nýjustu fáanlegu gögnum um launadreifingu landsmanna, hátekjuskattinum sem lagður var á í sumar og svo er hægt að stilla upp fleiri en einu hátekjuþrep...
-
Opin gögn á Alþingi
Stundum verður manni að ósk sinni hraðar en við mætti búast. Fyrir sjö vikum síðan birti ég bloggfærslu undir titlinum “Opin gögn og gagnsæi – yfirlýsing stjórnvalda“. Þar fór ég yfir þá vitundarvakningu sem er að verða varðandi aðgengi að opinberum gögnum og gagnasöfnum, hvernig þetta spilar inn...
-
Opin veðurgögn – skref í rétta átt
Á þriðjudaginn var stigið lítið en mikilvægt skref í átt að opnum gögnum á Íslandi. Þá var nefnilega opnaður aðgangur almennings að Gagnatorgi veðurupplýsinga. Á þessu gagnatorgi má með einföldum hætti nálgast allar veðurathuganir Veðurstofu Íslands sem skráðar eru í gagnagrunna hennar. Þessar at...
-
Fimm ráð handa frumkvöðlum
Aðstandendur Start09 átaksins báðu mig um að skrifa nokkra punkta um það sem ég hefði lært af því að koma á fót sprotafyrirtækjum í gegnum tíðina. Textinn hér að neðan er útkoman úr því, en þessir punktar birtust á vefnum þeirra núna á mánudaginn. Síðan ég útskrifaðist úr menntaskóla hef ég varla...
-
Opin gögn og gagnsæi – yfirlýsing stjórnvalda
Fyrir nokkrum vikum skrifaði ég færslu á bloggsíðu DataMarket um það sem kalla mætti “vægðarlaust gagnsæi“. Færslan gengur í stuttu máli út á það að leiðin til að endurreisa traust á Íslandi – jafnt inn á við sem út á við – felist í gagnsæi og heiðarleika á áður óþekktu stigi – að sýna svo […]
-
Nýting íslenskra auðlinda – ólík nálgun
Töluvert hefur verið rætt um náttúruauðlindir okkar Íslendinga, nýtingu þeirra og umgjörð síðustu mánuði. Í stuttu máli er um að ræða tvær meginauðlindir sem nýttar eru og fluttar út í dag svo nokkru nemi: endurnýjanleg orka og sjávarfang. Í framtíðinni verða þær etv. fleiri og mætti nefna neyslu...
-
Tugmilljarða misræmi í Icesave skjölum
Ég bið ykkur um að lesa eftirfarandi færslu mjög vandlega og með gagnrýnum huga áður en þið dragið nokkrar ályktanir, eða hefjið upphrópanir út frá því sem hér kemur fram. Þetta er afar viðkvæmt efni, óvíst að ég hafi rétt fyrir mér og góðar líkur á að það sem hér kemur fram eigi sér eðlilegar […]
-
Icesave-reiknir leiðréttur
Eftir ábendingu frá vökulum notanda, fundum við villu í Icesave-reikninum sem DataMarket setti í loftið í samvinnu við mbl.is í síðustu viku. Sjá fyrri færslu. Villan gerði það að verkum að áhrif breyttrar kröfuraðar voru ofmetin í þeim tilfellum þegar endurheimtar eignir Landsbankans verða verul...
-
Icesave reiknir mbl.is og DataMarket
Fyrr í kvöld var sett í loftið gagnvirk fréttaskýring um Icesave skudbindingarnar á mbl.is. Þetta er reiknivél þar sem lesa má skýringar við helstu álitaefni og óvissuþætti í samningnum og sjá hvaða áhrif breyttar forsendur hafa á skuldbindinguna sem ríkið tekst á hendur með samningnum, endurheim...
-
Drög að ávarpi Steingríms J. til Breta og Hollendinga
Ég gerði mér það að leik að setja saman drög að ávarpinu sem Steingrímur Joð þarf að flytja og koma að í alþjóðlegum fjölmiðlum á næstu dögum. Ekki hika við að koma með tillögur að úrbótum: – – – Dear Wouter Bos and Alister Darling, The Icelandic parliament has today rejected the agreements on th...
-
Þróun búsetu á Íslandi
Hjá DataMarket erum við alltaf að fikra okkur áfram í meðhöndlun og framsetningu ólíkra gagna. Áherslan hjá okkur þessa dagana er mikið á íslenskum efnahags- og þjóðfélagsgögnum, enda stefnum við á að opna svokallað Gagnatorg um íslenskan efnahag innan skamms. Við ákváðum að æfa okkur aðeins í fr...
-
100 dagar – tilraun í “opnu aðhaldi”
Þann 11. maí kynnti ný ríkisstjórn stjórnarsáttmála sinn og samhliða honum aðgerðaáætlun yfir verkefni sem hún hyggðist ljúka á fyrstu 100 dögum stjórnarsetunnar. Að flestu leyti eru svona vinnubrögð til fyrirmyndar: gagnsemi “to-do” lista er margsönnuð og þarna voru að auki sett fram mælanleg og...
-
Framtíð og gengi íslensku krónunnar
Framtíð og gengi krónunnar er ein af stærstu spurningunum núna í endurreisninni, enda snertir þetta mál svo að segja alla aðra þætti sem máli skipta: skuldastöðu þjóðarbúsins, stöðu heimila og fyrirtækja, efnahag bankanna, vísitölu neysluverðs og svo framvegis. Það skiptir því ekki litlu máli að ...
-
Framtíðarsýn Íslands, endurreisn og uppbygging
Guðjón Már félagi minn hefur verið að vinna frábæra vinnu með Hugmyndaráðuneytið undanfarna mánuði, ásamt öllu því hæfileikaríka fólki sem hefur gefið sig að verkefninu með honum. Hann er núna búinn að setja saman myndbönd sem lýsa þem hugmyndum sem þar hafa myndast um nauðsyn þess að Íslendingar...
-
Hægrimaður velur Vinstri Græn
Ég hef alltaf haft þann djöful að draga að þurfa að mynda mér mínar eigin skoðanir og geta ekki bara fylgt einhverri línu. Gróft á litið aðhyllist ég kapítalisma og frjálshyggju þó ég hafi efasemdir um þær útfærslur sem beitt hefur verið síðustu áratugi. Ég trúi því samt að með breytingum og aðlö...
-
Blessað bankahrunið
Ég hef ýjað að því alveg frá því á fyrstu dögunum eftir hrun, en ég verð sífellt vissari í minni sök: Mikið óskaplega höfðum við gott af þessu bankahruni. Þjóðfélagið var orðið fársjúkt og það virðist sama hvar stungið er á sárin, alls staðar vellur gröfturinn út. Viðskiptalíf og stjórnmál hafa a...
-
Hlutverk upplýsingatækni í rannsókn bankahrunsins
Nú eru a.m.k. fjögur embætti að rannsaka ýmsa þætti bankahrunsins: Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra Fjármálaeftirlitið Embætti sérstaks saksóknara Rannsóknarnefnd Alþingis Talsvert hefur verið talað um verkaskiptingu þessarra embætta, hæfi þeirra og aðra umgjörð, en eitt af því sem hefur ko...
-
Verðtrygging vs. myntkarfa
Smá DataMarket nördaskapur í morgunsárið. Hér er búið að teikna upp þróun 10 m.kr. láns frá 1. júlí 2007 (hátindi lánabólunnar okkar) m.v. þrenns konar mismunandi forsendur: ATH: Ekki er tekið tillit til afborgana eða vaxta, bara þróun á höfuðstól m.v. gefnar forsendur. Tölurnar á bakvið þetta (o...
-
DataMarket í Silfri Egils
Á sunnudaginn var fékk ég tækifæri til þess að kynna hugmyndir okkar DataMarket fólks um gögn og gegnsæi í Silfri Egils. Viðbrögðin hafa verið stórgóð og gaman að þetta virðist hafa fallið í góðan jarðveg. Upptöku af innlegginu má finna hér að neðan. Því miður tapast talsvert við það minnka vídeó...
-
DataMarket í Hugmyndaráðuneytinu á laugardaginn
DataMarket mun sjá um fund Hugmyndaráðuneytisins á laugardaginn kemur. Efnistökin verða gegnsæi, óhindrað aðgengi að upplýsingum og nýting gagna við upplýsta ákvarðanatöku , en þetta eru allt lykilatriði fyrir Næsta Ísland og raunar heiminn allan við að vinda ofan af vantrausti í stjórnmálum, fjá...
-
Greinargerð með frumvarpi um Seðlabanka
Kæra Jóhanna, Hér er greinargerð sú sem stjórn Seðlabankans fór fram á með nýju frumvarpi til laga um Seðlabanka Íslands: Þrjár stöður Seðlabankastjóra eru leifar gamalla tíma þegar stærstu stjórnmálaflokkarnir skiptu með sér æðstu embættum stofnana þjóðfélagsins. Þessar leifar eiga ekki heima í ...
-
Raunverulegt skatthlutfall – reiknilíkan
Í kjölfar færslu minnar í síðustu viku um Raunverulegt skatthlutfall á Íslandi, lét ég mana mig (þ.e. DataMarket) í að útbúa reiknilíkan sem sýndi sem best áhrif breytinga á skattkerfinu á tekjur hins opinbera og skattbyrði einstakra tekjuhópa. Líkanið má skoða hér. Allar ábendingar eru vel þegnar.
-
Tími stórra breytinga
Fljótlega eftir bankahrunið í byrjun október skrifaði ég bloggfærsluna Peningar vs. raunveruleg verðmæti. Eins og margir aðrir verð ég líklega að viðurkenna að ég skildi ekki til fulls það sem var að gerast á þessum tíma, hvorki hvað viðkom Íslandi eða heiminum í heild. Ég hef í gegnum tíðina ska...
-
Raunverulegt skatthlutfall á Íslandi
Uppfært 11. nóvember 2009: Sjá umræður um uppfært reiknilíkan. – – – Fyrirkomulag skattamála hefur verið dálítið í umræðunni síðustu daga og verður áreiðanlega talsvert fram yfir kosningar. Sitt sýnist hverjum og mikið er talað um skattþrep, hátekjuskatta, hækkun persónuafsláttar og svo framvegis...
-
Verkefnin vantar ekki…
Áður birt á vef Hugmyndaráðuneytisins. Á hverjum morgni labba ég fram hjá aðstöðu Listaháskólans við Skipholt. Þar í glugga stendur “Stefnumót bænda og hönnuða”. Smá Gúggl leiddi í ljós að þetta er verkefni sem hlaut styrk frá Tækniþróunarsjóði Rannís og er “frumkvöðlaverkefni í þágu atvinnulífsi...
-
Íslenska hagkerfið sett í samhengi
Þrátt fyrir að Money:Tech ráðstefnan hafi verið slegin af, ákváðum við DataMarket menn að halda áfram með fyrirlesturinn um ris og fall íslenska hagkerfisins. Meira um hann og birtingu hans síðar. Hér er samt önnur mynd sem segir meira en mörg orð. Flatarmál myntanna sýnir hlutfallslega stærð þei...
-
Af mótmælum, ímyndarmálum og skrílslátum
Uppfært: Ég er Appelsínugulur. Ég er sammála meginkröfum mótmælenda: Ríkisstjórnin þarf að víkja Stjórn og stjórnendur Seðlabanka og Fjármálaeftirlits þurfa að víkja Boða þarf til kosninga sem fyrst Framan af keypti ég þau rök að ekki væri rétt að “skipta um hest í miðri á”; að betra væri að hafa...
-
Appelsínugulur
Ég sýni lit: Appelsínugulur er sameiginleg yfirlýsing friðsamra mótmælenda. Við erum appelsínugul Við erum friðsöm Við viljum breytingar Appelsínugulur… … er friðsöm krafa um breytingar … merkir að sá sem fer fram með ofbeldi eða skemmdarverkum talar ekki í þínu nafni … er krafa um að Alþingi end...
-
Tæknispá 2009
Ég hef tvisvar ráðist í það í kringum áramót að gera “Tæknispár” fyrir komandi ár á Íslandi (2006 og 2008). Í fyrra minntist ég t.d. á tiltölulega lítið þekktan þátt í starfsemi bankanna: Erlenda innlánsreikninga sem nefndust Kaupthing Edge og Icesave og spáði því að bankarnir ættu eftir að útvík...
-
Bensínverð – eina ferðina enn
Ég hef áður gert nokkrar tilraunir með að draga upp mynd af bensínverði hér á landi miðað við þá þætti sem helst eru sagðir ráða verðmynduninni, þ.e. heimsmarkaðsverð á olíu og gengi bandaríkjadals. Nú hefur heimsmarkaðsverðið snarfallið, en gengið á móti í hæstu hæðum. Mér fannst því tími til ko...
-
Fjárlögin í myndum – uppfærsla
Gögnin frá annarri umræðu Alþingis um fjárlagafrumvarpið 2009 komu inn á Fjárlagavefinn um helgina. Í tilefni af því uppfærði ég myndræna framsetningu DataMarket á fjárlögunum (sjá upphaflega bloggfærslu) til að hægt sé að sjá með nokkuð þægilegum hætti þær breytingar sem gerðar hafa verið á útgj...
-
Fyrirtæki sem heita FS#
Það stökk á mig eins og líklega fleiri þegar fyrirtækið FS7 (félag Finns Ingólfssonar sem hagnaðist á viðskiptum með Icelandair) komst í hámæli hve mjög nafn félagsins minnti á FS37 (seinna Stím) og FS38 (fyrirtæki í tengslum við Pálma Haraldsson og Fons sem lánaði FS37 peninga – sama frétt). Gag...
-
Kreppan er kerfisvilla
Gátan er leyst: Kreppan er kerfisvilla. Með: …þá peningamálastefnu sem var í gangi, …örmyntina okkar – krónuna, …götótt regluverk …vanbúið eftirlitskerfi; og …þær ytri aðstæður sem verkuðu á hagkerfið – fyrst til vaxtar og svo til hafta …var þetta óhjákvæmilegt. Þetta hefur sem sagt ekkert með ei...
-
Gjaldeyrishöft og gengismál
Tveir punktar sem hafa skotið sér í kollinn á mér síðustu daga: Gjaldeyrisreglur Seðlabankans: Stjórnvöld eru komin á það stig að búa til reglurnar “as they go along”. Villi var duglegur um helgina – fyrir hönd Verne og CCP – að benda á skaðsemi þessarra reglna fyrir sprotastarfsemi og erlendar f...
-
CCP og loðnan
Ég rakst á það á vef Egils Helgasonar að nokkrir bloggarar eru að bera til baka þá fullyrðingu Kjartans Pierre, sem ég hafði óbeint eftir í Silfri Egils um daginn að hlutfall CCP í útflutningi sé svipað og loðnu. Fyrst af öllu vil ég taka fram að fátt er mér fjær en að gera lítið […]
-
DataMarket hleypt af stokkunum
Jæja, þá er komið að því. Fyrsti áfangi nýja fyrirtækisins – DataMarket – lítur dagsins ljós í dag. Eins og líklega hefur mátt lesa á milli línanna (og af nafninu) snýst DataMarket um að koma upp markaði fyrir kaup og sölu á gögnum. Þarna er einkum átt við tölfræði og töflugögn hverskonar, eða þa...
-
Nýsköpun í Silfri Egils
Ég fékk tækifæri til að koma að nokkrum orðum um nýsköpun og uppbyggingu fjölbreytts atvinnulífs í Silfri Egils í dag. Hér að neðan er upptaka af spjallinu. P.S. Ég vona að RÚV sjái í gegnum fingur sér með að það er klárlega brot á höfundarrétti að setja efni frá þeim á YouTube. Það er bara […]
-
Svona verður Næsta Ísland
Ein birtingarmynd kraftsins sem hefur verið leystur úr læðingi síðustu vikur er sú að almenn umræða er hætt að snúast um efnistökin í Séð og Heyrt og farin að snúast um stóru málin – málin sem skipta máli: Hvernig viljum við hafa Næsta Ísland? Hvernig vinnum við okkur útúr núverandi ástandi? Hver...
-
Þegar hugmynd fær fólk…
Fyrir fimm vikum síðan mætti ég á “kick-off” fund í námskeiði sem kallast Business Innovation Lab. Námskeiðið er samstarfsverkefni Listaháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík og er ætlað að koma saman viðskiptafræðinemum í HR og hönnunarnemum í hinum ýmsu greinum í LHÍ og nýta kraft og kunnáttu...
-
Af hverju nýsköpun?
Þessa dagana er mikið talað um nýsköpun og hvernig hún sé lykillinn að því að byggja hér upp fjölbreytt og kraftmikið atvinnulíf eftir hrun bankanna. Sjálfur hef ég beitt mér töluvert í þessa veru með skrifum og grasrótarvinnu (1 | 2 | 3 | 4 | 5). En af hverju nýsköpun? Er nýsköpun ekki bara […]
-
Hagkerfi stór og smá
Í einum af uppsveitum Borgarfjarðar býr rútubílstjóri á leigulóð. Fyrir nokkrum árum skuldaði hann landeigandanum leigu – sagan segir 50.000 krónur. Fyrir skuldinni skrifaði hann ávísun og afhenti landeigandanum. Landeigandinn taldi ólíklegt að innistæða væri fyrir ávísuninni, en lét gott heita. ...
-
Umhverfi sprotafyrirtækja
Mér var bent á skýrslu um umhverfi sprotafyrirtækja á Íslandi, sem ég man að ég sá á sínum tíma – og minnir reyndar að ég hafi tekið þátt í að svara: Stuðningsumhverfi sprotafyrirtækja á Íslandi (pdf) Þetta er býsna góð úttekt á þessu umhverfi og gagnlegur leiðarvísir, núna þegar virkilega þarf a...
-
Greiningadeild Hjalla
Ég er alger amatör í hagfræði og fjármálum. Ég hef samt ekki enn séð neinn virkilega rýna í stöðuna sem upp er komin hér á landi og hvert stóra myndin í efnahag þjóðarinnar stefnir og ef enginn vill gera hlutina fyrir mann, þá verður maður að gera þá sjálfur. Eftirfarandi hugleiðingar geta því ek...
-
Sprotastarfsemi í stormviðri
Þrátt fyrir að bjartsýni sé nauðsynleg, má hún auðvitað ekki vera úr tengslum við raunveruleikann. Mig langaði þess vegna til að benda á stórgott lesefni sem setur nýsköpun, frumkvöðlastarfsemi og reyndar fyrirtækjarekstur almennt í núverandi þrengingum í ágætt samhengi. Annars vegar er það kynni...
-
Sprota og -þekkingarfyrirtæki
Uppfært 29. október, 2008: Söfnun þessarra upplýsinga hefur verið flutt á vefinn Nýsköpun.org. Færslan var uppfærð m.t.t. þess. Við erum hérna nokkur að reyna að koma saman lista yfir helstu sprota- og þekkingarfyrirtæki landsins. Þetta er gert í því skyni að geta sýnt að þetta sé raunverulega ti...
-
Ástæður til bjartsýni
Óformlegum samtökum bölsýnismanna hefur ekki líkað bjartsýnin í mér síðastliðna viku (meira: 1 | 2) og skorað á mig að nefna dæmi um alla þessa jákvæðu hluti sem eru í gangi eða eru að fæðast. Gjöriði svo vel. Þekkingariðnaður Undanfarin ár hefur þekkingariðnaður utan bankanna hefur verið gersvel...
-
“Þróunarlandið” Ísland
Ég hef fengið allskonar uppbyggileg viðbrögð við þessum síðustu færslum mínum (1 | 2 | 3) um uppbyggingu í þekkingariðnaðnum hér á landi. Sjá t.d. athugasemdirnar við síðustu færslu. Að öðrum ólöstuðum, bera þó af viðbrögð félaga míns – Stefáns Baxter, snillings og frumkvöðuls par excellance. Ég ...
-
Nýja Ísland: Nokkur forgangsmál
Meira um kraftinn sem er að losna úr læðingi og hverng hægt er að virkja hann. Meðan útbrunnu pólitíkusarnir, reiðu álitsgjafarnir og fátæku auðmennirnir eru að taka til eftir partíið og rífast um það hvort bankakerfið stækkaði of mikið fyrir baklandið eða baklandið fylgdi ekki nógu vel eftir ban...
-
Vorum við öll sofandi?
Undanfarnir dagar hafa verið merkilegir. Vikurnar tvær hér á undan virðast hafa farið í þunglyndi og “refresh” á mbl.is, vb.is og Eyjunni hjá voðalega mörgum. Ég er þar engan veginn undanskilinn. Síðustu tvo daga hef ég aftur á móti orðið þess var að þetta er mjög að snúast við. Fólk er farið að ...
-
Peningar vs. raunveruleg verðmæti
Í hamaganginum undanfarna daga hafa sótt að mér allskyns heimspekilegar pælingar. Sumar þeirra snúast um eðli peninga og hversu mikið peningar eigi skylt við raunveruleg verðmæti. Þarna er ég ekki að tala um mjúku hliðina – að raunveruleg verðmæti felist í ást, kærleika og hamingju (slíkt er einf...
-
Framtíð viðskipta: Opið bókhald og fullkomið gegnsæi?
Ég átti umtalverða peninga í hinum “áhættulausa” og nú alræmda Sjóði 9 hjá Glitni. Það þýðir ekkert að gráta það, þó auðvitað fylgist maður með því hvernig umræðan þróast um það hvort sjóðurinn hafi verið kominn út fyrir yfirlýsta fjárfestingastefnu sína og þá möguleg eftirmál þess. Þegar ég tala...
-
Fjárlagafrumvarpið í myndum
Fjárlagafrumvarp ársins 2009 var kynnt í dag. Frumvarpið sjálft er doðrantur sem fáir hafa undir höndum. Hægt er að lesa sig í gegnum frumvarpið á Fjárlagavef Fjármálaráðuneytisins, en það er ekki beinlínis aðgengilegt og ekki auðvelt að átta sig á stóru samhengi hlutanna. DataMarket brást skjótt...
-
Myndræn framsetning gagna: Mannfjöldaþróun á Íslandi
Eins og nafnið gefur til kynna snýst DataMarket um öflun og miðlun hvers kyns gagna. Ég er þessvegna búinn að vera að velta mér mikið síðustu vikurnar uppúr allskyns gagnamálum og þeim möguleikum sem góð og aðgengileg gögn opna. Myndræn framsetning er eitt af því sem getur gefið gögnum mjög aukið...
-
Opin gögn – nýtt vefsvæði
Við erum, nokkrir félagar, að hleypa af stokkunum í dag nýju vefsvæði: opingogn.net Það er hann Borgar sem fékk hugmyndina að þessu framtaki í vor eftir að ég flutti erindi um aðgengi að opinberum gögnum á hádegisverðarfundi sem Sjá og Marimo stóðu fyrir. Borgar setti upp vefinn og hýsir hann, en...
-
Samhengi bensínverðs, gengis og olíuverðs
Vegna umræðu um bensínverð og samhengis þess við heimsmarkaðsverð á olíu og gengi dollars, uppfærði ég bloggfærslu frá í haust sem sýnir þetta samhengi á grafískan hátt. Niðurstöðurnar koma etv. svolítið á óvart.
-
Bankastærðfræði 101
Þann 1. apríl síðastliðinn stofnaði ég banka. Þetta er alþjóðlegt fjármálafyrirtæki og af þeim sökum var höfuðstóllinn auðvitað í erlendri mynt: 1.000 evrur í fimm brakandi 200 evra seðlum. Sökum framtaksleysis hefur lánastarfsemin látið á sér standa og seðlarnir eru enn á náttborðinu – og nú líð...
-
hjalli.com á nýjum slóðum
Ég er horfinn í skýið. Ég hef ákveðið að hætta að reka minn eigin vefþjón og bloggkerfi og koma þessu frekar fyrir í hýstri umsjón hjá WordPress.com. Þá þarf ég ekki lengur að sjá sjálfur um að uppfæra bloggkerfið, viðhalda spamvörnunum og tryggja að óprúttnir aðilar nýti ekki nýjustu öryggisholu...
-
Tvær skemmtilegar tæknisögur
Ég er svo heppinn að vera þessa dagana staddur á ráðstefnu sem nefnist Web 2.0 Expo í San Francisco. Fyrsti dagurinn var í gær og margt fróðlegt sem þar kom fram. Að öðrum ólöstuðum stóð þó fyrirlestur Clay Shirky, prófessors við NYU. Shirky er einskonar upplýsingatækni-félagsfræðingur, þ.e. hann...
-
Viðurkenning fyrir Afríkumyndir
Magga er búin að sitja sveitt við undanfarið að setja saman Tabblo með myndunum okkar frá Úganda og Rúanda. Þetta skiptist í tvennt: Ferðasöguna Bestu myndirnar Bestu myndirnar fóru í loftið í gær og viti menn: Tabblo valdi þær “Tabblo dagsins” (sjá forsíðu – innskráðir notendur)! Þannig að við e...
-
Al Gore, öfgar og staðreyndir
Þetta átti upphaflega bara að vera svar við bloggfærslu Sveins vinar míns Tryggvasonar um málið, en það stóð hvort eð er til að gera úr þessum pælingum bloggfærslu… 🙂 Ég mætti. Fyrirlesturinn var þrælgóður, enda þaulæft “performance”. Það gáfust 20-30 mínútur í spurningar svo vandinn var ekki að ...
-
Frítt bensín!
Smá pæling í umræðuna um bensínverð. Af hverju tekur ekki eitthvert olíufélagið sig til og fer að selja bensín án álagningar? Þetta hljómar auðvitað fáránlega, en skoðum þetta aðeins í ljósi ókeypis hagfræðinnar. Olíufélögin þreytast ekki á því að kvarta yfir því að þau eigi minnstan þátt í bensí...
-
Aðgangur að opinberum gögnum
Uppfært: Viðtalið er hér á Vísi.is Ég hélt á dögunum fyrirlestur á málþingi Tungutækniseturs og Íslenskrar málnefndar. Yfirskrift málþingsins var “Á íslenska sér framtíð innan upplýsingatækninnar?” og fjallaði að mestu um tungutækni annars vegar og hins vegar þýðingar á hugbúnaði. Mitt erindi fja...
-
Myndir frá Afríku
Jæja myndirnar frá Úganda og Rúanda eru loksins komnar á Flickr. Ferðasagan fer svo í framhaldinu inn á Tabblo eins og áður.
-
Fordómar og frjáls viðskipti (lexía frá Afríku)
Ein af ástæðunum fyrir því að okkur þykir svo gaman að ferðast á óhefðbundnar slóðir er að það er alltaf eitthvað sem fær mann til að sjá lífið og tilveruna í aðeins öðru ljósi en áður. Ferðin okkar til Úganda og Rúanda núna í lok febrúar var síst undantekning. Hugmyndir okkar flestra um svona fr...
-
Raftað á – og í – Níl (vídeó)
Ferðin okkar til Úganda og Rúanda var í stuttu máli stórkostleg. Maður skilur heiminn alltaf örlítið betur eftir því sem maður sér fleiri hliðar hans. Meira um það í alvarlegari færslu næstu daga. Hér eru hins vegar smá sýnishorn frá föstudeginum var. Við sigldum sem sagt niður efstu 36 kílómetra...
-
Afríka – hér komum við…
Í fyrramálið förum við á vit ævintýranna í Afríku. Má eiginlega segja að við höfum “eipað” á þessu 🙂 Þeir sem hafa áhuga geta skoðað ferðaplanið.
-
Að kryfja texta…
IBM hefur undanfarin tvö ár eða svo verið að þróa tölfræði-, gagna- og graf-græju sem nefnist ManyEyes. Í síðustu viku var ég svo heppinn að fá að sjá fyrirlestur frá höfuðpaurnum á bakvið þessa þjónustu. Þar var hann að sýna tiltölulega nýlega viðbót sem eru tól til að grafa í hreinan texta (fre...
-
Tæknispá 2008
Fyrir tveimur árum, þegar ég var með vikulega pistla á NFS um tölvur og tækni skrifaði ég Tæknispá fyrir árið 2006 – um átta hluti sem myndu gerast það ár. Árangurinn verður hver að meta fyrir sig, en hér er a.m.k. samskonar spá fyrir komandi ár. 7 hlutir sem munu gerast 2008: Hægir á ráðningum […]
-
Ný vinna – en samt ekki
Ég er kominn í nýtt djobb, svona að hluta til. Ég ber nú þann fróma titil “Tæknistjóri” hjá Já og ber sem slíkur ábyrgð á þróun og stefnu vefmála hjá fyrirtækinu, auk tækniumhverfis fyrirtækisins í stærra samhengi hlutanna. Ég hef auðvitað verið viðloðandi fyrirtækið allt frá því að það keypti Sp...
-
Snúið mál – íslenska
Á degi íslenskrar tungu sem haldinn var þann 16. nóvember síðastliðinn var m.a. opnaður aðgangur að nýrri útgáfu gagnagrunns sem nefnist “Beygingarlýsing íslensks nútímamáls“. Í Beygingarlýsingunni er í dag að finna fullkomin beygingardæmi yfir 250 þúsund íslenskra orða! Gögnin í þessum grunni er...
-
Bensínverð
Uppfært 7. ágúst 2008 með nýjustu gögnum Skemmtilegt hvað hægt er að gera á internetinu nú til dags með lítilli fyrirhöfn. Með því að bræða saman þrjár einfaldar gagnauppsprettur Gengisupplýsingar frá Seðlabankanum Þróun verðs á hráolíutunnu frá Energy Information Administration í Bandaríkjunum N...
-
Snilldar vídeó um Vefinn 2.0
Michael Wesch er aðstoðarprófessor í mannfræði við Kansas State Háskólann. Vídeóið hér að neðan er eftir hann og var sýnt á opnun Web 2.0 Expo sem ég fór á í San Francisco í vor. Þetta er listræn en um leið mjög flott leið til að sýna hvernig allir hlutir hanga saman á Vefnum, ekki síst […]
-
Ókeypis hagfræði
Þessar hugleiðingar mínar birtust í Viðskiptablaðinu fyrir skemmstu. Ákvað að smella þeim hér inn líka. Skortur er lykilhugtak í hagfræðinni. Skortur er þegar eftirspurn eftir vöru er meiri en framboðið. Áhrifin eru yfirleitt þau að verð vörunnar hækkar. Þar með minnkar eftirspurnin og jafnvægi k...
-
Zlango
Þetta gæti orðið vinsælt:
-
iPhone – nú líka sími
-
Listin að þekkja Íslendinga
Ég vil endilega leysa ráðgátuna um það hvernig í ósköpunum maður fer að því að þekkja Íslendinga erlendis. Þetta er skemmtilegur samkvæmisleikur sem ég veit að margir stunda, t.d. á flugvöllum og við erum flest alveg ótrúlega góð í þessu. Ég er sem sagt að tala um þessa vissu sem stingur sér í ko...
-
3G!
Þriðju kynslóðar farsímakerfi Símans er komið í gagnið. Meira á bloggi Símans.
-
Fjallasýn í Biskupstungum
Klöngraðist upp á þak á bústaðnum hjá pabba og Ástu og tók nokkrar myndir sem ég raðaði svo saman í panoramamynd í DoubleTake. Það má finna samskeyti á einum eða tveimur stöðum, en annars nokkuð gott. Smellið á myndina til að sjá hana í meiri upplausn.
-
Skakkur heimur
Ef flugslys væru mun algengari en þau eru í dag, myndu þau ekki vera eins áberandi í fréttum. Fólk fengi þá á tilfinninguna að þau væru sjaldgæfari og væri ekki eins hrætt við að fljúga. Eldgos teljast yfirleitt fréttnæm, en á Ítalíu er eldfjallaeyja sem heitir Stromboli. Hún hefur gosið nær samf...
-
iHave
Kominn í hús…
-
Prius vs. Hummer
Smá viðbót við pistilinn um öfgana í umræðunni um global warming. Glottandi menn hafa ítrekað sagt mér að Prius-inn sé í raun og veru alls ekki umhverfisvænni en Hummer – satt að segja mun verri – og að auki kosti hann meira en aðrir bílar sömu stærðar. Ég kafaði aðeins í málið. Best þekkta “rann...
-
“Leiðrétt” stig í Scrabble
Ég get ekki neitað því að ég er nörd. Ein af annars ótal ótvíræðum sönnunum þess fylgir hér með. Okkur hjónin hefur stundum grunað þegar við erum að spila Scrabble að stigin sem valin hafa verið þegar íslensk útgáfa spilsins var gerð endurspegli ekki endilega tíðni þeirra í íslensku máli. Bara ei...
-
iPhone tekinn til kostanna
Eins og flestum sem þekkja mig er líklega ljóst hef ég um skeið haft nokkrar væntingar til iPhone símans frá Apple. Við frúin komum höndum yfir græjuna í morgun og fengum að leika okkur með hana í hálftíma eða svo. Til að gera langa sögu stutta stóð síminn undir væntingum og gott betur. Eins og […]
-
Hugsað út fyrir kassann
Eftir að hafa melt þessa ferð okkar til Ecuador í nokkrar vikur, held ég að eftirfarandi frásögn standi upp úr. Í Amazon-skóginum fengum við tækifæri til að heimsækja indíánaþorp. Á þessu svæði býr ættbálkur indíána sem lifir að miklu leiti eins og þeir hafa gert í árhundruð, ef ekki þúsundir. Þe...
-
Global Warming og öfgar
Sýning RÚV á “The Great Global Warming Swindle” í vikunni hefur hrist duglega upp í umræðunni um hnattræna hlýnun. Sem er gott. Ég horfði á umrædda mynd á Google Video stuttu eftir að hún var upphaflega sýnd á Channel 4 í Bretlandi, en skilst að útgáfan sem var sýnd hér hafi verið lítillega breyt...
-
Bloggari Símans
Á mánudaginn fór Blogg Símans í loftið á blogg.siminn.is Hugmyndin er að byggja upp fróðlegt og lifandi blogg um tölvur, tækni og fjarskipti. Efnistökin verða víð: umfjöllun um nýjar græjur, sniðugan hugbúnað, skemmtilegar vefsíður, tölvuleiki, framtíð, nútíð og fortíð Internetsins og svo framveg...
-
Myndir frá Ecuador
Jæja, við komum heim úr stórkostlegri ferð til Ecuador á fimmtudaginn. Heimsóttum meðal annars Amazon frumskóginn og Galapagoseyjar. Nákvæmari ferðasaga er í smíðum, en skástu myndirnar eru komnar inn á Flickr. – – – Photos from our trip to Ecuador (including the Amazon basin and the Galapagos). ...
-
Íslandshreyfingin fyrir mig – takk
Ég er búinn að komast að niðurstöðu. Ég ætla að kjósa Íslandshreyfinguna. Áherslur þeirra eru nánast algerlega í samræmi við mína sýn á íslenskt samfélag. Mæli með að þið lesið þær, það er margt gott í þessu. Ég var ekki alveg viss með mannskapinn til að byrja með, en það hefur komið mér ánægjule...
-
Dohop á BBC
Íslenska ferðaleitarvélin Dohop ein af þrem áhugaverðustu síðunum ásamt Digg.com og picnik.com. Til hamingju með þetta Frosti og co.
-
Delicious Library: Magnað tól!
Var að upplifa eitt af þessum “þetta er ótrúlegt” nörda-mómentum rétt í þessu. Delicious Library heitir forrit sem hjálpar fólki að halda utan um bókasafnið sitt (og reyndar kvikmyndir, geisladiska og tölvuleiki líka). Ég heyrði fyrst um þetta kerfi fyrir örugglega bráðum 2 árum, en þar sem þetta...
-
Peel – önnur snilld dagsins
Peel er alíslenskt forrit eftir Hjalta Jakobsson sem gerir manni kleift að fylgjast með MP3-bloggum (það er betra að lesa bara skýringuna á síðunni). Minnst á þetta í tvígang í Wired og rífandi móttökur notenda. Samt hefur maður ekki séð neitt um þetta í íslensku pressunni. Menn hafa nú grafið up...
-
Tækni og vit: Þriðja kynslóðin kemur
Greinin sem fylgir er sú síðari af tveimur greinum sem ég skrifaði fyrir Tækni og vit blaðið sem dreift var með Viðskiptablaðinu á föstudaginn. Sýningin Tækni og vit hefst á fimmtudaginn og lofar góðu. Um þessar mundir er umsóknarfrestur rekstrarleyfa fyrir þriðju kynslóðar farsímanet – eða 3G – ...
-
Tækni og vit: Framtíð Netsins
Greinin sem fylgir er önnur af tveimur greinum sem ég skrifaði fyrir Tækni og vit blaðið sem dreift var með Viðskiptablaðinu á föstudaginn. Sýningin Tækni og vit hefst á fimmtudaginn og lofar góðu. Á 10 árum hefur Netið orðið svo órjúfanlegur þáttur af samfélaginu, að það liggur við að spádómar u...
-
Reynslan af Prius
Nú erum við búin að eiga Priusinn í bráðum fimm mánuði. Þó að þetta séu orðnir furðu algengir bílar, er fólk oft að spyrja okkur út í reynsluna af honum. Hér kemur hún í hnotskurn. Stutta útgáfan er að reynslan er mjög góð. Þetta er bíll og hagar sér að öllu leyti sem slíkur. Krafturinn […]
-
Koltvísýringsverksmiðjan í Reyðarfirði
Hugleiðing: Kexverksmiðjur framleiða mest af kexi Bílaverksmiðjur framleiða mest af bílum Álverksmiðjur framleiða mest af … koltvísýringi Ættu þær þá ekki að heita koltvísýringsverksmiðjur? 😉 – – – Lægsta talan sem ég fann var 1,2 tonn af CO2 per tonn af áli (síða 5). Alcoa sagði við Herald Tribu...
-
Makki og ég
Ég er opinberlega orðinn Makka-maður. Búinn að vera að dandalast með MacBook Pro í nokkra mánuði og kunnað því vel, en skipti endanlega í gær. Makkinn er núna mín aðaltölva. Það verður líklega kveikt á Pésa í nokkra daga til viðbótar meðan ég er að sækja það sem ég er smám saman að átta mig […]
-
Af bjálkum og flísum
Menn hafa verið að hneykslast á Ólafi Ólafssyni fyrir að eyða tugum milljóna í afmælisveislu sem hann hélt í gærkvöldi. Hneykslunin á því hefur jafnvel skyggt á gjöf hans og konu hans, Ingibjörgu Kristjánsdóttur, upp á milljarð til styrktar menningarmálum og uppbyggingu í þróunarlöndum í tilefni ...
-
iPhone therefore iAm
Ég skrifaði í haust um orðróminn sem hefur gengið undanfarið hálft ár eða svo um nýja símann og sjónvarpsgræjuna frá Apple. Á þriðjudaginn gerðist það svo. Steve Jobs steig fram á sviðið af sinni alkunnu snilld og heillaði tækniheiminn upp úr skónum. Hamagangurinn í kjölfarið er svo mikill að App...
-
Pæling um evruna
Í tilefni af aukinni umræðu um evruna upp á síðkastið, þá gróf ég upp þennan póst sem ég sendi kunningja mínum síðasta vor: Ein pæling varðandi krónuna / evruna: Þó þjóðin taki upp ekki upp Evruna, get ég þá gert það – einhliða? Ég rek lítið fyrirtæki og stefni að því að hafa bróðurpartinn af […]
-
Opera Mini 3 – tóm snilld
Frændur okkar í Noregi settu nýjustu útgáfuna af Opera Mini farsímavafranum á markað í vikunni. Ég prófaði gripinn og verð að segja að ég er mjög hrifinn. Meira að segja “jólatréssíður” eins og forsíða mbl.is koma bara mjög vel út á litla skjánum á Walkman símanum mínum. Það er líka mjög góður RS...
-
Vetni og aðrir orkugjafar
Í Mogganum um helgina var merkilegt viðtal við Baldur nokkurn Elíasson sem vann hjá sænska stórfyrirtækinu ABB um árabil. Stuttur inngangur að viðtalinu er hér á fréttavef mbl.is, en mun meira í blaðinu sjálfu. Ég held reyndar að það sé alvarlegur misskilningur í málflutningi Baldurs í þessari gr...
-
Disney er (loksins) að ná þessu
Í framhaldi af háfleygum skoðunum mínum um Apple og leyfismál, þótti mér vænt um þetta quote í Anne Sweeney, sem er yfir nýjum miðlum hjá Disney: Fear of piracy had driven Disney to be aggressive in its pursuit of new media, Sweeney said. “We now understand that piracy is a business model. It exi...
-
Prius og gróðurhúsalofttegundir
Það er kominn nýr bíll á heimilið. Og hvað er meira viðeigandi fyrir nörda eins og okkur en Prius? Fyrir þá sem ekki vita er Prius svokallaður tvinn-bíll. Það þýðir að hann er með tvær vélar: bensínvél og rafmótor. Í hvert sinn sem maður bremsar eða fer niður brekku, hleður bíllinn rafgeyminn fyr...
-
Panorama: Fjallasýn í Borgarfirði
Tók þessa mynd í sumar og fann hana núna í einhverri tiltekt hjá mér. [smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu] Þetta er s.s. fjallasýn í Borgarfirðinum, sem var ekkert spes þegar maður var að alast upp þarna en verður glæsilegari eftir því sem maður sér hana sjaldnar. Frá vinstri til hægri er...
-
Mannaskoðun – framhald
Í gær heyrði ég af fyrirtæki sem heitir Liðsinni, en meðal þeirrar þjónustu sem það fyrirtæki býður upp á eru heimsóknir í fyrirtæki þar sem starfsmenn eru teknir í heilbrigðisskoðun, líkt og ég skrifaði um fyrir einhverjum vikum síðan. Fólk er tekið í viðtal, tekið blóðsýni og það skimað eftir h...
-
14 milljarða rafmagnsreikningur
Fyrir nokkrum vikum skrifaði ég um raforkuþörf vélabúa heimsins og gerði tilraun til að reikna orkuþörf Google í því samhengi. Í vikunni rakst ég svo á þessa grein frá SF Gate um raforkuþörf bandarískra IT fyrirtækja: Google is a prime example of a fast-growing company that faces huge power deman...
-
Efni óháð veitu
Á föstudaginn var urðu nokkur tímamót í efnisdreifingu hérlendis. Þetta fór ekki mjög hátt, en er þó þróun sem vert er að veita athygli. Þannig er að nú geta þeir sem eru með afruglara frá Digital Íslandi og þeir sem eru með ADSL sjónvarp frá Símanum keypt aðgang að miðlum hins aðilans án þess að...
-
Ofbeldisverk, kvikmyndir og tölvuleikir
Þetta kemur í ljósi óhugnarlegra frétta síðustu viku og umræðu í kjölfarið. Ég held að það sé ekki spurning að kvikmyndir og tölvuleikir gefa veiku fólki hugmyndir að útfærslu ofbeldisverka, hins vegar er ástæða til að efast um að þau valdi þeim. Þetta getur skýrt það sem virðist við fyrstu sýn þ...
-
Þriðjudagstæknin: Leitarvélaauglýsingar
Síðustu misseri hafa allmargir haft samband við mig til að forvitnast um leitarvélaauglýsingar, hvað það sé, hvernig þær virki og hvort þær séu fýsilegur auglýsingakostur. Ég geri mig á engan hátt út sem ráðgjafi um þessi mál, en veit þó ýmislegt um þau af eigin raun, bæði sem auglýsandi og sem a...
-
Stórleikur Apple
Hæpmaskína Apple fór á fullt um helgina og í dag kynntu þeir nokkrar nýjungar. Sjálfur var ég nokkurnveginn viss um að þeir ætluðu að kynna iPod-farsímann sem er klárlega í undirbúningi. Það má meðal annars má lesa úr splunkunýju einkaleyfi sem þeir fengu í fyrir helgina. Ég varð því fyrir hálfge...
-
Þriðjudagstæknin: Rock Star – afþreying framtíðarinnar
Hvort sem fólki finnst Rock Star: Supernova það besta sem sjónvarpið hefur alið síðan Prúðuleikararnir voru og hétu eða uppblásin og oflofuð karíókíkeppni, leyfi ég mér að fullyrða að hér er um tímamótasjónvarpsefni að ræða. Þá er ég ekki að tala um þættina sjálfa eða efnistök þeirra, heldur hver...
-
Minnispunktur til mín vegna Árna Johnsen
Ok – Hjalli opnar sig. Fram að þessu hef ég kosið Sjálfstæðisflokkinn vegna þess að það er eini flokkurinn sem hefur verið eitthvað nærri mínum lífsskoðunum á flestum sviðum. Það vantar alltaf minn flokk – hægri kratana – þannig að þetta hefur verið skásti kosturinn. Það sem hefur helst farið í t...
-
Þriðjudagstæknin: Skoðun
Einu sinni á ári fer ég með bílinn minn í skoðun. Þetta er lögbundið eftirlit sem tryggja á öryggi mitt og annarra í umferðinni. Ef ég trassa það að fara með bílinn í skoðun er númerið klippt af honum og hörð refsing sem liggur við því að aka honum um göturnar. Það er sjálfsagt mál […]
-
Spurl á CNN
Jæja – haldiði ekki bara að CNN (ok – Business 2.0) hafi pikkað Spurl.net upp sem eitt af því flottasta sem er að gerast á vefnum og “á ekki uppruna sinn í USA”. Þið smellið sem sagt á tengilinn “bla-bla 23 clicks” neðst í greininni og íslenski fáninn fer ekki fram hjá ykkur 🙂 Fyrir […]
-
Tölvusíminn
Ég var nú bara fjári impressed af þessari nýju vöru sem Síminn var að setja í loftið: Tölvusíminn. Ég hafði ekkert með þetta að gera – rétt náði í endann á trialinu áður en þetta fór í loftið. Þetta bara virkar. P.S. Já, ég vinn hjá Símanum; Nei, hjalli.com er ekki að breytast í eitthvað […]
-
Myndir frá Afríku / Photos from Africa
Magga Dóra er búin að setja inn myndaseríu úr Afríkuferðinni okkar á snilldargræjunni Tabblo. – MDR&HG: Afríka 2006 – – – Magga has Tabblo-ed some of our photos from the Africa trip. – MDR&HG: Africa 2006
-
Sala Spurl ehf.
Síðustu vikur hafa verið viðburðaríkar. Í síðustu viku komum við Magga heim úr 17 daga reisu um Austur-Afríku, nánar tiltekið um Kenía og Tansaníu. Miklu meira um það síðar. Rétt áður en við fórum út var líka gengið frá kaupum Já (sem gefur út Símaskrána, rekur 118 símaþjónustuna og vefsvæðið ja....
-
Þriðjudagstæknin: Kaup og sala þekkingariðnaðarmanna
Efni Þriðjudagstækninnar í dag eru samningar þekkingarfyrirtækja við starfsmenn og af hverju þeir eru ekki meira eins og samningar íþróttamanna “Það verðmætasta sem þekkingarfyrirtæki eiga eru starfsmennirnir.” Þessu heyrir maður oft fleygt og þetta er auðvitað í flestum tilfellum dagsatt. En hve...
-
Þriðjudagstæknin: Kína
Efni þriðjudagstækninnar í dag (já, á fimmtudegi) er innkoma netrisanna Google, Yahoo! og Microsoft á Kínverska netmarkaðinn. Í Kína búa nærri 400 milljónir manna sem búa við svipuð kjör (efnahagslega) og Evrópubúar. Meðaltölur eru ósköp villandi því svo er heill milljarður kínverja í viðbót sem ...
-
Já – já – já – jájájájájá – já er tilbúinn…
Eins og glöggir netverjar hafa ef til vill tekið eftir er kominn upp nýr og breyttur vefur hjá Símaskránni. Við Spurl menn komum að þessu eins og flestum leitarverkefnum landsins þessa dagana – bráðum getiði ekki einu sinni leitað að bíllyklunum ykkar án þess að við komum þar við sögu. Eins og á ...
-
Efni Þriðjudagstækninnar í dag eru auglýsingar og annað efni sem “pöpullinn” býr til og er í auknum mæli að ryðja sér til rúms sem áhrifavaldur í ýmiskonar efnisframleiðslu. Pæliði til dæmis í því að þessi auglýsing frá Sony var búin til af 18 ára gömlum “amatör”, en er núna í sýningum í Bandarík...
-
Þriðjudagstæknin: Enn um erótík og efnisveitur
Ákvað að taka þetta sama efni fyrir í Þriðjudagstækninni í dag. Pistillinn er hér: Erótík og efnisveitur Þriðjudagstæknin er vikulegt spjall um tölvur og tækni á NFS á þriðjudögum kl 11:10
-
Ruslakall í Skerjafirði?
Ég er að vinna þessa dagana í verkefni þar sem kort koma býsna mikið við sögu. Meira um það síðar, en þegar ég var að skoða kortin, þá rakst ég á þessa stórfínu mynd af kalli að gramsa í ruslatunnu – sem er mynduð af götunum í Skerjafirðinum. Miðað við staðsetninguna er hann nú kannski […]
-
Tölvuheimur: Erótík og efnisdreifing
Henti inn nýjum pistli á Tölvuheim. Umræðuefnið er hvernig klámiðnaðurinn hefur drifið áfram tækniþróun í efnisdreifingu undanfarna áratugi og nýjasta útspilið úr þeirri átt.
-
Spurl.net verðlaunað
Spurl.net var valin einn af þrem bestu bókamerkjavefjunum í svokölluðum Web2.0 awards, sem veitt voru á þriðjudaginn. Það er fín umsögn um okkur þarna og svona. Til að finna hana þarf að smella á “Bookmarking” í listanum yfir “Award categories” og þá hoppar síðan niður í okkar flokk. Gaman að þes...
-
Þriðjudagstæknin: Hver á að borga hverjum hvað?
Efni þriðjudagstækninnar í dag er hver borgar hverjum hvað á Netinu og fyrir hvað. Uppbygging Internetsins kostar sitt, hverjum er réttlátt að senda reikninginn? Lengri texti væntanlegur hér seinna, en grunnspurningin er þessi: Hvort eru það Google, BBC og aðrar efnisveitur sem gera þjónustu síma...
-
Zniff leitar á Vísindavefnum
Gaman að segja frá því að leitartæknin okkar Spurl-manna – Zniff – er komin í gagnið á Vísindavefnum. Það munar umtalsverðu að geta leitað í þessu stórgóða efni með “orðmyndaleit”, en það er jú eitt af því sem leitin okkar er svo góð í. Zniff knýr að sama skapi leitina á leitarvélinni Emblu og hj...
-
Þriðjudagstæknin: Með marga bolta á lofti
Efni Þriðjudagstækninnar í dag er “multitasking”. Þ.e. hvernig við og ekki síst krakkarnir tökumst á við ótal hluti í einu – og hvort við ráðum í raun og veru við það. Þegar ég var lítill heyrði ég um mann sem gat talað í símann, skrifað bréf og hlustað á útvarpsfréttirnar, allt í einu. Þetta þót...
-
Tölvuheimur: Hvað veit Vefurinn um þig?
Var að klára grein í Tölvuheim. Smá vangavelta um það hvaða upplýsingar er hægt að finna um flest okkar á Vefnum: Hvað veit Vefurinn um þig?
-
Þriðjudagstæknin: Rafhlöður, rafmagnsnotkun og þráðlaust rafmagn
Efni Þriðjudagstækninnar í dag er rafmagnsnotkun og rafhlöður í tölvur og önnur raftæki og draumurinn um þráðlaust rafmagn. Eitt helsta vandamál stórra vélabúa* nú orðið er rafmagnsnotkun – og ef til vill ekki að undra. Að sögn eru t.d. um 200.000 tölvur í vélabúum Google í Kaliforníu. Hver um si...
-
Þriðjudagstæknin: Símakurteisi
Efni þriðjudagstækninnar í dag er farsíminn og hvernig á því stendur að þegar síminn hringir þarf allt annað að víkja. Hérna einu sinni voru símtöl fágæt. Það að fá símtal, var jafnvel merkilegara en að fá símskeyti eða sendibréf. Þetta var viðburður og var tekið alvarlega – þeim mun alvarlegar s...
-
Tölvuheimur: Tvær stuttar og tvær langar
Skellti nýjum pistli inn á Tölvuheim. Fjalla í þetta sinn um gamla sveitasímann, sem ég kynntist þegar ég var polli, og kosti hans og galla miðað við það sem við þekkjum í dag. Pistillinn er hér: Tvær stuttar og tvær langar
-
Þriðjudagstæknin: Gamlar skruddur
Efni Þriðjudagstækninnar í dag eru gamlar tölvubækur og skemmtilegar tilvitnanir úr þeim Nokkur undanfarin ár hef ég verið að sanka að mér gömlum íslenskum tölvubókum. Þetta átti nú ekki að verða alvarleg söfnun en hefur þó ágerst. Það var merkilega mikið skrifað um tölvur strax fyrir 20-30 árum ...
-
Þriðjudagstæknin: Ekki þennan tón…
Efni Þriðjudagstækninnar í dag eru samskipti á textaformi og hvernig okkur hættir við að lesa rangt í “tón” samskiptanna. Nú orðið fer umtalsverður hluti samskipta margra okkar fram á textaformi, annað hvort í tölvupósti eða í skilaboðaforritum á borð við MSN Messenger. Í þess háttar samskiptum v...
-
Tölvuheimur og Ísland í dag
Tölvuheimur hætti að koma út á pappírsformi um áramótin. Ég er búinn að skrifa í blaðið meira og minna í næstum 10 ár og held mig þrátt fyrir allt við sama heygarðshornið, en vefútgáfa blaðsins var að líta dagsins ljós núna fyrir helgi og verður að mér skilst uppfærð daglega. Fyrsti pistillinn mi...
-
Þriðjudagstæknin: Sniglapósturinn lifir
Efni Þriðjudagstækninnar í dag er framtíð póstþjónustu – ekki tölvupóstþjónustu heldur hins – sniglapóstsins Það þótti voða fyndið svona í árdaga Netsins að vísa til bréfasendinga sem “sniglapósts” eða “snail mail”. Svoleiðis póstur var gamaldags, tók langan tíma, kostaði – með öðrum orðum tilhey...
-
Smá Firefox trikk
Eitt af því sem fer í taugarnar á mér við vefsíður er þegar höfundur síðunnar vill ákveða fyrir mig hvort ég vilji opna tengil í nýjum glugga eða ekki. Ég nota alla helstu vafrana (IE, Firefox og Opera) eitthvað, en þó er Firefox aðalvafrinn. Ég tók svo eftir því áðan að Firefox (1.5 og nýrri) […]
-
Þriðjudagstæknin: Spáð í framtíðina
Efni Þriðjudagstækninnar að þessu sinni eru framtíðarspár, gagnsemi þeirra og tilgangur. Í tækniheiminum er umtalsverður fjöldi fólks sem vinnur við það að spá fyrir um framtíðina. Þetta eru ráðgjafar stjórnvalda, stórfyrirtækja og stofnanna sem ætlað er að spá í spilin svo hægt sé að móta stefnu...
-
Spurl leitar að forritara
Spurl ehf. leitar að forritara í spennandi verkefni. Í starfinu felst forritun á næstu útgáfu Spurl.net bókamerkjaþjónustunnar sem nú hýsir 4,5 milljónir bókamerkja fyrir yfir 30 þúsund manns um allan heim. Jafnframt að aðstoða við viðmótsforritun og léttari bakendavinnslu við leitartæknina okkar...
-
Fjöllin og fræga fólkið á Emblu
Fyrir stuttu skrifaði ég um nokkur sæt Emblu trikk sem við erum búnir að vera að kóða inn í Embluna. Ég sagði að það væri meira á leiðinni og nú eru dottin inn tvö ný trikk. Nöfn þekktra einstaklinga: t.d. Jón Arnar Magnússon. Birtir stuttan texta um viðkomandi og tengil á færslu um hann eða […]
-
Þriðjudagstæknin: Svæðaskipt internet
Efni Þriðjudagstækninnar í dag eru tilraunir manna til að binda þjónustuþætti og dreifingu á efni á netinu við svæði og landamæri með misjöfnum árangri. Vissir þú að Internetið er ekki alls staðar eins? Ýmsar efnisveitur, þjónustur og vefir laga sig að því hvar notandinn er staddur í heiminum, ým...
-
Dauði DV
Deiglan.com lagðist á hliðina, svo vinsæll var undirskriftalisti þeirra gegn ritstjórnarstefnu DV – líklega farið yfir bandvíddarkvótann sinn. Annars væri full ástæða til að hvetja fólk til að skrifa sig á listann. Það er að vísu all-langt síðan ég hætti svo mikið sem að fletta DV – ég man ekki e...
-
Þriðjdagstæknin: CES sýningin
Efni Þriðjudagstækninnar í dag er CES raftækjasýningin í Las Vegas Á hverju ári flykkjast tækjanördar í stórum hópum til Las Vegas í byrjun janúar til að vera viðstaddir CES (Consumer Electronics Show) raftækjasýninguna. Þarna keppast framleiðendur við að sýna það nýjasta í raftækjum fyrir neyten...
-
4 milljónir bókamerkja á Spurl.net
Í gær dúkkaði 4 milljónasta “spurlið” upp á bókamerkjaþjónustunni okkar, Spurl.net. Það er innan við ár síðan þau voru bara milljón og ekki einu sinni 3 mánuðir síðan þau voru 3 milljónir. Núna er okkar helsta vandamál að höndla öll þessi gögn þannig að allir séu samt ánægðir með hraðann og gæðin...
-
Þriðjudagstæknin: Tæknispá – átta hlutir sem gerast árið 2006
Í Þriðjudagstækninni í dag ætlum við að kíkja í kristalskúluna og velta fyrir okkur hvað árið 2006 muni hafa í för með sér í tölvu- og tæknigeiranum. “Það er erfitt að spá, einkum um framtíðina” er haft eftir danska eðlisfræðingnum Niels Bohr. Engu að síður keppast menn um hver áramót við að reyn...
-
Nýjasta Windows öryggisholan
Nýjasta Windows öryggisholan er býsna alvarleg (sjá frétt mbl.is hér). Fólk hefur verið að spyrja mig hvort ástæða sé til að gera eitthvað í málinu. Ég er ekki öryggissérfræðingur, en eftir því sem mér sýnist best, þá er ágætt að gera eftirfarandi – ekki síst ef þið eruð ekki með veiruvarnir og e...
-
Nokkur sæt Emblu trikk
Við Spurl-menn erum búnir að vera að kenna leitarvélinni okkar, sem meðal annars knýr Emblu hjá mbl.is, nokkur ný og sniðug trikk síðustu vikurnar og kannski ekki vitlaust að vekja smá athygli á þeim. Hugmyndin er sem sagt sú að reyna að veita notendum meiri þjónustu en bara hráa textaleit í þeim...
-
Að fella, drepa eða myrða – þar er efinn
Þegar ég var lítill í sveitinni hjá afa og ömmu, þurfti að fella gamlan hest. Ef ég man rétt var þetta sorglegt, en nauðsynlegt – það er skilningurinn sem ég legg í orðið að “fella”. Nýlega fannst mér ég svo taka eftir ákveðnu mynstri í umfjöllun íslenskra fjölmiðla. Getur verið að Írakar og Pale...
-
Þriðjudagstæknin: Flottustu jólagjafirnar
Efni Þriðjudagstækninnar í dag verður í anda jólanna. Ekki að við ætlum að gefa neitt, heldur ætlum við að kíkja á heitustu græjurnar sem komu upp úr jólapökkunum þetta árið. Jólin í ár voru mikil græjujól. Það sem hefur líklega staðið uppúr voru flatskjáirnir sem margir versluðu sér fyrir jólin,...
-
dohop.com – íslenskt hugvit kemur þér milli heimshorna
Sennilega hafa nú flestir sem fylgjast með íslenska upplýsingatækniheiminum heyrt af dohop.com nú þegar og jafnvel prófað ferðaleitarvélina þeirra. Fyrir ykkur hin, þá er þetta sem sagt leitarvél sem leitar að flugi á milli hvaða tveggja staða sem vera skal með hvaða flugfélagi sem er. Takmarkið ...
-
Þriðjudagstæknin: Er Internetið að hrynja?
Efni Þriðjudagstækninnar í dag eru endalok Internetsins. Grein í nýjasta hefti tækniblaðsins Technology Review hefur vakið nokkra athygli í tækniheiminum síðustu daga. Greinin fjallar um galla og takmarkanir Internetsins sem viðmælendur rekja til skorts á skipulagningu og hönnun við uppbyggingu n...
-
Bill Gates hefur rúman mánuð til að stoppa kæfuna
Í lok janúar verða tvö ár síðan Bill Gates fullyrti að kæfa (e. “spam”) yrði úr sögunni innan tveggja ára. Eins og Techdirt bendir réttilega á, þá þarf líklega einhver að fara að hella upp á kaffi handa honum ef þetta á að hafast í tíma…
-
Íslenskar auglýsingar í MSN Messenger
Tók eftir þessari íslensku auglýsingu á MSN Messenger í morgun. Hún bendir einfaldlega á forsíðuna á vefnum hjá BT. Það er gott að íslensk fyrirtæki eru að átta sig á því hvað er hægt að gera í gegnum þessi auglýsinganet eins og t.d. hjá MSN (þeir eru líklega með eitt allra sveigjanlegasta kerfið...
-
Þorláksmessa 2005
Allir sem vilja þekkja okkur velkomnir að venju á Þorláksmessu á: Laugaveg 82 allskonar JÓLAGLÖGG allsnægtir af ávöxtum og öðru góðgæti. Úrvals vörur. Ekkert verð. Þjer ættuð að líta inn í fallegu íbúðina okkar. Hvar sem þjer annars eigið heima í bænum. Magga&Hjalli —– As always, our friends and ...
-
Stofnfundur samtaka vefiðnaðarins (SVEF)
Stofnfundur Samtaka Vefiðnaðarins var haldinn í gær, en samtökin eru samtök áhugafólks um vefmál. Nánar um það á SVEF.is Undirritaður var með kynningu um þróun Emblunnar, en hópurinn sem stóð að stofnun samtakanna er einmitt sami hópur og hefur borið veg og vanda af Íslensku vefverðlaununum undan...
-
Þriðjudagstæknin: Samskipti við tölvur
Efni Þriðjudagstækninnar í dag eru boðleiðirnar sem við notum til að koma vitinu fyrir tölvurnar okkar – og þær fyrir okkur. Samskipti okkar við tölvur eru í rauninni afar frumstæð. Við notum mús og lyklaborð til að skipa tölvunni fyrir og hún birtir okkur skilaboð á skjá. Einhver myndi vilja bæt...